Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2004, Síða 14

Freyr - 01.05.2004, Síða 14
hópur meðal stöðvahrútanna eru afkomendur Garps 92-808 og hef- ur All þegar verið nefndur úr hópi Hestshrúta. Prúður 94-834 á á fjórða tug sona í rannsókn. Synir hans eru talsvert breytilegur hóp- ur, meðal þeirra eru feikilega öfl- ugir kynbótahrútar sem vikið er að hér á eftir. Þessir hrútar skora yfírleitt sterkt í kjötmati slátur- lambanna fyrir gerð en sumir þeir- ra eru hins vegar að gefa heldur óhagstætt fítumat og hjá einstaka er veikleiki í ómvöðvamælingu. Lækur 97-843 á þarna líkan fjölda sona og Prúður og hrútamir undan honum sýna yfirleitt feikilega góðar niðurstöður í þessum rann- sóknum og ótrúlega margir topp- hrútar undan honum þó að ekki nái hann að vísu að slá út sonar- syni sína, syni þeirra Als og Leka 00-880. Leki á verulegan hóp af sonum í rannsóknunum í Norður- Þingeyjarsýslu og er með ólíkind- um hve þessir hrútar eru að raða sér í efstu sætin í rannsóknunum þar. Túli 98-858 er einn Garpsson- anna og á hann að þessu sinni flesta syni í rannsókn eða um fímm tugi. Þeir gefa frændum sín- um ekki eftir nema síður sé og eins og fram kemur síðar í þessari grein er með ólíkindum sá fjöldi af fimasterkum kjötgæðahrútum um gerð falla sem em að koma fram undan honum í þessum rann- sóknum. Það er hins vegar ljóst að gagnvart fitu þá er Túli ekki jafn sterkur og Lækur þannig að nokkrir af sonum hans falla á prófí vegna þess að þeir skila óþarflega fítusæknum lömbum. Vinur 99-867 er síðastur Garp- sona sem hér er nefndur til leiks. Hann á um hálfan annan tug sona í rannsóknum haustið 2003. Fram koma feikilega öflugir synir hans en þessar niðurstöður gefa ástæðu til að ætla að gagnvart fítu skorti nokkuð á að Vinur búi þar yfír hliðstæðum kostum og Lækur. Þó að þessar tvær hrútalínur hjá hymdu hrútunum, sem þegar em byrjaðar að blandast, séu fyrir- ferðarmestar þá er verulegur fjöldi annarra stöðvarhrúta sem eiga marga syni í rannsóknum. Bæði Möttull 94-827 og Mjölnir 94-833 eiga þama nokkra syni og miklum hluta af sonum beggja þessara hrúta er það sammerkt að vera að skila of feitum lömbum. Undan Ljóra 95-828 er á annar tugur hrúta i rannsókninni og fyr- ir þá hrúta er mjög áberandi hve kjötmatsþáttur rannsóknarinnar er miklu sterkari en sá hluti sem byggir á mati lifandi lamba, enda er aðall afkomenda hans að hjá þeim er oft ákaflega hagstætt fítu- mat. Þau sömu aðalsmerki er að fínna hjá sonum hálfbróður hans, Sjóðs 97-846, en hátt í þriðja tug sona hans voru rannsakaðir haust- ið 2003. Meðal þeirra eru all- margir verulega athyglisverðir hrútar eins og fram kemur síðar í greininni. Askur 97-835 á um tug sona í þessum rannsóknum og hjá flestum þeirra er ótæpileg fitu- söfnun Akkilesarhæll þeirra. Hálfbróðir hans, Flotti 98-850, á heldur fleiri syni en meðal þeirra er fátt um athyglisverða hrúta, en sterki þáttur þeirra er samt oft fitumatið, öfugt við frændur þeir- ra Askssynina. Bjargvættur 97- 869 á um tug sona og flestir þeir- ra eru nokkuð undir meðaltali. Spónn 98-849 á um tvo tugi sona í rannsóknunum og sýna þeir feikilega breytilegar niðurstöður og er mjög áberandi hjá þessum hrútum að samræmi úr kjötmats- hluta rannsóknar og matsins á lif- andi lömbum er oft ákaflega lítið. Hagi 98-857 á mikið á þriðja tug sona. Niðurstöður fyrir þessa hrúta eru verulega breytilegar en allmargir mjög öflugir hrútar koma fram undan honum og er vafalítið að Hagi hefúr verulega verið vanmetinn sem kynbóta- kind á meðan hann var í notkun á stöðvunum. Undan Ljóma 98-865 er um tugur sona i rannsókninni, niðurstöður fyrir þá eru oft mjög hagstæðar úr ómsjármælingum lambanna en kjötmatshluti rann- sóknar er yfirleitt ekki að skila því sem búast mætti við hjá þess- um hrútum á grundvelli ómmæl- inganna. Aþekkan tjölda sona á Stapi 98-866, fram koma tveir feikilega öflugir hrútar undan honum en að öðru leyti sýna syn- ir hans ekki mikið. Verulega færri kollóttir hrútar eru í rannsóknunum. Mestan fjöl- da sona á Stúfur 97-854 og synir hans eru um leið þeir af kollóttu hrútunum sem eru að skila lang glæsilegastri útkomu í afkvæma- rannsóknunum. Dalur 97-838 á einnig verulegan Qölda sona. Undantekningalítið er fítumat lamba undan þessum hrútum ákaflega hagstætt, en þeir standa tæpast jafhfætis mörgum öðrum hrútum um vöðvaþykkt. Allnokk- ur tjöldi hrúta er í rannsókn undan þeim Hörva 99-856, Arfa 99-873 og Bola 99-874. Öllum er þeim sammerkt að skila nokkrum veru- lega athyglisverðum sonum úr þessum rannsóknum en sem heild eru synir þessara hrúta talsvert breytilegir og á það líklega fremur við um syni Bola en hinna tveggja. Hér á eftir verður fjallað um framkvæmdina á hverju land- svæði. Þar er um leið gerð grein fyrir mörgum af athyglisverðustu hrútunum sem komu fram í rann- sóknunum haustið 2003. í þessari umtjöllun er lögð nokkur áhersla á að draga fram þann greinilega ræktunarárangur sem víða má greina á grundvelli rannsókna á síðustu árum. Þama koma um leið fram þau feikilega miklu áhrif sem greina má frá nokkram þekktum sæðingarstöðvahrútum frá síðustu árum. 114 - Freyr 4/2004

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.