Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 27

Freyr - 15.09.1978, Page 27
og lánakjörin eru bundin þeirri endur- greiðslu, en þau mundu versna, ef lánin stæðu lengur hverju sinni. 4. Tillaga um ódýrt rafmagn til fóðuriðn- aðar og súgþurrkunar var send iðnaðar- ráðherra og einnig rædd nokkrum sinn- um við íandbúnaðarráðherra, en án ár- angurs. Þó kom fram tilboð frá Lands- virkjun um, að hún vildi selja tiltekið magn raíorku yfir sumartímann á lágu verði, að uppfylltum tilteknum skilyrð- um. Skilvrði þessi voru þess eðlis, að ekki var talið fært að taka tilboði þessu. Tiikynning Landsvirkjunar fylgir hér með svo og bréf rafmagnsveitustjóra ríkisins, þar sem hann svaraði bréfi mínu um rafmagnsverð til húsahitunar og súgþurrkunar. 5. Tillaga um eflingu innlends fóðuriðn- aðar var send landbúnaðarráðherra. Starfandi hefur verið nefnd á vegum ráðuneytisins til að fjalla um þetta mál, en enn þá hefur ekki orðið árangur af því starfi. 6. Tillaga um könnun á útflutningi heys var send markaðsnefnd og hefur hún unnið allmikið í því máli. Selt hefur verið hey til Noregs og Færeyja og kannaðir möguleikar á heysölu til Grænlands. Tveir annmarkar komu einkum fram í þessu sambandi, þ.e. skortur á bein- um ferðum til markaðsstaðanna í Nor- egi og Grænlandi og skortur véla til að harðbinda heyið, svo það rýrni ekki í flutningum og rýmist betur í flutninga- tækjum, en í athugun er að bæta úr því. 7. Tillaga um könnun atvinnusjúkdóma. Þessi tillaga var send landlækni og rædd við fleiri lækna, m.a. Tryggva Ás- mundsson, sem rannsakaði heymæði nokkuð á námsárum sínum, og Björn Önundarson, tryggingayfirlækni. Tryggingayfirlækni var skrifað bréf, þar sem óskað var eftir, að kannað væri í skýrslum Tryggingastofnunarinn- ar um örorkumat, hvort rekja mætti or- F R E Y R Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambands bænda. sakir til landbúnaðarstarfa. Trygginga- yfirlæknir hefur lýst áhuga sínum á að gera þá könnun, sem farið var fram á, og telur, að það sé unnt að vinna verkið á stuttum tíma úr örorkumatsskýrslum Tryggingastofnunarinnar í Skýrsluvél- um ríkisins. Hins vegar telur hann það ekki tæmandi upplýsingar, sem fáist um atvinnusjúkdóma með þeim hætti. í framhaldi af viðræðum um þetta mál við landlækni fékkst staðfesting á því, að Tryggingastofnunin greiði kostnað við heygrímur fyrir þá bændur, sem þeirra þurfa með. Bréf landlæknis um þetta mál var birt í desemberhefti Freys. 8. Tillaga um að fella niður söluskatt af kjöti og vatnafiski var send fjármála- ráðherra og rædd við fleiri ráðherra, en var talin óframkvæmanleg af embættis- mönnum ríkisins, svo sem fram kom í erindi Höskuldar Jónssonar á auka- fundi sambandsins 30. nóv. sl. Aftur á móti var gengið inn á að auka nokkuð niðurgreiðslur kjötsins við verðlagningu í marsbyrjun, svo sem síðar verður að vikið. 9. Tillaga um könnun á fjölda dráttarvéla, sem notaðar eru án þess, að öryggis- grindur hafi verið á þær settar. 637 L

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.