Akranes - 01.07.1957, Side 41

Akranes - 01.07.1957, Side 41
SIGURÐUR JÚNSSON FRÁ BRÚN: Til íjallfl oo írd Svolítil bergvatnsá blátær og elskuleg leið um gjána rétt við bækistöð okkar, heitir hún Strangakvísl og kemur að vestan. Hún hefir ratað á lægsta blett- inn á syðri gjárbarminum og rennir sér þar suðaustur til Skaftár, kemur hún þar litlu neðar saman við Nyrðri Ófæru, er á upptök sín í sunnanverðum Grænafjall- garði og sökkva þær sér svo báðar, hrein- ar og prúðar, í jökulgonm fljótsins, rétt eins og sumar beztu stúlkumar, sem glata sér til fylgilags við skítmenni. Svipaða leið og Strangakvísl liggur svo vegurinn og um töluverðan bratta niður í svokallaða Lambaskarðs- eða Lamba- tungu-hóla, sem eru fyrsti sæmilegi án- ingarstaðurinn með langferðahesta allt vestan úr Jökuldölum á Landmanna- leið, og er þó oft sniðgenginn, bletturinn, af þeim, sem vita um enn betri áningar- stað, sem er Hánípufit við Skaftá sjálfa. En þangað er skammt orðið þar. Bílanot- endum er Hánípufitin ekkert gleðiefni og þó allra sízt Syðri-Ófæra og Hánípukvísl, sem koma þar í giljum að vestan og sunnan, því þær neyða þá þar niður bratta brekku, til þess eins að verða svo að klifra upp í sömu hæð eða meiri þeg- er suður fyrir þær kemur, því að sunn- an Hánípufitjar gengur hæðaöxl mik- il austur að Skaftá og verður að fara yfir hana. Heita þar uppi Kálfasléttur og er bara engjalegt yfir að líta sums staðar, mýrgresi og slétt undir víða, en skelfing hefi ég séð þar gisinn gróður og ódrjúgan, fór þetta land mjög í spillingu 1918 við — ÞriSji hluti — Kötlugosið, en mun nú vera búið að ná sér að miklu. Og þarna upp eftir átti R 346 öðru hvoru mikið erfiði, mosi úr götubökkum reifst undir hjólin og gerði göturnar hálar eins og grænsápu, og varð Guðmundur hvað eftir annað að leita nýrra leiða. Er þar um einkennilegt land að líta einkmn hlíðina milli Hánípukvíslar og Syðri-Ófæru. Hlíð sú er algræn til að sjá, en öðru vísi græn en nytjaland er vant að vera, er þar mosabreiða ein ofan á vikur- söndum og gætir að því er virðist ekki nýtilegra beitijurta, nema í skorningum, eða svo bar fé það, er við sáum úr bíln- um, landi þessu sögima. Þar sást engin kind nema í drögum og voru þá líka gilkinnungamir með graslit, en ekki með mosablæ. Mun slíku landi ærið skemmda hætt, því ef einhvers staðar opnast glufa niður að slíkum jarðvegi getur leysingarvatn og stormur tætt og fleygt, en þá verða auðnir eftir, ein þar sem burt var tekið og önnur þar sem nið- ur var lagt, og fokið sérstaklega litlu betra undir að búa en öskugos. En ekki þurfti að óttast skemmdir af jarðfoki í bili. Enn rigndi og það drjúgan, því að ekki stóð morgunfriðurinn lengi. Guð- mundur var samt farinn að fá undan- hallt aftur, því nú skreið bíllinn suður af hæðimum fyrir vestan eyðibýlið Svartanúp. Allt af tekirr mig það sárt að fara fram AKRANES 177

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.