Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 51

Akranes - 01.07.1957, Qupperneq 51
í ýmsum greinum. Þetta blað og raunar fleiri rík Norðurlandablöð, hafa þann hátt á, að ráða til sín alla beztu blaða- mennina hvað sem það kostar, þótt ekki sé bein þörf fyrir þá í svipinn. Þetta gera efnuðustu blöðin til þess að ná rit- 'færum mönnum frá keppinautum sínum. Blaðakóngarnir hafa þannig lært, að sambandið milli anda og efnis getur ver- ið hagstætt bæði fyrir álit og fjárhag blaðanna. Þegar íslenzku blöðin hafa efni á að gera slík sjónarmið að sínum batna blöðin af sjálfu sér. Margir færir menn við sama blaðið una ekki meðalmennsku- brag á útgáfunni og henni er um leið tryggt gengi meðal þjóða, sem kimna að meta vel skrifuð blöð, en það kunna ís- lendingar vafalaust. Það orkar mjög tvimælis hvort nokkur stétt hefur eins mikil áhrif á hugsunar- hátt menningarþjóða, eins og blaðamenn. Þeir eru allt í senn, fræðarar, leiðbein- endur, túlkendur og dómarar. Þegar tek- ið er tillit til hinnar miklu ábyrgðar, sem á þeim hvílir, verður að teljast eðli- legt, að mikil áherzla verði lögð á að mennta þá sem bezt til starfsins. Festa í skapgerð er blaðamanni þó enn nauð- synlegri en löng skólavist. Fyrst og fremst þurfa samt starfsskilyrðin að vera þannig, að þau örfi manninn til sjálf- stæðra starfa undir fána frjálsrar hugs- unar en ekki meðalmennsku. NORBÆNT VINABÆJAMÓT (FramhalcL af bls. 176) Guðjónsson flutti stutta ræðu um Hall- grím Pétursson og skáldskap hans. Mælti prófastur á sænsku. Síðan sungu íslenzku gestirnir sálminn „Víst ertu, Jesús, kóng- ur klár“, og þá allir viðstaddir „Fögur er foldin", hver á sínu máli. Var þetta einföld en hátíðleg stund í hinum ný- vigða helgidómi. Frá Saurbæ var ekið að Ferstiklu, en þangað buðu Loftur Bjarnason, forstjóri Hvals h.f., og frú hans til ágætrar veizlu. Var þar sungið og rabbað, en J. Paulsen, sem nú var heill að nýju, hélt athyglis- verða ræðu um norræna samvinnu og norræn vandamál ekki sízt íslenzk, en Paulsen er hagfræðingur og fjármálamað- ur. Þökkuðu menn gestgjöfunum rausnar- lega veizlu. Síðan var ekið heim. Veður hafði verið fremur kalt um daginn, en ekki hafði rignt. Miðvikudaginn var haldið kyrru fyrir. Fulltrúar frá vinabæjunum fimm hittust heima hjá formanni N.F. á Akranesi, Hálfdani Sveinssyni og ræddu um ýmis mál bæjanna og sambandsins, m. a. um næsta vinabæjamót, sem halda skal í Vastervik að þremur árum liðnum. Iílukkan hjálf sjö um kvöldið hittust allir gestirnir og gestgjafarnir við Bama- skólann. Fóru þar kveðjur fram, og skild- nst menn ánægðir eftir skemmtilegt og fræðandi vinabæjamót og sannfærðir um, að það hefði orðið til að treysta menn- ingartengsl milli bæja og landa. Ragnar Jóhanrmsson. íslandsmeistarar í knattspyrnu 1957. Akurnesingar hafa orðið íslandsmeistarar i knattspyrnu 1957 og vinna nú þennan tit.il í 4. sinn. Miklar deilur hafa staðið um val leik- manna til að keppa við hin erlendu lið á þessu sumri. Hér verður enginn dómur lagður á það til eða frá. En hvað sem um það má segja, er slæmt, að miklar og viðvarandi viðsjár þurfi að vera um slíkt val, og hæfir vart þroskuðum íþróttamönnum eða frömuðum þeirra. En hvað sem öllu þessu liður, verður hinu ekki neitað, að skárstir eru þó Akumesingar af islenzkum leikmönnum, um það mun vart verða deilt. AKRANES 187
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.