Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.2004, Side 33

Freyr - 01.05.2004, Side 33
kvæmdar af verulegri nákvæmni. Önnur skýr staðfesting þess er síðan sá ótvíræði ræktunarárangur sem blasir við í niðurstöðum þess- ara mælinga á síðustu árum. Einstakir afkvæmahópar Hér á eftir verður nokkuð vikið að einstökum afkvæmahópum haustið 2003. Þeirri umljöllun verður mest beint að hrútunum sem að þessu sinni voru að mæta tii leiks með sín fyrstu afkvæmi eftir notkun á stöð, en einnig vik- ið að öðrum hrútum sem áttu stóra lambahópa þar sem fram komu skýr einkenni. Líkur munur og áður kemur fram á milli afkvæmahópa undan hymdu og kollóttu hrútunum. Af- kvæmi kollóttu hrútanna mælast að öðru jöfnu með heldur minni bakvöðvaþykkt en þeirra hymdu, þó að stöðugt sæki þeir á hymdu hrútana í þeim efnum, stig fyrir lögun vöðva er einnig að jafnaði heldur lægri hjá kollóttu lömbun- um en þeim hymdu. Afkvæmi kollóttu hrútanna mælast hins vegar með talsvert meiri fítu á spjaldhrygg en hymdu lömbin þó að vel þekkt sé að sá samanburður snýst að verulegu leyti við þegar kemur að fitumati hjá sláturlömb- um undan þessum tveimur hrúta- hópum. Leki 00-880 var hrútur sem skartaði glæsilegum niðurstöðum frá afkvæmum sínum áður en hann kom til notkunar á stöð. Hin- ir feikilegu ræktunaryfirburðir hans vom rækilega staðfestir af niðurstöðum fyrir fádæma stóran afkvæmahóp undan honum haust- ið 2003. Eins og sjá má í töflu i vantaði lítið á að hálft þúsund lambhrúta undan honum kæmi til mats og mælinga haustið 2003. Það eitt segir vemlega mikið um gæði afkvæmanna. Margir hrútar á stöðvunum hafa fengið talsvert meiri notkun fyrr og síðar en eng- in dæmi em nokkru sinni um álíka stóran afkvæmahóp sem komið hefur til skoðunar. Yfirburðir hjá afkvæmum hans vom lika feiki- lega miklir eins og sjá má í töflu 1. Bakvöðvaþykkt var ákaflega góð, þó að örfáir hópar drægju þar ögn lengra strá, vöðvinn var vel lagaður og þessu til viðbótar var fita á spjaldhrygg hjá afkvæmum hans minni en hjá afkvæmum nánast allra annarra hrúta. Hlið- stæða yfirburði má sjá fyrir stóran hóp gimbra undan honum líkt og hjá hrútlömbunum. Lömbin und- an Leka voru mörg fádæma þroskamikil, bollöng og vöðva- stælt en vegna lítillar fitu stundum ögn hrjúf í átaki. Ullargæði hjá þeim vom hins vegar oft slök. Margir fleiri af nýju hrútunum á stöðinni á Möðruvöllum úr hópi hymdu hrútanna vom að sýna at- hyglisverðar niðurstöður. Fífill 99-879 hafði fengið takmarkaða notkun og átti því ekki stóran af- kvæmahóp. Lömbin undan hon- um sýndu samt, eins og vænst hafði verið, feikilega mikla yfir- burði í vöðvaþykkt þar sem hann var einn af þeim hrútum sem skar- aði þar mjög fram úr eins og tafla 1 sýnir. Þó að eitthvað hafi á skort að Fífill skilaði hjá afkvæmum sínum jafn afgerandi læraholdum og sumir bestu hrútanna á stöðv- unum held ég það hafi verið ákveðin mistök íslenskra sauðfjár- ræktenda að nýta ekki betur en raunin varð hina miklu yfirburði um bakvöðvaþykkt sem þessi hrútur hafði fram að færa. Þeir Eir 00-881 og Moli 00-882 standa eins og tafla 1 sýnir með nákvæmlega sama meðaltal um bakvöðvaþykkt hjá sonum sínum haustið 2003, Eir með um helm- ingi fleiri syni en Moli. Lögun vöðva er afbragðsgóð hjá lömbum undan þessum hrútum og fita nokkuð undir meðallagi. Báðir eiga mjög góða gimbrahópa og bakvöðvaþykkt gimbranna undan Mola er meiri en hjá dætrum nokkurs annars af stöðvarhrútun- um haustið 2003. Báðir þessir hrúta skildu eftir sig stóra hópa af afbragðsgóðum lömbum, lömb undan Eir voru ekki jafh væn eins og undna Leka og Mola en feiki- lega vel gerð og lambhrútar undna Mola voru með hærri lærastig en synir nokkurs annars af hymdu norðanhrútunum haustið 2003. Enn ein stórstjaman, sem fram kom í hópi hymdu hrútanna frá Möðruvöllum, var Hylur 01-883. Undan honum var feikilega stór lambahópur. Þessi lömb höfðu kosti eins og bestir verða í lamba- kjötsframleiðslu, þau voru með feikilega þykkan og vel lagaðan bakvöðva og litla fitu og öflug lærahold. Mörg af þessum lömb- um eru hreinhvit þannig að í heildarstigum skomðu þau meira en lömb undan öðmm hrútum. Hylur var haustið 2003 að skila í afkvæmum sínum yfirburðum sem vom langt umfram það sem góðar niðurstöður úr afkvæma- rannsókn hans árið áður gátu gef- ið fyrirheit um. Eldri hymdu hrútamir á Möðm- völlum áttu margir stóra af- kvæmahópa og vom að skila góð- um lömbum þó að þeir stæðust ekki samanburð við það stórskota- lið sem kom með nýju hrútunum sem fjallað er um hér að framan. Eins og ætíð var talsvert af fá- dæma góðum lömbum undan Læk 97-843 en eins og áður er lamba- hópur undan honum ögn breyti- legur. Flotti 98-850 skilar góðum vöðva og fremur lítilli fitu. Einnig var margt glæsilamba undan þeim Bessa 99-851, Lóða 00-971 og Dóna 00-872. Af nýju kollóttu hrútunum á Möðmvöllum átti Styggur 99-877 ívið flesta syni í skoðun. Lömbin undan honum vom væn, bollöng, með fremur góða bakvöðvaþykkt Freyr 4/2004 - 33 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.