Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 48

Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 48
 ur. Blaðið gremdi rétt og keksnislaust frá ræðum andstæðinga engu siður en ræðum samherja, væri óskandi að slík aðferð yrði almenn meðal íslenzkra blaða. Oft verður að afla fréttanna og skrifa þær með svo miklum hraða, að ókleift er að kanna áreiðanleika heimilda og eng- inn tími til að taka málið, sem þær eru ritaðar á til nákvæmrar endurskoðunar. Af hinu síðarnefnda leiðir, að mjög miklu máli skiptir, að blaðamaðurinn sé smekk- maður á móðurmál sitt og hafi staðgóða menntun í því. Eftir því sem sérhæfing í starfsgreinum eykst, verður erfiðara fyrir blaðamennina að hafa öll réttustu orð á takteinum að hverju sinni, en slík færni fæst naumast nema hlöðin séu svo stór, að þau geti haft allmikla verkaskipt- ingu milli hlaðamannanna þannig, að sami maðurinn þurfi ekki að skrifa um hvað sem vera skal eins og oft vill verða hjá islenzkum blöðum. Fámenni á ritstjórnarskrifstofu getur leitt til þess, að frásögn blaðamannsins mótist um of af málfari heimildarmanna og verður þá varla hjá því komizt að fréttir verði að öðrum þræði illa skrif- aðar, þar eð sérfróðum mönnum er mjög misjafnlega sýnt um að tala gott mál. Fámenni ritstjórnarliðsins veldur því einnig, að mestur hluti starfstímans fer í að tína saman og þýða fréttir frá er- lendum útvarpsstöðvum og úr erlendum blöðum, ræða við stofnanir, sem helzt er frétta að vænta hjá og fara á blaða- mannafundi þá, sem fyrirtæki og ein- staklingar boða til sökum ýmissa tilefna. Persónuleg fréttaöflun, sem jafnan setur nokkurn svip á blöð, verður að sitja á hakanum við slæm skilyrði. Smekkvísi í uppsetningu getur bætt nokkuð úr þeim ágöllum, sem of fámennt starfslið skap- ar, en aldrei fullkomlega. Þar eð oft er vegið að íslenzkum blaða- 184 mönnum án sérstakra raka má benda á, að þeir eru mun varfæmari en gerist um starfsbræður þeirra erlendis að því er varðar fréttir, sem snerta einkalíf manna og afbrigðilegar gerðir, sem ekki eru i neinu sambandi við þjóðmál. Frétt, sem víða erlendis myndi verða gerð að æsi- frétt á forsíðu er oft látin liggja í lág- inni hér eða hennar aðeins getið í smá- letursdálki. Rannsóknir, sem gerðar hafa verið á sambandi milli æsifrétta og af- brota sanna, að þeim mun minna, sem Um afbrot er skrifað þeim mun minni hætta er á endurtekningu þeirra. Blaða- íréttir geta orðið skóli í miður heppilegu athæfi. Undantekning frá þessari reglu eru vitanlega sorpblöð, en þau hafa jafnan átt erfitt uppdráttar hér á landi og þvi ekki haft mikla þýðingu. Sorpblöð ein- kennast fyrst og fremst af lélegu sið- ferði. Þau skiptir ekki miklu máli hvort fréttin, sem þau birta, er rétt eða röng, en hún verður að vera þannig, að hún auki sölumöguleika blaðsins. Sorpblaðið snýr sér fyrst og fremst til alls hins versta í fari manna. Það lepur upp slúð- ursögur um náungann eða býr þær til, ef engar eru fyrir. Oftast er fréttin skrif- uð í dylgjuformi þannig, að látið er skína í að fleira sé á vitorði blaðsins en sagt er frá. Sorpblöðin hafa að örugg- um lesendum þá, sem ánægju hafa af rógburði og æsifréttum, en heilbrigt, hugsandi fólk hefur skömm á þeim. Ekki er samt með þessu sagt, að sorpblöðin séu réttlaus í þjóðfélaginu, mjög kemur til álita hvort sorinn í þjóðfélögunum þarf ekki og á ekki að eiga sín málgögn eins og þeir, sem reyna að vinna eitthvað til góðs, annað mætti jafnvel teljast skortur á fullkomnu lýðræði, Ef slef- og rógberar ættu sér ekkert málgagn má eins vel vera að iðja þeirra hefði enn verri áhrif en AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.