Akranes - 01.07.1957, Side 31

Akranes - 01.07.1957, Side 31
Gamla kirkjan í Saurbœ, er síra Þorvaldur BöSvarsson lét byggja 1878. Gamla húsiS á staSnum, er síra Jón Benediktsson lét reisa 1892. (Myndin er tekin á Hallgrímshátíö 1933) sem nauðsyn krafði. Auk annarra kosta í þessu sam- starfi, met ég það mest í fari þessa fólks, að það hef- ur verið svo blessunarlega laust við allan lágkúruhátt, og verið sammála um, að þessu verkefni hæfði ekki nema hið bezta. Guð blessi yður öll. 1 dag gleðjumst vér yfir góðu verki, eins og væri það fullgert og skuldlaust. Því miður er það ekki svo. Kirkjan mun nú í dag kosta um 1.5 millj. kr., og eru þar af um 400 þús. kr. í skuld. Það er of há skuld fyrir fámennan söfnuð að bera, ásamt árlegum rekstri. Samhliða þessu vil ég einnig minna á, að ýmislegt er hér enn ógert, sem kosta mun nokk- urt fé, þar til má nefna: Að skipuleggja næsta umhverfi, og prýða það með gróðri og gagnviði, mun Helgi, húsameistari, Eyjólfsson ætla að koma þar myndarlega til hjálpar. Þá hefur Eggert Kristjánsson stórkaupmaður ákveðið að gefa kirkjunni tvöfalt gler í glugga hennar. Einnig þarf að hlúa betur að minjum þeim, sem bundnar eru við Hallgrim á þessum stað. Ganga betur frá leiði hans, er hin gamla kirkja hættir að hlífa því, svo og að minna á — með varanlegum hætti — hvar altari liinnar gömlu kirkju í Saur- bæ hefur staðið frá öndverðu. Enn vant- ar klæði í kór, svo og ýmislegt fleira til gagnsemdar og prýði innan kirkju- dyra, svo sem hæfilegt pípuorgel. Einar Jónsson myndhöggvari var mik- ill aðdáandi Hallgríms, svo sem ljósast má marka af hinum mörgu listaverkmn, er bundin ei’u við hann eða minningu hans. Eitt er þeirra mest og fegurst, er hann lætur alla þjóðina í æ breiðari fylk- ingu feta sig áfram að sjúkrabeði hins kaunum hlaðna manns. Einar Jónsson gaf kirkjunni — í lifanda lífi — leyfi til að fá afsteypu af þessu mikla lista- verki. Það þyrfti því að komast hingað á gröf Hallgríms eða í kirkjima, en af- steypa þessi kostar sjálfsagt 30—40 þús- und krónur. Allt það, sem hér hefur verið drepið á — og kirkjuna vantar exm — kostar nokkurt fé, en ekki efumst vér um, að þessi smærri vandamál verði leyst á auðveldan hátt, svo sem það, sem þegar er gert með þeim glæsibrag er raun ber vitni. Þessari kirkju mun gefast fé í æ rík- ari mæli með ári hverju, því að, eins og einn vinur minn í Reykjavík sagði við mig í gær: „Hver getur farið fram hjá Saurbæ, eða komið að Saurbæ, án þess að láta eitthvað af hendi rakna til þess sem þar er verið að vinna“. Ég vil þakka biskupi landsins, herra Ásmundi Guðmundssyni fyrir marghátt- aðan stuðning og fyrirgreiðslu í sambandi við þetta mál, svo sem um hagkvæmt lán 167 AKRANES

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.