Vera


Vera - 01.10.2003, Side 63

Vera - 01.10.2003, Side 63
MA ritgerðin „Þöggun þunglyndra kvenna" er eftir Bergþóru Reynis- dóttur, geðhjúkrunarfræðing. Hún lauk mastersprófi frá Námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands sl. vor. Rannsóknin byggir á ára- tuga reynslu Bergþóru af geðhjúkrunarstörfum en sú reynsla fékk hana til að stíga ný skref og stofna eigið fyrirtæki, Liljuna ehf, sem hef- ur það markmið að efla geðheilsu fólks m.a. með sjálfstyrkingu. Bergþóra hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á Kleppsspi'tala strax eftir hjúkrunarfræðinám. Sérrnámi í geðhjúkrun lauk Bergþóra fjórum árum síð- ar og lá leiðin þá á Reykjalund þar sem hún vann í 5 ár, m.a. við að leggja grunn að geðsviði Reykjalundar. Þá fór hún til Akureyrar og starfaði sem geðhjúkrunarfræðingur við fjórðungssjúkrahúsið og tók m.a. þátt í endur- skipulagningu geðdeildar sjúkrahússins. Bergþóra hafði einnig umsjón með geðhjúkrunarnámi við hjúkrunarnámsbraut Háskólans á Akureyri í nokkur ár. Fyrirtæki Bergþóru hefur það markmið að efla geðheilsu fólks og felst starfsemin m.a. (forvarnarstarfi þar sem viðtalsmeðferð, fræðsla, ráðgjöf og handleiðsla eru áhersluþættir. Einnig er boðið upp á geðmeðferð til að efla og viðhalda andlegu jafnvægi og innri styrk. Námskeiðið Innri friður - Innri styrkur er hannað með áðurgreinda þætti í huga. kvæma hóp kvenna. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu kvenna sem greindar hafa verið með þung- lyndi af samskiptum við heilbrigðisfagfólk. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð sem byggir á túlkunarfyrir- bærafræði sem lýsir og skýrir reynsluheim fólks og beinir athygli að því hvernig maðurinn túlkar og gefur atburðum í lífi sínu merkingu. Greind voru fjögur yfirþemu sem lúta að reynslu kvennanna af samskiptum við heilbrigðisfag- fólkið: 1) skilningur á líðan, 2) þöggun, 3) fordómar, 4) leit- að eigin útgönguleiða. Skilningurá líðan Það sem konunum fannst mikilvægast í samskiptum við heilbrigðisfagfólkið var að það gæfi sér tíma til að tala við þær og öðlast þekkingu á tilfinningalegri vanlíðan þeirra og aðstoða þær við að bæta úr henni. Fimm þátttakenda höfðu reynslu af heilbrigðisfagfólki sem hafði hæfni ( mannlegum samskiptum og töldu konurnar þetta fagfólk vera „faglega færa" einstaklinga. Viðmót þessa skilnings- ríka fagfólks var hlýlegt, það var varfærið í orðaskiptum og notaði líkamlega snertingu. Tvö undirþemu komu fram en þau voru: Mannleg tengsl og að halda reisn sinni. Mannleg tengsl: Þeim konum sem höfðu verið lagðar inn á geðdeild fannst það vera erfitt spor að stiga og kváð- ust hafa verið fullar af fordómum gagnvart „geðveiku" fólki áður en þær þurftu sjálfar að leggjast inn á geðdeild- ir. Margrét, sem hafði átt langvinn samskipti við heilbrigð- isfagfólk, fann loks notaleg samskipti við fagfólk þegar hún lagðist inn á geðdeild vegna áfengismeðferðar. Mar- grét hitti þarna skilningsríka meðferðaraðila, sérstaklega áfengisráðgjafa. Hún hafði einn ákveðinn stuðningsaðila og kvað hann standa upp úr í minningunni um samskipti við heilbrigðisfagfólkið. Jákvæð samskipti og uppörvun annarra sjúklinga sem upplifað höfðu sams konar reynslu af ofbeldi og misnotkun áfengis var einnig stuðningur fyr- ir Margréti. Eftirfarandi orð hennar lýsa vel hve henni létti þegar hún mætti mannlegum skilningi: „Ráðgjafamir... já mér finnst þetta fólk, sem hefur upplifað eitthvað svipað og ég í lífi sínu, skilja þetta best. Þarna þorði ég að tala í fyrsta skipti á geðdeild um kynferðislega misnotk- un og mér leið vel þarna innan um fólkið sem hafði svipaða reynslu og ég... í áfengismeðferð finnst mér vera svona víð- tækari skilningur á tilfinningum manns... þeir geta tekið við öllu sem maður segir." Að halda reisn sinni: Það var öllum þátttakendum mikilvægt að „halda reisn sinni" þrátt fyrir veikindin. Engin þátttakenda taldi sig vera „geðveika" heldur miklu fremur að langvinnt tilfinningalegt álag hefði undist upp á sálina og að lokum valdið því að þær misstu stjórn á lífi sínu og úrræðaleysið náði yfirhöndinni. Þegar konunum var sýnd- ur skilningur á veikindunum þá létti innra með þeim og þær fundu I ríkari mæli til mannlegrar reisnar. Eftirfarandi orð Maríu sýna þetta glöggt: „Mér fannst ég vera orðin svo fín frú þegarhún talaði við mig ... og skildimig... ég varsvo upp með mér... hahaaaa." Þöggun Allir þátttakendur kynntust ópersónulegum samskiptum þar sem viðmótið var kuldalegt, jafnvel niðurlægjandi og fagfólkið hélt fjarlægð sinni og gaf ekki kost á að mynda náin tengsl. Ennfremur töldu konurnar að fagfólkið hefði ekki lagt sig fram um að leita að rótum tilfinningalegrar vanlíðanar þeirra. Þær töldu að fagfólkið hefði tekið ákvarðanir um meðferð án samráðs við þær þannig að samskiptin hefðu verið á þann veg að fagfólkið vissi betur um líðan og þarfir kvennanna en þær sjálfar. Konurnar álitu að slík framkoma hefði verið til þess eins fallin að þagga niður tilfinningalega vanlíðan þeirra þar sem ekki vera / 5-6. tbl. / 2003 / 63

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.