Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 43

Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 43
en hitt grenjandi straumasvarkur, enda verður þar af Kúðafljót og þó með viðbót úr Skaftá, og er ekki ættarlaukur. En það er ekki fjas þótt Hólmsá sé löstuð, meira að segja tókst ekki að koma á hana brú, sem kalla má fært að. Þóttu mér vera handatiltektir í Guðmundi þeg- ar hann var að skjóta löngum bil í þær lykkjur, sem þar þurfti að leggja á leið sína. Kemur Hólmsá að stofni til úr Torfajökli og ber þess nokkrar menjar, því hana sé ég jökulsáa gulleitasta og mun því valda bergmél úr jöklinum, en þar er allt grjót liparít með bleikum eða gulum litum. Þegar yfir Hólmsá kemur tekur við gamalt, flatt hraun, sandorpið. Gleypir það alla bleytu og voru þar hjólför vatns- laus. Fór að þvost. utan af gluggum bíls- ins, en fátt var að sjá, fjarsýn engin fyr- ir úrkomu og nærri bar enga nýlundu fyrir augað nema hóp mikinn >af smá- vörðum á einum stað. Heitir þar Lauf- skálavarða og er helzt að heyra að hóp- urinn beri þar eintölu nafn og er óvenja, sem og hitt, að um það bil má heita að vegurinn liggi þvert úr leið. Hlauphagi kinda er um þetta svæði allt og mætti þykja góður upp við Jökulgrindur, en verður að teljast næsta fátæklegur á lág- lendi niðri á milli einhverra syðstu sveita á landinu og dvalarland er þar engri skepnu nærri vegi nema htið eitt suður við Skálm forugan áar óþverra, sem kemur þar norðvestan úr Mýrdalsjökli, beint frá Kötlugjá, er hún brúuð rétt ofan við efstu bæi í Álftaveri, en brúuð á sléttu og er mjög lágt undir brúna, enda þurrkaði jökulhlaup hana af í fyrra og mun gera svo enn ef annað kemur. Við brú þessa beygir vegurinn til norð- vesturs um stund eftir grónum bakka Skálmar og síðan suðvestur Mýrdalssand sjálfan gróðurlausan og tilbreytingar- lausan allt vestur að Hafursey, sem er einstakt fell fagurt og mikið gróið. Er farið hér um bil fast sunnan við fellið og beygt þar enn meira suður, að nýrri brú á Múlakvísl framan Höfðabrekku- fjalla í Mýrdal. Horfði ég mig þar súr- eygan eftir Hjörleifshöfða, sem þar er skammt frá leið, en sá hann aldrei. En bann er eins og kunnugt er talinn fyrsta býli norrænna manna hér á landi og eini staðurinn á framanverðum Mýrdals- sandi, sem tryggur er fyrir Kötluhlaup- rnn sökum hæðar sinnar, og er meira en meðalsmán að hafa hann í eyði. En nú sást hann varla eða ekki fyrir úr- komu, er hann þó reisulegur, því að víð- ast umkringja hann háir hamrar, forn sjávarbjörg og hafa bæði hann og Haf- ursey eitt sinn verið umflotin eylönd. Vestur undan var allt bjartara. Það rof- aði fyrir Höfðabrekkuheiðum og þar kom Múlakvísl i ljós allmikil að því sinni, sem ekki var að furða i regninu, en lítið fannst félögum mínum um hana. Þeir höfðu sullast hana brúarlausa eftir jök- ulhlaupið í fyrra. En góð var landtakan þá og nú: litli, fallegi flöturinn, Kapla- garðar, fyrir neðan túnið á Höfðabrekku, austasta bæ í Mýrdal. Þar fór nú að verða fallegt; hvanngrónir móbergshamr- ar með fuglatöðu undir, gráir grjóthólar gamlar hrannir frá jökulhlaupum frammi á sandinum, og Reynisdrangar í hvítu brimkögri fram undan. Þetta mátti nú kalla margréttað. Tilbreytnin var nærri eins og á Landmannaleið. En Guðmund- ur stóð fast á benzíninu og allt flaug þetta hjá. Þarna var þá nýtt tún á sand- inum austan við Kerlingardalsá, fallegt, eggslétt, dýgrænt. 1 Fagradal, rétt fyrir vestan ána, hafði ég séð 10—12 hektara tún, nýlega ræktað upp úr berum sandi. Það varð að vera, að fleiri bæru það við að láta þessa gróðurlausu víðáttu neðan AKRANES i79
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.