Akranes - 01.07.1957, Page 7

Akranes - 01.07.1957, Page 7
Hallgrímskirkja í Saur- bœ (vesturgafl). Þá tók biskupinn yfir íslandi, Ásmund- ur Guðmundsson, til máls og minntist þess, að þetta væri fjórða guðshúsið, sem hann vígði á þessu vori. Hann kvaðst telja Hallgrímskirkju eitthvert fegursta guðshús á íslandi, ekki vilja kveða sterk- ara að orði, þótt það væri ef til vill óhætt. Þá tók Eysteinn Jónsson fjármálaráð- herra til máls. Bað hann fólk að rísa úr sætum og hylla þá meam, sem mest væri að þakka, mennina, sem áratugum sam- an hefðu unnið óeigingjarnt að þessu kirkjumáli. Tóku menn undir það af heil- um hug, svo að allur salurinn bifaðist við. Kórinn og mamnsöfnuðurinn hafði srmgið ættjarðarljóð milli þess að ræður voru fluttar, en seinast var sungið. „Víst ertu, Jesú kóngur, klár“ og „Son guðs ertu með sanni“. Þannig lauk þá þessari merkilegu at- höfn. -t- Minnisvarði. Það hefir verið venja mannkynsins að reisa minnismerki þeim, er skarað hafa fram úr á einhvern hátt. En ekki lifir minning þeirra allra fyrir það, né er i heiðri höfð. Þegar litið er á fram- þróunarsögu mannkynsins sem heild, eru það ekki einvaldarnir, harðstjórarnir, hershöfðingjar eða slægvitru mennirnir, sem „eiga mörkin alla leið eftir á hverri báru“, heldur eru það góðu mennirnir, sem boðuðu mamnkyninu sannleikann, siðspekina og trú á „guð í alheimsgeimi, guð i sjálfum þér“. Áhrifa þeirra gætti ef til vill lítt i lifanda lífi, en frá lífs- starfi þeirra leggur æ bjartari og sívax- andi geisla fram eftir öllum öldum. Slík- ur maður var Hallgrimur Pétursson fyr- ir þjóð sína. Hann orti Passíusálmana fyrir réttum þremur öldum (menn telja að hann hafi byrjað á þeim árið 1657) og geislann frá þeim getur íslenzka þjóð- in haft að leiðarvísi um ókommar aldir. Það var því rétt að reisa honum mhmismerki, helgað guði, og það er ein- kennilegt, að þetta minnismerki skyldi einmitt vera vígt þegar 300 ár voru lið- in frá því að hann byrjaði á Passíusálm- unum. Það er tilviljun, sem mennirnir ráða ekkert við, því að ef þeir hefðu mátt ráða, þá hefði kirkjan verið fullger fyrir löngu. AKRANES 143

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.