Freyr - 15.09.1978, Qupperneq 32
hefur þaS sýnt árangur í aukinni sölu á
fyrri hluta þessa árs.
Þriðja atriðiS var um aðstoð við smjör-
sölu á niðursettu verði. Ákveðið var að
selja smjör á niðursettu verði frá 18. janúar.
Útsöluverðið var ákveðið 880 kr. á kg í stað
kr. 1.342,00 á kg, sem það var í desember.
Ríkið jók niðurgreiðslu sína um 432 kr. á
kg eða í 1.010 kr. Bændur tóku á sig
hækkun þá, sem koma átti á smjörið í
byrjun desember, kr. 339 á kg. Síðan hækk-
aði grunnverð smjörsins 1. mars um 207 kr.
á kg, og var þá hlutur bænda kominn í kr.
546,00 og enn hækkaði það 1. júní um 317
kr., og þá var hlutur bænda kominn í kr.
836 á kg, og þótti þá sýnt, að ekki væri
unnt að halda slíku lengur áfram.
Smjörútsölunni var hætt 10. júlí og var
þá búið að selja á niðursettu verði um 935
tonn af smjöri og birgðirnar höfðu minnkað
úr 1.104 tonnum við áramótin í um 856
tonn 10. júlí. En 17. júlí ákvað ríkisstjórnin
lækkun niðurgreiðslnanna aftur í hið fyrra
horf, þ.e. 578 kr. á kg, og hefur niðurgreiðsl-
an aldrei verið jafn lágt hlutfall af smjör-
verði sem nú eða 21,7%. Hætt er við, að
smjörsala verði lítil, meðan þannig er háttað
verðlagi þess og niðurgreiðslu. Framleiðsla
smjörs á útsölutímabilinu nam um 730 tonn-
um.
Til að standa straum af kostnaði við út-
söluna o.fl. var ákveðið að taka í verðjöfn-
unargjald kr. 5,50 á lítra mjólkur frá ára-
mótum. En heildarútgjöld bænda af smjör-
útsölunni eru um kr. 510 milljónir. Verð-
jöfnunargjaldið var hækkað í 6 krónur á kg
frá 1. júlí til ársloka. Nánar verður vikið að
þessu í sambandi við sölumál búvara al-
mennt.
Úthlutað var úr styrktarsjóði Stéttarsam-
bandsins til 45 aðila á síðasta ári kr. 4.471
þúsund, og voru upphæðir til hvers aðila
frá 80 þúsund kr. til 181 þúsund kr. Á þessu
ári hefur sjóðurinn til ráðstöfunar 8 milljónir
króna. Nokkrir nýir aðilar hafa bæst við
með fullgildar umsóknir, en samt er unnt
að hækka greiðslur til hvers einstaklings
nokkuð eða í 130 þúsund lægst og í 230
þúsund hæst.
Stjórnin hefur tilnefnt eða kosið menn í
ýmsar nefndir og stjórnir. í sexmannanefnd
voru kosnir sem aðalmenn: Gunnar Guð-
bjartsson og Þórarinn Þorvaldsson. í til-
raunaráð Rannsóknastofnunar landbúnað-
arins: Gunnar Guðbjartsson og Hermann
Guðmundsson á Blesastöðum. í stjórn
Framleiðnisjóðs var tilnefndur Gunnar Guð-
bjartsson.
Fulltrúar sambandsins á Landverndar-
þingi voru kosnir sem aðalmenn: Ingi
Tryggvason, Þórarinn Þorvaldsson og Árni
Jónasson.
Fulltrúi sambandsins á Náttúruverndar-
þingi var Hákon Sigurgrímsson.
í verðbólgunefnd var tilnefndur Gunnar
Guðbjartsson. í nefnd, sem landbúnaðar-
ráðherra ákvað að skipa skv. tillögu Búnað-
arþings til að fjalla um vandamál landbún-
aðarins í markaðs- og skipulagsmálum,
voru tilnefndir af sambandsins hálfu: Gunn-
ar Guðbjartsson, Sveinn Guðmundsson,
Sellandi, og Þórarinn Þorvaldsson, Þór-
oddsstöðum. Aðrir nefndarmenn eru: Sig-
urður Jónsson, Kastalabrekku, Sveinn
Jónsson, Kálfsskinni, og Jón Ólafsson í
Geldingaholti, tilnefndir af Búnaðarfélagi
íslands. Formaður var skipaður Sveinbjörn
Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri.
Tillaga Búnaðarþings, sem nefndin á að
fjalla um, er í 7. hefti Freys frá aprílmánuði
sl.
Nefndin hóf störf í byrjun maímánaðar og
hefur haldið allmarga fundi. Hún aflaði sér
margvíslegra upplýsinga og ræddi við fjöl-
marga menn um vandamálin. Á fundi sínum
14. þ.m. gekk hún frá drögum að tillögu til
úrlausnar vandanum. Er það frumvarp, er
felur í sér heimild til kvótakerfis og töku
kjarnfóðurgjalds, er notað yrði bæði til að
bæta upp útflutning búsafurða, er ekki
fengjust greiddar að fullu með útflutnings-
bótafé ríkissjóðs. Einnig til að verðlauna
menn fyrir að draga úr óhagkvæmri fram-
leiðslu, og fleira er í tillögum nefndarinnar,
642
F R E Y R