Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2004, Síða 5

Freyr - 01.05.2004, Síða 5
okkar og fórum í það strax og opnað var fyrir viðskipti með greiðslumark i fyrra skiptið að kaupa greiðslumark. Við lentum illa út úr úthlutunum og það var engin framtíð fyrir okkur önnur. Annað hvort yrðum við að kaupa greiðslumark eða að annar okkar hætti. Þessi kaup reyndust okkur mjög hagstæð. Svo var artrtað Jjárbú á jörðinni, á Gunnarsstöðum II, sem var lagt niður og þið yfirtókuð. Já, þar bjuggu þeir Óli og Gunnar Halldórssynir, frændur mínir. Þeir voru með allstórt Qár- bú og þá voru um 400 fjár á hvor- um parti. Síðan fara þeir í aukna mjólkurframleiðslu og byggja Qós. Þá keyptu þeir kýmar af okk- ur og við féð af þeim. Við ijölguðum svo mikið fénu á árunum 1980 til 1990. Hvernig hagið þið fóðrun og hirðingu? Við emm með féð í tvennum húsum, um 400 og 600 kinda. Framanaf búskaparárum okkar vomm við eingöngu með þurrhey- skap og votheysverkun í flatgryfj- um. Síðan rúllutæknin hóf innreið sína hefúr hún svo orðið árvax- andi hluti af heyskapnum. Þó höf- um við á síðari ámm aftur horfíð til þess í meira mæli að hirða þurr- heyið laust og blása í það með súgþurrkum. Okkur líkar það af- skaplega vel. Það er yfirleitt gott að þurrka hey á þessum slóðum og þegar maður hefur rúlluheyskapinn í bakhöndinni þá er heyskapurinn ekkert vandamál, maður spilar þetta jöfnum höndum. Við sláum yfirleitt mikið í einu og förum svo að rúlla og ef þá er útlit fyrir þurrk þá fúllþurrkum við afganginn. Er þetta þá ekki tvöföld vélaút- gerð? Jú, en við áttum þurrheysút- gerðina, þ.e. heyhleðsluvagn og súgþurrkun í hlöðum, þegar rúllu- vélaútgerðin var keypt. Það er álíka fljótlegt að hirða þurrt hey, sem er þá komið inn í hlöðu, eins og að rúlla en þá er eftir að flytja rúllumar heim. Afréttir? I Þistilfírði em miklar afréttir. Það hagar hins vegar þannig til að margar ár kljúfa landið að endi- löngu og halda jafnframt að fénu en þessar ár em Hafralónsá, Hölk- ná, Sandá, Svalbarðsá og Or- marsá. Næst okkur tilheyrir landið Gunnarsstöðum en síðan taka heiðarlöndin við. Við fömm um 50 km inn til landsins að smala og emm þrjá daga í göngum. Eftir fyrstu göngur er fullorðnu fé aft- ur sleppt en 10 km innan við bæ- inn er þvergirðing milli Hölknár og Hafralónsár sem þá er lokað. Á sumrin rekum við inn fyrir hana um miðjan júlí og lokum þá ein- hvem tíma til að féð komi ekki til baka. I Hvamms- og Dalsheiði, sem er aðalafréttur okkar, em lagðir á 12 menn í fyrstu göngur, af þeim leggjum við þá til 5 menn. Aðrir bæir sem leggja þama til menn, em Holt, Laxárdalur, Brúarland og Hvammur. Þar utan em svo yf- irleitt með í för einhverjir auka- menn sem fara mest ánægjunnar vegna. Þistiljjörður var á sinum tíma þekkt kalsvœði, hefur nokkuð borið á kali í seinni tíð? Nei, við höfúm verið laus við þann vágest á siðari ámm. Hins vegar leiddi kalið til þess að við vomm með stór tún og þurftum þess þegar uppskeran var léleg. Nú þegar þessi tún gefa öll upp- skem þá er heyskapur mjög mikill og menn em farnir að draga mik- ið úr áburðargjöf. Auk þess beit- um við þau bæði á haustin og vor- in. Sérstaða okkar í sauðfjárrækt er annars einkum sú að við búum við þessa góðu afrétti. Við sleppum bara fénu út af túninu og svo fer það sjálft til heiðanna. Þetta em auðvitað ómetanlegir landkostir. Við teljum það vor í harðara lagi ef ekki er farið að sleppa fé í út- haga um 10. júní og emm þá laus- Freyr 4/2004 - 5 |

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.