Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2004, Page 29

Freyr - 01.05.2004, Page 29
Mat og mælingar á Iðmb- um haustið 2003 Einn af aðalþáttunum við framkvæmd ræktunar- starfsins í sauðfjárrækt hefur ætíð verið dómar á lif- andi fé. Lengi voru dómar á fullorðnum hrútum þar lang umfangsmesta verkefnið. A allra síðustu árum hefur skipu- lag þessarar haustvinnu breyst ákaflega mikið. Samræmdir dómar á fullorðnum hrútum um allt land hafa verið felldir niður en mörg búnaðarsam- bönd bjóða eftir sem áður upp á dóma á fullorðnum hrútum með líku sniði og áður var. A hinn bóginn hefur sífellt meiri áhersla verið lögð á skipulagt mat og mælingar á lömbum. Þegar ómsjámar komu til notk- unar hér á landi fyrir rúmum ára- tug varð strax ljóst að þama var komið verkfæri sem gerði mögu- legt að framkvæma miklu ná- kvæmari dóma á lifandi fé en áð- ur hafði verið kostur. Þessi tækni var því strax tekin til skipulegrar notkunar í þessu starfi og þær mælingar hafa fengið síaukið um- fang með hverju ári. Arangur þessa starfs blasir við um allt land. Nærtækast er að benda á það að meðaltöl afkvæmahóp- anna úr ómsjármælingunum, sem Qallað er um hér á eftir, em nú talsvert hærri en gerðist hjá allra bestu hópunum fyrir áratug þegar byrjað var að birta slíkar niður- stöður. Sérstaklega hefur umfang á mælingum stóraukist eftir að skipulegar afkvæmarannsóknir með hliðsjón af kjötmati, til við- bótar mælingum og mati á lifandi lömbum, komu til haustið 1998. Síðasta haust vom kynntar hug- myndir um nokkm víðtækara mat á lambhrútum en verið hefur til þessa. Ástæða þess er sú að lamb- hrútavalið er sá þáttur í þessari vinnu sem á, ef rétt er að verki staðið, að geta skilað langsamlega mestum árangri fyrir sauðfjár- ræktarstarfíð í landinu. Á þeim grundvelli er það eðlilegt að þessi þáttur fái mest vægi í haustvinnu í sauðfjárræktinni. Vemleg ástæða er til að gera það val eins ömggt og nokkur kostur er. Láta mun nærri að á hverju hausti komi til ásetnings hér á landi á bilinu 9-11 þúsund lambhrútar. Ljóst er að talsverður hluti fjárbúa í landinu er ekki í virku ræktunarstarfi. Mörg af þessum búum kaupa ásetningshrúta af búum þar sem skipuleg ræktun er stunduð. Síð- ustu haust hafa verið í skipulegu mati og mælingum á vegum bún- aðarsambandanna um 10 þúsund hrútlömb á hverju ári. Sú viðmið- un hefúr alloft verið nefnd að fyr- ir hvem lambhrút sem endanlega komi til ásetnings eigi að meta og mæla 3-4 hrútlömb, aðeins á þann hátt er líklegt að við val lambhrút- anna fari fram vemlega vandað val ásetningshrútanna, þar sem tekið er tillit til allra þátta í rækt- Freyr 4/2004 - 29 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.