Freyr - 15.09.1978, Síða 22
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 beinir þeim
tilmælum til yfirdýralæknis, að reynt verði svo sem
framast er unnt að hefta útbreiðslu fjárkláða og út-
rýma honum sem allra fyrst. Skorar fundurinn á
samtök bænda að styðja yfirdýralækni ötullega í því
starfi.
Samþykkt samhljóða.
Jón Guðbjörnsson flutti einnig tillögu
allsherjarnefndar um raforkuverð:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn á Akur-
eyri 29.—31. ágúst 1978, ítrekar fyrri kröfur um
ódýrara rafmagn til fóðuriðnaðar og súgþurrkunar.
Jafnframt leggur fundurinn áherslu á, að almennt
raforkuverð í landinu sé sem jafnast, og telur það
mikið réttlætismál. Ennfremur bendir fundurinn á
nauðsyn þess að hraða uppbyggingu þriggja fasa
rafmagnslína í sveitum.
Felur fundurinn stjórn Stéttarsambandsins að
vinna að þessu mikla hagsmunamáli landbúnaðarins
við stjórnvöld.
Sigurður Líndal ræddi ýmsan kostnað
bænda vegna raforku. Ennfremur tóku til
máls Jónas R. Jónsson og Jón Guðbjörns-
son, en síðan var tillagan samþykkt sam-
hljóða.
Jón Guðbjörnsson mælti fyrir tillögu alls-
herjarnefndar um leiðbeiningaþjónustu:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 beinir því
til Búnaðarfélags Islands, að leiðbeiningaþjónusta
þess taki upp meiri baráttu fyrir aukinni hagkvæmni
í búrekstri en verið hefur.
Fundurinn bendir á þann möguleika að nýta betur
starfsemi Búreikningastofunnar í þessu skyni. Eink-
um þarf að koma skýrt fram, hverjar eru helstu
ástæður hins mikla tekjumunar innan bændastéttar-
innar.
Samþykkt samhljóða.
Þá kom fram tillaga allsherjarnefndar um
niðurfellingu söluskatts. Flutningsmaður
Jón Guðbjörnsson.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 ítrekar
fyrri ályktanir sínar um niðurfellingu söluskatts af
öllum búvörum.
Samþykkt samhljóða.
Sigurður Sigurðsson flutti tillögu allsherj-
arnefndar um starfsréttindi búfræðináms:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 ályktar
vegna erindis Búnaðar- og garðyrkjukennarafélags
íslands að fela stjórn sambandsins að taka þátt í
viðræðum við kennarafélagið um starfsréttindi bú-
fræðináms.
Leggja ber áherslu á, að breytingar þær, sem
vikið er að í bréfi kennarafélagsins, þurfa að hafa
langan aðdraganda, ef af þeim verður, en hafa ber
í huga, að búnaðarfræðsla er öllum bændum nauð-
syn.
Samþykkt samhljóða.
Sigurður Sigurðsson mælti einnig fyrir til-
lögu allsherjarnefndar um kynslóðaskipti á
bújörðum:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978, haldinn
á Akureyri 29. og 30. ágúst, felur stjórn sambands-
ins að móta tillögur í samráði við Búnaðarfélag ls-
lands um leiðir að því marki að auðvelda kynslóða-
skipti á bújörðum í sveitum landsins. Sérstaklega
skal bent á þörf fjármagns í þessu skyni, en auk
þess einnig hagræðingar- og ráðgjafarþjónustu.
Samþykkt samhljóða.
15. Tillögur frá lánamálanefnd.
Jón Kr. Magnússon flutti af hálfu nefndar-
innar þessa mótmælatillögu gegn samein-
ingu banka:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 mótmælir
framkominni hugmynd um sameiningu Búnaðarbanka
íslands og Útvegsbanka íslands.
Jafnframt skorar fundurinn á Alþingi og ríkisstjórn,
að Búnaðarbankinn haldi óbreyttri stöðu sinni.
Ljóst er, að fjárhagsstaða þessara banka er mjög
ójöfn, og mundi því slík sameining veikja aðstöðu
landbúnaðarins til lánafyrirgreiðslu.
Þórður Pálsson kvaðst ekki geta sam-
þykkt þessa tillögu ,en Gísli Andrésson
lagði til, að orðið ,,harðlega“ bættist inn í
hana fyrir aftan orðið ,,mótmælir“.
Gunnar Guðbjartsson taldi tillöguna eiga
fullan rétt á sér nú til þess, að Búnaðar-
bankinn gæti haldið stöðu sinni og stutt
sem best Stofnlánadeildina.
Engilbert Ingvarsson studdi tillöguna.
Nefndin féllst á breytingartillögu Gísla
Andréssonar.
Tillagan svo breytt borin undir atkvæði
og samþykkt samhljóða.
632
F R E Y R