Freyr - 01.05.2004, Blaðsíða 55
8. mynd. Dæmi um innra skipulag ca. 600 kinda fjárhúsa með samliggjandi
gjafagrindum (gjafagöngum), en garða- og króa skipulagi I öðrum enda
hússins, þar sem settar eru upp einstaklingsstíur að vori.
hvorri kró. Dæmi um hús með
svona skipulagi er á Lambeyrum í
Laxárdal, en þau hús em raunar ná-
lægt því tvöfalt stærri (lengri) en þau
sem 7. mynd sýnir. Reynslan þar
sýnir að þetta skipulag gengur mjög
vel upp íyrir svo stór hús. Agæti
þessa skipulags byggir ekki síst á
því að flutningur fjár innan húsanna
er mjög auðveldur og raunar út úr
húsunum einnig sem er mikilvægt á
sauðburði þegar nýta á aðliggjandi
hús (hlöður o.fl.) og útihólf, t.d. fyr-
ir hópstíur.
Sú hugmynd að innra skipulagi,
sem 8. mynd sýnir, gerir ráð fyrir
að stuttir garðar og krær séu í öðr-
um enda húsanna, en að í megin-
hluta húsanna séu samliggjandi
gjafagrindur eða gjafagangar, hér
tvær samsíða raðir í hvorri hlið
hússins með fjórum gjafagrindum
hvoru megin. Alls væru þama því
8 gjafagrindur og 16 hólf fyrir 25-
30 kindur hvert. Gert er ráð fyrir
að setja megi upp gang á sauðburði
meðfram hliðum gjafagrindahólf-
anna. Auk þess er gert ráð fyrir
göngum milli gjafa/króa - sam-
stæðnanna, þannig að öll umferð á
sauðburði verði sem greiðust.
Uppdrátturinn á 8. mynd er fyrir
um 600 kinda hús, en gæti gengið
fyrir 300 kinda hús með því að
taka aðeins annan helminginn.
Húsin væm þá með fjórum gjafa-
grindum og tveimur stuttum görð-
um. Fyrir slíkt hús væri nægileg
breidd um 10 metrar og gæti þessi
útfærsla því verið skoðunarverð
fyrir þá sem hugsa sér að breyta til-
tölulega mjóum eldri húsum, þar
sem t.d. útfærslan á 7. mynd geng-
ur ekki upp, en hún krefst þess að
húsin séu um 20 m breið.
Bændur hafa reynt ýmsar út-
færslur á innra skipulagi í tengsl-
um við breytingar á gjafatækni í
fjárhúsum á undanfömum ámm.
Þessar útfærslur taka mið af þeim
húsum sem fyrir em og er of langt
mál að ræða hér þó að fróðlegt sé.
Hins vegar er að finna gmnn-
myndir af nokkmm slíkum út-
færslum á www.bondi.is undir
byggingaþjónustunni og fjárhús.
Að lokum
Reynsla sauðfjárbænda víða um
land af notkun gjafagrinda sýnir
að þeim fylgir mikil vinnuhagræð-
ing sé fylgt ákveðnum gmndvall-
arreglum við hönnun þeirra.
Smíða má þær úr jámi eða tré í
mismunandi hlutfollum eftir að-
stæðum og smekk. Við slíkar
breytingar á gjafafyrirkomulagi
þarf að hugsa innra skipulag hús-
anna í heild og hugsa vinnuhag-
ræðinguna með tilliti til allra
veigamestu verkþáttanna, svo sem
fóðrunar, sauðburðarvinnu og
fjárrag. Það virðist reynsla flestra
að ná megi jafn góðum árangri
með sjálffóðrun á gjafagrindum og
með hefðbundinni fóðmn á garða
svo framarlega sem aðgangur er
að fóðrinu á gjafagrindunum allan
sólarhringinn eða því sem næst.
Fóðmninni þarf að stýra með hey-
gæðunum þannig að þegar fóður-
þarfir em mestar fái féð besta hey-
ið en slakara heyið um miðjan vet-
urinn þegar fóðurþarfirnar em
minni. Við sjálffóðrun reynir
meira á slíka stýringu en við hefð-
bundna fóðmn og sömuleiðis á
það að fé sé flokkað í fóðmnar-
hópa eftir holdum og aldri.
Heimild:
Jóhannes Sveinbjörnsson, 1997.
Sjálffóðmn sauðfjár á rúlluböggum.
Freyr 93 (10-12): 409-412.
Freyr 4/2004 - 55 |