Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 5

Freyr - 15.09.1978, Page 5
FREYR BÚNAÐARBLAÐ nr. 18, september 1978 74. árgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON ÓLI VALUR HANSSON Ritstjóri: JÓNASJÓNSSON Aðstoðarritstjóri: JÚLÍUS J. DANÍELSSON Heimilisfang: BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK Áskriftarverð kr. 3000 árgangurinn Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bændahöllinni, Reykjavik, sími 19200 Ríkisprentsmiðjan Gutenberg Reykjavik — Sími 84522 EFNI: Agalfundur Stéttarsambandsins Fundargerð aðalfundar Skýrsla formanns Stéttarsambandsins Þingfulltrúar teknir tali Stör? markaðsnefndar Ársfundur norsku bændasamtakanna Tölur um fóðurbæti, áburð og búfé Útflutningur vörutegunda Verðlagsgrundvöllur landbúnaðarafurða Meðalstærð búa í ærgildum Riðuveiki eða riða í sauðfé Rfialfundur Stéttarsambandsins Þetta hefti Freys er aS venju helgað aðalfundi Stéttar- sambands bænda, sem að þessu sinni var haldinn á Akureyri dagana 22.—31. ágúst. Heítið verður sent til allra bænda landsins eftir því sem skrá blaðsins yfir þá sem ekki eru áskrifendur nær til. Sú skrá er því miður ekki e'mhlít þó stöðugt sá leit- ast við að leiðrétta hana eítir bestu fáanlegum upplýs- ingum. Stöðugt verða breytingar á ábúð og væri það ve! þegið að fá upplýsingar um það sem í Ijós kemur við þessa útsendingu blaðsins að er rangt eða ef einhverja vantar í skrána. Einhverjum kann að þykja það orka tvímælis hvort að birta eigi allt þetta efni í blaðinu, sem óneitanlega verður allfyrirferðarmikið og nokkuð einhæft að efni íyrir vikið. Á það ber þó að líta að Stéttarsambandið gefur ekki út aðra ársskýrslu en þessa. Rétt er þó að benda á að í Árbók landbúnaðarins, sem gefin er út af Framleiðsluráði landbúnaðarins, flytur jafn- an margvíslegt efni sem kjara-, framleiðslu- og sölu- málin, og að sjálfsögðu ársskýrslu Framleiðsluráðsins. Þeir sem fylgjast vilja vel með þessum málum ættu að hafa til þess góða möguleika með því að kaupa Árbókina og Frey. Og er í því sambandi ástæða til að benda á að ekki er nóg að fá þetta eina blað Freys — því að oft er fjallað um þessi mál í öðrum heftum en ,,Stéttarsambandsblaðinu“ eins og þetta hefti er oft kallað. Það hefur stundum komið til tals hvort eðlilegra væri að allir bændur fengju Frey sendan, sem félagsblað, eins og tíðkast hjá ýmsum hagsmunasamtökum en þá er við- komandi blað að sjálfsögðu kostað af félagagjöldum. Út á þessa braut hefur þó ekki verið farið, og verður að sjálfsögðu ekki gert nema að ákvörðun bændasamtak- anna, ef það reyndist vilji meirihluta bænda. í stað þessa er mönnum það frjálst hvort þeir kaupa blaðið eða ekki. Áskriftagjöldunum er enda stillt mjög í hóf og reyndin er sú að ætla má að um 70—80% bænda kaupi Frey. Þetta hlutfall mætti gjarna hækka og því F R E Y R 615

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.