Vera


Vera - 01.10.2003, Síða 71

Vera - 01.10.2003, Síða 71
/ DAGBÓK KÚABÓNDA Stolt af því að vera bóndi Það er frábært veður þegar þetta er skrifað, þann 15. október. Rigningarúði, alveg logn og kýrnar úti að bíta gras og kál. Strax kominn miður dagur og ég er sannast sagna ekki búin að gera neitt af því sem ég ætlaði mér í dag. Jú, baka svolítið og elda, vaska upp, henda í vél - þið vitið þetta sem maður gerir á hverjum degi og tekur varla eftir. Hugurinn á allt öðrum stað á meðan, reikar hingað og þangað. <1» I dag hef ég hugsað mikið til ungu konunnar sem heimsótti okkur fyr- irtveimurárum og spurði hvenærvið mjólkuðum, hvort það væri einu sinni á dag, eða einu sinni í viku? Þá var hún búin að stoppa hjá okkur í þrjá daga og hafði ekki tekið eftir því að kýr voru mjólkaðar tvisvar á dag. Ég fór að velta fyrir mér yfir uppvaskinu hvort þetta væri ekki bara eðlilegt að hugsa svona (fyrir tveimur árum fannst mér þetta ótrúleg heimska...) þar sem hverfandi lítill hluti af íslendingum eru enn bændur. Þótt ýmislegt sé kennt um landbúnað fyrr og nú í okkar góðu skólum, þá er ég hrædd um að margir séu komnir svo langt frá daglega lífinu í sveitinni að það sé ekkert skrítið þótt fólk um þrítugt og yngra en það spyrji hvenær kýr séu mjólkaðar og úr hvaða spenum súrmjólkin komi, hvenær kindum sé smalað og hvernig þær komist upp á fjöllin og hvernig sæðarinn geti búið til kálf í kúna! Allir alltaf aðtala og tala Það er dagur kvenna í dreifbýli í dag, líka afmælisdagurinn hennar ömmu sem er orðin 86 ára. Það eru ekki öll börn sem fá nú að njóta þeirra forréttinda að alast upp í sveit í daglegum tengslum við Iffið og starfið þar. Þegar amma var lítil bjuggu flestir í sveitum og þéttbýlis- staðirnir voru tengdir þeim á marga vegu. Nú fara sveitir og byggðar- lög í eyði og þéttbýlisstaðirnir minnka og minnka, þangað til þeir loks verða aðallega tveir, ef svo heldur fram sem horfir. Þetta eru allir að tala um, alltaf, en er eitthvað að breytast þannig að þetta snúist við? Eru ekki bara allir alltaf að tala og tala? Eiginlega á ég bara ekki orð. Svo ég læt bara sérviskuna tala: Himingeimurinn þúsundir vetrarbrauta stjarna, tungla, sóla, geimskipa óravíddir, óravegu en grænar grundir og gróin engi <c gufuhvolfseindir, örveruatóm berfættir krakkar i grasi kjarnorkukraftar ilmuraftöðu, baulandi kýr > ce sýndarviddir og veruleikar sísvangir, starfandi litlir pjakkar vuu un örmagna æska i tölvuflækju veröldin elskar jú bera fætur eirðarleysi og eiturbrækju og ástarleiki um sumarnætur eitthvað sem er eða er kannski ekki alvöru lífsem er fast í hendi slik afbökuð tilvera heillar mig ekki ég óska mér þess að það aldrei endi. Dagur kvenna í dreifbýli Á degi kvenna í dreifbýli óska ég íslendingum þess að taka upp nýja stefnu í landbúnaði sem leiðir til gæfu og búsældar, svo við megum eiga blómlegar sveitir á nýjan leik. Ég óska bændum farsældar og þess að þeir fái stöðugt hærra verð fyrir sínar frábæru afurðir sem eiga sér ekki sinn líka í heiminum og framleiðsla þeirra og lífsstíll verði metið að verðleikum og verði öðrum starfsstéttum til fyrirmyndar. Ég óska bændum samstöðu í hugsun og hjarta svo þeir taki óhræddir og ófeimnir sinn skerf af kökunni sameiginlegu og hefji til vegs og virð- ingar fólk sem metur og talar jákvætt um landbúnað á íslandi og vill beita sér fyrir hagsmunum bænda. Ég óska öllum börnum þess að fá að kynnast sveitalífinu, hlaupa um berfætt í grasinu og taka þátt í dag- legum störfum. Á degi kvenna í dreifbýli, og alla aðra daga líka, finn ég hvað ég er stolt af því að vera bóndi. Lifið heii, öll með ykkar sérvisku, Jóhanna Helga. Kærleikskúla til styrktar fötluðum börnum Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur Kærleikskúluna út í fyrsta sinn nú fyrir jólin. Ætlunin er að ný kúla komi út ár hvert, skreytt verkum ís- lenskra listamanna. Kærleikskúlan 2003 er blásin glerkúla með mynd eftir Erró. Allur ágóði af sölu kúlunnar rennur til eflingar starfsemi Reykjadals í Mosfellsdal en í ár eru 40 ár liðin frá stofnun hans og er hann opinn öllum þeim sem ekki geta notið annarrar sumar- eða helgardvalar vegna fötlunar sinnar. Biskup (slands herra Karl Sigurbjörnsson blessaði kærleikskúluna með eftirfarandi orðum: Blessun Quðs fylgi þessum fagra grip. Blessaður sé sá hugur og þær hendur sem mótuðu hann, blessaður sé sá sem gefur og þiggur, blessuð séu þau sem njóta munu. Þarsem góðvild og umhyggja eru að verki, þar er Guð og englarnir hans björtu, góðu. Sú birta og góðvild lýsi þér. Kærleikskúlan verður seld 10. - 24. des. í Villeroy og Boch, Kringl- unni, Kokku Laugavegi 47, Home Art Smáralind og hjá Styrktar- félagi lamaðra og fatlaðra, Háaleitisbraut 11-13. vera / 5-6. tbl. / 2003 / 71 Jóhanna Helga Halldórsdóttir

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.