Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 24

Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 24
Oft og mikið ræddi nefndin um fram- hald byggingarinnar. Munnlega og skrif- lega var sótt um byggingarleyfi án ár- angurs. Nefndinni þótti biðin orðin löng og illa horfa tnn lausn málsins, ef byggja ætti samkv. teikningu Guðjóns, sem nú, 1953, yrði a. m. k. dýr. Eins og áður er sagt hafði Sigurður Guðmundsson arkitekt hlotið 2. verðlaun í fyrrgreindri samkeppni. Kom Guð- mundur Gimnlaugsson þá eitt sinn að máli við hann og hvatti hann til að gera nýjan uppdrátt. Gerði Sigurður fljót- lega likan af nýrri kirkju og sýndi nefnd- inni það. Var nefndin á einu máli um, að hér væri um athyglisverða tillögu að ræða, er hún vildi ræða nánar við þá félaga arkitektana Sigurð Guðmimdsson og Eirík Einarsscn. Lagði nefndin höfuð- áherzlu á að hægt væri að byggja ofan á hinn gamla grunn. Sérstætt hús og myndarlegt minnismerki. Svo traust og vandað, að þangað mætti sækja tíðir í þúsimd ár, án verulegs viðhalds eða end- urbóta hins ytra borðs. Að inonra yrði húsið helgidómur, þar sem saman færi traustleiki án tildurs, og viðhald í heild sinni ekki ofviða fámennum söfnuði. Um áramótin 1953 og 1954 barst Landsnefndinni svo teikning frá hendi þeirra félaga, Sigurði Guð- mundssyni og Eiriki Ein- arssyni, sem hún gat, að því er snerti aðallínur, fellt sig við. Um efnivið og á- ferð hið innra kom ýmislegt til greina. M. a. hvort ekki væri fagurt og traust og ódýrt í viðhaidi a. m. k. að klæða hana með mjúklit- um marmara. Að vel at- huguðu máli þótti þetta þó of mikil áhætta í sambandi við hljómburð hússins. Þá stakk Sigurður upp á því, að innra borð kirkjunnar yrði hlaðið úr múrsteini. Fyrst settum vér upp stór augu. En að vel athuguðu máli var einróma samþykkt að fallast á þessa til- högun. Með henni mætti ná fyrmefndum megin sjónarmiðum: Traustleika, end- ingu, litlum viðhaldskostoxaði og sérkenni- legu útliti, sem að líkindum myndi þó venjast vel. Hér var ekki um neitt hrófa- tildur að ræða, sem fljótlega þyrfti að lappa upp á með æmum kostnaði. Allt þetta bar nefndin undir almennan safn- aðarfund i Sarn-bæ, og var þar einróma samþykkt. 1 trausti þess, að nú yrði þetta lang- þráða mál leitt til lykta á viðunandi hátt, var samþykkt að hefja byggingu kirkjumiar vorið 1954 samkv. þessari teikningu. Efuðumst vér nú ekki um að nú yrðu margar hendur á lofti því til framdráttar. Þetta sýndi sig fljótt, t. d. hjá þeim, sem réðu yfir fjárfestingar- leyfimum. Hins sama varð og vart hjá ýmsum öðrum, er leitað var til um stuðn- ing á hinn margvíslegasta hátt. Var nú nefndin vongóð um áframhald þar til yfir lyki. Þannig hefði og kirkjan orðið 160 AKRANES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.