Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 56

Akranes - 01.07.1957, Blaðsíða 56
MœSgurnar á SteinssíöSum. verulega hugsjónamaður, að ýmsu leyti stærri í brotum og sniðum en ókunnugir ætla, þótt hann hefði ýmissa hluta vegna ekki aðstöðu til þess að fylgja því eftir, eða láta þar til sín taka. Hann var ígul- góður drengur, sanngjarn og prúður, og ágætur í allri viðkynningu. Guðmundur var þó nokkuð hagmæltur, en ekki lét hann mikið á því bera. Um Guðmund Gunnarsson er dálítið ítarleg grein í 1.— 2. tbl. Akraness 1949, og eru þar birtar nokkrar vísur eftir hann. Guðmundur var trölltryggur dáða- drengur. Minnisstæður maður, sem ó- mögulegt er að gleyma, vegna mannkosta og drenglyndis. Aldrei heyrði ég Guð- mund hallmæla fólki eða tala illa um aðra, og mun það fremur óvanalegt, en það er ekki lítill kostur á einum manni. Sumum mun hafa fundizt Guðmundur dálítið grobbinn gagnvart eigin vinnu- brögðum á yngri ármn. Ég hygg að margur hafi grobbað meira án nokkurra sérstakra verðleika. Hann var áreiðanlega mjög liðtækur sláttumaður á yngri árum, og líklega góður bindingamaður, þvi að hann var lagvirkur. Ég hygg að hann hafi þá líka verið vel fær til átaka, þótt ég haldi hins vegar, að hann hafi verið fremur sígandi maður, hægur og þungur, en til að hamast í löngum skorpum. Hann var yfirleitt hæglátur maður og hógvær. Maður, sem enginn styr stóð um, né stormur af. Hann var þéttur fyrir, óáleitinn og vinsamlegur við alla, er hann hafði skipti við, en batt órjúf- andi tryggð við vini sína. Hinn 28. júní i8gg kvæntist Guð- mundur Gunnarsson sinni ágætu konu, Sigurlínu Margréti Sigurðardóttur, smá- skammtalæknis í Lambhaga og síðar í Lambhúsum á Akranesi. Var Sigurlín fædd að Hurðarbaki í Svínadal 13. nóv. 1877, og var hin mesta myndar- og gæða- kona. Ákaflega prúð, fíngerð og elskuleg í framkomu allri og viðkynningu. Hún var vel verki farin og hafði ágæta söng- rödd. Hennar og Margrétar dóttur henn- ar er sérstaklega getið í 4.—6. tbl. 1952, bls. 52—53- Guðmundu á Steinsstöðum og Sigurlín áttu aðeins tvö börn: 1. Gunnar Lárentius Guðmundsson, sem bráðlega verður hér betur getið. 2. Margrét, fyrrnefnd. Hún var ákaf- lega vel menntuð, tJtlærð af Kenn- araskólanum, og var um mörg ár kennari hér og í Reykjavík. Síðar lærði hún ljósmóðurfræði utanlands og innan. Varð frami hennar skjótur á þeim vettvangi, því að hún var ráðin forstöðukona hinnar nýju fæð- ingardeildar Landspítalans. Því mið- ur naut hennar ekki lengi við í því starfi, þvi að nú sótti fast á hana ólæknandi sjúkdómur. Hún andaðist í Reykjavik hinn 21. marz 1952, og var sárt saknað af öllum er hana þekktu. Sigurlín á Steinsstöðum andaðist 23. marz 1943. Guðmundur Gunnarsson andaðist hins vegar 7. október 1953.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.