Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 30

Freyr - 15.09.1978, Page 30
á, að svo verði, auk þess sem ekkert fé er til að lána til jarðakaupa á þessu ári. Þó varð stjórn Stofnlánadeildarinnar við þeim kröfum stjórnvalda að hækka um 3% vexti af öllum lánum veittum eftir mitt ár 1974, og eykur það tekjur deildarinnar á árinu um u.þ.b. 120 millj- ónir króna. Þá var verðtrygging al- mennra lána aukin úr 25% hvers láns í 33%. Þær nýju Iánsumsóknir, sem teknar voru til greina, voru einkum lán til hlöðubygginga og nokkuð af skepnu- húsum við áðurbyggðar heygeymslur, auk véla- og íbúðalána. En vélalánin eru takmörkuð við 350 dráttarvélar alls og bundin sömu takmörkunum um véla- fjölda á býli eins og undanfarin ár. Eng- um nýjum umsóknum vegna vinnslu- stöðva var sinnt að þessu sinni. Lán Lífeyrissjóðs bænda til landbún- aðarins minnka á þessu ári hlutfallslega vegna þess, að hann hefur tekið á sig auknar lífeyrisgreiðslur og skyldulán hans aukist eins og annarra lífeyris- sjóða. Hann lánar þó 1,4 millj. til hvers sjóðfélaga, er byrjar byggingu íbúðar- húss á þessu ári, enda uppfylli hann skilyrði um lágmarksréttindi. Einnig lánar sjóðurinn bústofnskaupalán til kaupa á 175 ám eða 9 kúm á skattmats- verði því, er nú gildir. 18. Tillaga um lán til kaupa á dýrum vélum var send Stofnlánadeild landbúnaðar- ins, en að sjálfsögðu getur ekki orðið af útlánum á því sviði vegna fjárskorts að þessu sinni. 19. Tillaga varðandi breytingar á lögum Stofnlánadeildar landbúnaðarins var send landbúnaðarráðherra. Miklar um- ræður áttu sér stað um málið á ýmsum vígstöðvum, og á endanum var frum- varpið flutt og samþykkt á Alþingi, þó þannig skert, að ríkið leggur ekki aukið fé til deildarinnar eins og ráð var fyrir gert. Samt sem áður hefur það í för með sér umbætur til hags fyrir rekstur deildarinnar, þegar það kemur til fram- kvæmda. 20. Tillaga um rannsókn gæruskemmda og breytt hlutföll á milli þunga gæra miðað við kjöt fór til Framleiðsluráðs og verð- ur til meðferðar í komandi sláturtíð. 21. Tillaga um jöfnun flutningskostnaðar á heykögglum var send landbúnaðarráð- herra. Ekki hefur orðið af lagasetningu um grænfóðurverksmiðjur eins og von- ast var til og undirbúið hafði verið. 22. Tillaga um könnun á gildi landbúnaðar fyrir þéttbýli landsins var tekin til um- ræðu við ýmsa aðila, m.a. Fjórðungs- samband Norðurlands, sem átti frum- kvæði að gerð hennar. Enn þá hefur ekkert gerst í málinu. 23. Tillaga varðandi lántöku vegna stækk- unar Bændahallarinnar fór til viðkom- andi aðila. 24. Tillaga um markaðsleit var send mark- aðsnefnd, og hefur sú nefnd unnið mik- ið á árinu og verður væntanlega gerð grein fyrir starfi hennar hér á fundinum. 25. Fimm tillögur varðandi verðlagsmál voru sendar sexmannanefnd, og voru þær teknar upp af framleiðendafulltrú- unum og verður nánari grein gerð fyrir þeim í sambandi við verðlagsmálin. 26. Tillaga um gerð vinnuskýrslna búreikn- inga bænda var send Búreikningastofu landbúnaðarins. Þá er getið helstu samþykkta síðasta að- alfundar og hverja meðferð þær fengu hjá stjórn sambandsins. Nokkrar minniháttar samþykktir, er gerðar voru, fengu einnig úrlausn, þó þeirra sé ekki getið hér. Önnur mál. Stjórn Stéttarsambandsins hefur fjallað um fjölmarga málaflokka aðra en hér að fram- an hefur verið sagt frá. Fljótlega eftir aðalfundinn í fyrra var skip- að að nýju í Framleiðsluráð landbúnaðarins af háifu sölusamtakanna. Tveir nýir menn 640 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.