Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 42

Freyr - 01.05.2004, Qupperneq 42
Áhættuarfgerðin er aftur á móti VRQ. Vemdandi arfgerðin er síð- an táknuð sem AHQ og hún er sjaldgæfust af þessum þremur í ís- lensku fé. I flestum erlendum kynjum er verið að keppast við að rækta upp arfgerðina ARR, sem telst gefa mesta vemd fyrir riðu en eins og áður segir þá hefúr þessi arfgerð ekki fundist enn hjá ís- lensku sauðfé. Rétt er að vekja at- hygli á því að hver einstaklingur hefur að sjálfsögðu tvær slíkar erfðaraðir á sitt hvomm litningi í samstæðu pari. Þær geta báðar verið eins og er einstaklingurinn þá arfhreinn og öll afkvæmi hans erfa sömu arfgerð frá honum. Þær geta hins vegar verið mismunandi og er einstaklingurinn þá arf- blendinn. Þá erfa afkvæmin sitt hvora arfgerðina til helminga að jafnaði. Þróun hrútastofnsins Á STÖÐVUNUM Ef við hugum aðeins að þróun hrútastofnsins á stöðvunum á þeim árum, sem þessar greiningar hafa verið gerðar, þá skiptir þar mjög i tvo hópa á milli hymdu og kollóttu hrútanna. I upphafi var talsvert af kollóttu hrútunum með áhættuarfgerð og hlutfall slíkra hrúta hærra en meðal þeirra hym- du. Núna em hins vegar allir koll- óttu hrútamir á stöðvunum með hlutlausa arfgerð. Kollóttir hrútar með vemdandi arfgerð hafa ekki komið fram í hópi stöðvarhrúta frá því að þessar greiningar hóf- ust. Hjá hyrndu hrútunum hefur þróun orðið á allt annan veg. Þar hafa allar arfgerðimar verið að finna frá upphafi. Meðal hymdu hrútanna á stöðvunum hefur hins vegar orðið hlutfallsleg ljölgun hrúta með áhættuarfgerð á allra síðustu ámm. Aukningu á áhættu- arfgerðinni virðist að talsvert stór- um hluta mega rekja til einn ætt- föður (Þéttis 91-931). Hins vegar var Garpur 92-808, sem hefur haft mikil áhrif í hrútastofninum á undanfomum ámm, með vemd- andi arfgerð sem nokkrir af af- komendum hans hafa erft frá hon- um. Allir þekkja að forystufjár- stofninn er ákaflega lítill og mætti því ætla að hann gæti verið erfða- lega einsleitur. Því er hins vegar öfúgt farið hvað varðar breytileika í príongeninu þar sem allar arf- gerðir hafa fundist í forystuhrút- unum á stöðvunum og kemur það nokkuð á óvart. Rétt er að benda á að allir hrút- ar, sem em á stöðvunum í dag og hafa áhættuarfgerð, em arfblendn- ir, þ.e. þeir hafa arfgerðina sem við ritum VRQ/ARQ. Þetta þýðir að aðeins helmingur afkvæma þeirra erfír að jafnaði áhættuarfgerðina og mjög góðir möguleikar eru á að finna afkvæmi undan þeim sem bera ekki áhættuarfgerð. Á stöðv- unum hafa aldrei verið arflireinir hrútar með áhættuarfgerð (VRQ/VRQ) nema tveir af Freys- hólahrútunum. Til gamans má nefua það að einn hrútur, Hængur 98-848, var arfblendinn áhættu/mótstöðu, þ.e. með arf- gerðina VRQ/AHQ, þannig að helmingur afkvæma hans hefúr að jafnaði erft frá honum vemdandi arfgerð, sem hann sjálfur hafði greinilega erft frá Garpi föður sín- um, en hinn helmingur afkvæma hans hefur hins vegar erft frá hon- um áhættuarfgerð sem Hængur hefur fengið frá móður sinni. I sambandi við þessar ræktunar- áætlanir í öðmm löndum hefur mikið verið spurt spumingar sem einnig er eðlilegt fyrir okkur að velta fyrir okkur. Er mögulegt að þessar arfgerðir í príongeninu tengist að einhverju leyti öðmm eiginleikum hjá fénu? Ef svo er þá er ljóst að við gætum samtímis vali eftir arfgerðum príongensins haft vemleg áhrif á slíka tengda eiginleika. Nokkuð er komið fram af rannsóknum á þessu erlendis og unnið að fleiri verkefnum á þessu sviði. Ut frá þeim niðurstöðum sem birst hafa virðast góðu heilli ekki koma fram neinar almennar vísbendingar um slík tengsl eigin- leika. Til em rannsóknir úr minni hópum, þar sem slík tengsl má greina, en þá virðist mega rekja þau til ákveðinna áhrifamikilla einstaklinga í ræktunarstarfi í við- komandi stofni. I þeim tilfellum má ætla að um sé að ræða tíma- bundið fyrirbæri en ekki almenn lífeðlisfræðileg tengsl. Til gamans má nefna að í nýlegri hollenskri rannsókn á Texel fé þar i landi koma fram vísbendingar um tengsl hlutlausu arfgerðarinnar við þéttan vöxt. Nú er alls ekki mögulegt að yfirfæra slíkar niður- stöður milli ræktunarhópa, hvað þá fjárkynja, en slík niðurstaða ætti samt að vera frekar jákvæð út frá ræktunarstefnu okkar. Ef til vill mætti líta á áratuga úrval fyrir þéttu vaxtarlagi í íslensku fé sem hugsanlega skýringu á því hvað þessi arfgerð (ARQ) er algeng í stofninum! Reyndar er ARQ-arf- gerðin talin vera uppmnalega arf- gerðin í príongeninu og mætti því ekki siður leita skýringarinnar í uppmna og einangrun íslenska sauðfjárkynsins. Eftir að hafa reynt að skoða arf- gerðagreiningar stöðvarhrútanna og aðra eiginleika hjá afkvæmum þeirra, sem eru miklu betur þekkt- ir en hjá nokkm öðm fé hér á landi, er það mitt mat að mjög ólíklegt sé að arfgerðir í príong- eninu tengist öðmm mikilvægum eiginleikum i fé hér á landi. Val, eins og hér er lagt til, á því nánast ekkert að þurfa að bitna á ræktun- arstarfi með tilliti til annarra eig- inleika í stofninum. Að síðustu skal aðeins bent á þau augljósu áhrif sem þessi ákvörðun hlýtur að hafa í sam- 142 - Freyr 4/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.