Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 48

Freyr - 15.09.1978, Page 48
eiginlegan sjóð til aS hvetja til þess, að fólk taki sér frí. En því miður er það svo, að það eru frumbýlingar Koma þarf afleysinga- °s Þeir> sem eru koma sér upp aðstöðu, sem sjaldnast málunum í belra horf — ‘ak,a s“ fr‘-,Þeir kafa sís‘ráð a Þvi- Pf ‘»galega sés, og hafa ekki tima eða gefa ser heldur ekki tima til þess. spurnmg um fjarmuni og ]S[ú, þeir vilja sjálfsagt oft nota orlofspeningana heldur mannafla. til að létta fyrir sér en að fara í frí. En það má segja, að þeir, sem búa við mesta álagið, hafa mesta þörf fyrir fríin. Hvað varðar það að koma afleysingamálum í viðun- andi horf, þá er það náttúrlega spurning um fjármuni og mannafla. Það er ekki neinum vafa undirorpið, að það væri gífurlegt öryggisatriði fyrir bændur að eiga kost á svona þjónustu. En ég tel það vandséð eins og málin standa nú, að þetta sé á næsta leiti, bæði af fjár- hagslegum og framkvæmdalegum ástæðum. En raun- verulega býr bændafólk við mjög mikið öryggisleysi, t. d. í veikindatilfellum. Auðvitað ætti þetta að vera tryggingaratriði, vera hluti af almannatryggingum. Þá er það spurningin um það, hvort hægt sé að fá fólk til að taka að sér afleysingastörf. Það er ekki gott að segja, hvernig það gengi hér, þegar nóg er að gera við allt annað. En þú segir mér, að það hafi reynst auð- velt í Noregi, og vel má vera, að ungt fólk hefði einnig áhuga á slíkum störfum hér. En fyrr en þessi störf eru boðin fram, getur ekki reynt það. Verðjöfnunargjald er ekkert annað en skattur — ef menn endilega vilja tala um skatt. Ég hef lokið þessum stuttu viðtölum með því að spyrja um afstöðu manna til tillagna sjömannanefndarinnar. Hver er afstaða þín til þeirra? Það er ljóst, að við bændur sjálfir verðum að fá í hendur einhver stjórntæki til þess að hafa vald á land- búnaðarframleiðslunni. Það er komin upp sú staða í dag, að það gengur ekki lengur að auka framleiðsluna enda- laust. Hins vegar finnst mér, að þða hafi gætt ansi mikils misskilnings hjá mörgum bændum, þannig að þeir hafa kannski ekki áttað sig á því, hvað um er að ræða. Ljóst er, ef ekkert væri aðhafst, þá kæmu söluerfiðleikarnir á vörunum misjafnlega niður á mönnum. Verðjöfnunar- gjald, eins og hefur verið innheimt, er ekkert annað en skattur, ef menn vilja endilega tala um skatt. Það er þó leið til að jafna þessu, sem á vantar, að allir geti fengið fullt verð, niður á hverja einingu framleiðslunnar. Nú er verið að tala um leiðir til verðjöfnunar, sem jafnframt eru stjórntæki. Kjarnfóðurgjald er í raun og veru ekkert annað en verðjöfnunargjald í þessum skiln- ingi, og er því aðeins ein leið til verðjöfnunar, en þá 658 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.