Vera


Vera - 01.10.2003, Qupperneq 70

Vera - 01.10.2003, Qupperneq 70
UlfhilduMlaasdóttir / KVIKMYNDIR Kvikmyndahús hinna þúsund líka »Enn er hrollvekjan í uppsveiflu og svo virðist sem allar spár um dauða hennar séu jafn skamm- sýnar. Nú síðast var það umtalað að myndir eins og Scream (Wes Craven 1996) hefðu gengið að forminu dauðu en því er aldeilis ekki að heilsa því einmitt um þetta leyti ríður yfir heilmikil bylgja hrollvekja. Dæmi um þær eru myndir eins og Jeepers Creepers II (Victor Salva 2003), Freddy vs. Jason (Ronny Yu 2003) og Underworld{Len Wiseman 2003) sem hafa verið sýndar hér í kvik- myndahúsum og May (Lucky McKee, 2002) og House of 1000 Corpses (Rob Zombie 2002) sem eru á vídeóleigum. Af væntanlegum myndum má nefna Van HeIsing {Stephen Sommers 2004), Butterfly Effect{Eric Bress 2004) og Cabin Fever{í\\ Roth 2003). En bylgjan er ekki bara ameri'sk, franska myndin Maléfique (Eric Valette 2002) og mynd danska leikstjórans Nicholas Winding Refn, FearX(2003), eru einnig til marks um þá miklu grósku sem gripið hefur hrollvekjuna. Flestar nýju bandarísku myndanna sverja sig í ætt við það sem kallað hefur verið unglingahrollvekjur. Formúla unglinga- hrollvekjunnar er í stuttu máli sú að á afmörkuðu svæði, svo sem sumarbúðum, smáþorpum, hverfi eða í skóla, gengur morðingi laus og sýnir fádæma frumleik við það að fækka ungmennum og fela sig fyrir yfirvöldum. Yfirleitt kemur það svo í hlut einhverrar stúlku að vinna á ómenninu. Þessi formúla verður til seint á átt- unda áratugnum og heldur velli í hryllingsmyndum fram á þann níunda en þá dala vinsældirnar nokkuð þar til á miðjum níunda áratugnum þegar áðurnefnd Scream dældi í hrollvekjuna nýju (póstmódernísku) blóði. Framhald hrollvekjubylgjunnar upp úr 1980 Sumar nýju myndanna, eins og Freddy vs. Jason eru einfaldlega framhaldsmyndir hrollvekjubylgjunnar sem stóð sem hæst í upphafi níunda áratugarins en hafa nú öðlast nýjan slagkraft -en í þeirri mynd er tveimur erkiskrímslum hrollvekjunnar att saman, svona álika og í Underwortd þar sem vampírur og varúlfar eiga í útistöðum. Hús hinna þúsund líka er af sama meiði, en hún er einskonar endurgerð á einni frægustu hrollvekju allra tíma, Texas Chainsaw Massacre (Tobe Flooper 1974), með stefum frá Biair-witch, zombíumyndum og líffræðilegum hrollvekjum eins og Virus (John Bruno 1999). Skemmtilega andstyggileg mynd. Á sama hátt ku Cabin Fever vera endurgerð á hinni ástsælu Evil Dead (Sam Raimi 1981). Ljóst er að áhrif japanskra hrollvekja eru mikil, en myndir eins og TheEye (Oxide Pang Chun 2002), Ring og Dark Waters (Flideo HROLLVEKJUM AF ÞESSU TAGI ER BEINT TIL UNGLINGA Á KYNÞROSKAALDRINUM 0G SKEMMTILEGASTA KENNINGIN ER LÍKLEGAST SÚ AÐ HROLLVEKJAN SÉ EINSKONAR LEIÐAR- LJÓS í GEGNUM MYRKVIÐI KYNÞR0SKANS, 0G KEMUR ÞÁ í STAÐ HANDBÓKAR SEM K0RT- LAGNING Á KYNHEGÐUN Nakata 1998 og 2003) hafa vakið mikla athygli á vesturlöndum, og verðskuldaða, því hér hafa verið lagðar nýjar línur í hrollvekj- um. Því er óhætt að segja að þrátt fyrir að margar ofantalinna mynda haldi sig við hina klassísku formúlu má vænta þess að margar þeirra gleðji augað með nýjum útfærslum á henni, eða jafnvel alveg nýjum söguþræði! Sumir vilja tengja endurnýjaðar vinsældir hrollvekjunnar samfélagslegum óróa í upphafi nýrrar aldar, en aðrir sjá allt í kyn- ferðislegu Ijósi. Flrollvekjum af þessu tagi er beint til unglinga á kynþroskaaldrinum og skemmtilegasta kenningin er líklegast sú að hrollvekjan sé einskonar leiðarljós í gegnum myrkviði kyn- þroskans, og kemur þá í stað handbókar sem kortlagning á kyn- hegðun. En því miður er helsta niðurstaðan af þessum útleiðing- um ævinlega sú að kynlíf sé banvænt og hlýtur hrollvekjan því að koma að fremur takmörkuðu gagni sem leiðarvísir um líflegt kynlíf (en góðu gagni sem getnaðarvörn). Aðrir kynlegir kvistir hafa bent á hvernig hrollvekjan býður uppá hið fullkomna tæki- færi fyrir unglinga að 'para' sig, þar sem unglingar bókstaflega 'draga sig saman' í skjóli myrkurs og skelfingar. Þessar lögðu línurnar Það er ekki úr vegi að minna á nokkrar af þeim myndum sem lögðu línurnar á sínum tíma, en þar ber hæst Halloween (John Carpenter 1978). Aðaldaman í þessari stefnumarkandi hrollvekju var Jamie Lee Curtis. Myndin er einna frægust fyrir að ná að summa plottið upp í einu orði: Flalloween. Af öðrum má nefna: When a Stranger Calls (Fred Walton, 1979) Barnapíuhremmingar. Ekki svara í símann, nei betra: Aldrei passa börn. Prom Night (Paul Lynch, 1980) Jamie Lee Curtis aftur, og nú er skólinn miðstöð morða. Terror Train (Roger Spottiswoode, 1980) Og enn er Jamie Lee á ferð, nú í lest með hefnigjörnum samnemanda, líklega þeim sem ekki fékk að vera með í Prom Night. Friday the Thirteenth (Sean Cunningham, 1980) Með hala af næstum 13 framhöldum er þetta sumarbúða-splatter óþrjót- andi uppspretta kynlífskenninga. ( þeirri fyrstu fær Kevin Bacon ör upp í gegnum brjóstið þar sem hann liggur á bakinu uppí rúmi í eftirfullnægingarsæluvímu. Næstnýjasta útgáfan, Jason X (James Isaac 2001), gerist úti í geimi í framtíðinni, en þar er fros- inn líkami hins síglaða morðingja Jason óvænt endurlífgaður með framtíðartækni. A Nightmare on Elm Street (Wes Craven, 1984) með runu af framhöldum hélt Freddy Kruger lífinu í for- múlunni fram að meistaraverkinu New Nightmare, og svo hitti hann Jason. Ekki illa að verki staðið. Þarna sést Johnny Depp sem gelgja (og deyr þegar hann sofnar yfir fegurðarsamkeppni í sjónvarpinu). X 70 / 5-6. tbl. / 2003 / vera
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.