Akranes - 01.07.1957, Síða 58

Akranes - 01.07.1957, Síða 58
byggt þarna afburða vandað íveruhús úr isteini, svo og nauðsynleg skepnuhús. Það er út af fyrir sig ekkert furðulegt, en þegar Gunnar sagði mér hve skuldimar á þessu eru litlar, þá varð ég alveg undr- andi. Af því er ljóst, að á ævinni hef- ur ekki verið farið illa með líðandi stund og fjármuni. Það er og ljóst, að fjöl- skyldan öll hefur þarna verið hjálpleg og að unnið sem einn maður, og má einn- ig af því mikið læra. Sem betur fer, eru enn til mörg slík fyrirmyndarheimili á landinu, enda þarf þeim fremur að fjölga en fækka, það sýna ýmsar blikur, sem nú eru á lofti, svo í einkalifi sem á almennum vettvangi. Börn Gunnars og Guðríðar eru þessi: 1. Guðmundur, bifreiðastj., kvæntur Huldu Jóhannesdóttur úr Keflavík. Þau eru búsett við Brekkubraut 2. Þeirra dóttir Guðríður. 2. Svava, gift Jóni Eyjólfssyni frá Bræðraborg. Þau eru búsett við Brekkubraut 6, og eiga einn son, Gunnar að nafni. 3. Halldóra, gift Einari Árnasyni frá Sóleyjartungu. I>au eru búsett við Brekkubraut 4, og eiga 3 syni: Árna, Gunnar og Martein. 4. Sigurlín, yfirhjúkrunarkona við Sjúkrahús Akraness. 5. Sigurður, kvæntur Guðmundu Bun- ólfsdóttur frá Gröf. Þau eru búsett á hinum nýrri Steinsstöðum og eiga einn son, Runólf að nafni. 6. Gunnar býr með Jóhönnu Þorleifs- dóttur, ættaðri af Vestfjörðum. Þau búa á Suðurgötu 120. Þeirra börn: Sigurður, og stúlka óskirð. 7. Ármann, heima. 8. Sveinbjörn, lærlingur við hjólhesta- viðgerðir. 9. Guðrún, heima. Eins og hér má sjá, hefur það ekki hentað Guðríði og Gunnari að sitja auð- um höndum og hafast ekki að, enda hafa þau ekki gert það. Þau hafa bæði unnið mikið, verið nýtin, þrifin og reglusöm og hugsað afburðavel um sitt stóra heimili. Þau eru bæði framúrskarandi vandaðar og prúðar manneskjur, sem ekki mega vamm sitt vita í neinu. Þau eru bæði hlédræg og koma lítt við sögu utan sins stóra heimilis. Guðríður er óvenjulega þrifin, nostursþrifin, eins og móðir henn- ar. Á yngri árum sínum hafði Gunnar mjög góða rödd (tenór). Þrátt fyrir það var hann mjög tregur til að gerast félagi og söngmaður í karlakórnum Svanir. Þar var hann þó mjög lengi, en mikið þurfti að ganga á eftir honum, eða rétt- arasagt að þvinga hann til að syngja þar einsöng. Á þeim vettvangi var ekkert að honum nema hlédrægnin, sem var um of. Þar minnist ég og þakka hina sönnu prúðmennsku, ástúð og einlægni, svo og alla vináttu fyrr og síðar. Hann er trölltryggur afbragðsmaður. Árið 1954 kaupir Guðjón Friðbjörns- son frá Bakkabæ, en hann er bróðurson- ur fyrrnefnds Skúla, sem fyrstur byggði þarna. Guðjón er sonur Friðbjamar Sig- valdasonar í Bakkabæ og konu hans Kristjönu Stefánsdóttur. í Bakkabæ var mikil fátækt, m. a. af því að húsbóndinn gekk ekki heill til skógar. Guðjón fór því snemma að vinna fyrir sér og fór til sjós svo fljótt sem kraftarnir leyfðu Þar fékk hann góðan skóla, því að hann var t. d. lengi með Bjarna Ólafssyni. Guðjón gekk á Stýrimannaskólann 1939 og 1940 og útskrifaðist þaðan. Síðari árin hefur hann verið skipstjóri á mörgum bátum hér. I bili hefur hann látið af sjó- sókn vegna lasleika, en vonar að þangað fari hann fljótlega aftur. Guðjón er nú að stækka húsið á Steins- AKRANES 194

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.