Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2004, Síða 50

Freyr - 01.05.2004, Síða 50
Reynsla bænda af notkun gjafagrinda fyrir sauðfé Inngangur Síðasta áratuginn eða svo hefur orðið töluverð þróun í fóðrunar- tækni í íslenskum fjárhúsum. Þessi þróun hefur einkennst af því að svokallaðar gjafagrindur hafa í nokkrum mæli leyst af hólmi hefðbundna garða. Gjafagrindur þessar eru útfærðar með nokkuð mismunandi hætti en eiga það þó sameiginlegt að í þær eru gefnir stórir skammtar af heyi, oftast ein rúlla í senn. Hér er ætlunin að gera stutta grein fyrir mismunandi útfærslum gjafagrinda, sem orðið hafa til á þessum tíma. ÞRÓUNIN - MISMUNANDI GERÐIR GJAFAGRINDA Fljótlega eftir að rúllutæknin ruddi sér til rúms í íslenskum hey- skap komu fram á sjónarsviðið ýmiss konar gjafagrindur sem hentuðu nokkuð vel til útifóðrun- ar en voru tæpast nothæfar til innifóðrunar á grindagólfi vegna mikils slæðings. Þrátt fyrir að þessar grindur væru flestar hring- laga þá áttu þær það sammerkt að sauðfé náði illa að klára úr þeim heyið vegna þess að miðja rúll- unnar var ekki í seilingarfjarlægð. Þessar grindur henta hins vegar stórgripum betur. Veturinn 1994-95 hafði Bú- tæknideild RALA í samvinnu við Bændaskólann á Hvanneyri til prófunar gjafagrind fyrir rúllu- bagga er smíðuð hafði verið hjá Vímeti hf. í Borgamesi eftir hug- mynd Magnúsar bónda í Hrauns- múla í Kolbeinsstaðahreppi. Þessi grind (sjá 1. mynd) var fer- köntuð og hafði það einkum til síns ágætis að tvær hliðar hennar gengu saman inn að miðjunni þannig að féð náði að klára heyið úr grindinni án vand- kvæða. Þar hjálp- aði líka til að jötu- borð var hægt að færa til þannig að fyrst átu kindumar ofan af rúllunni en síðan var stilling- unni breytt þannig að þær komust að neðri hluta hennar. Hliðamar tvær, sem gengu saman, héngu á litlum plasthjólum inni í c-prófiljámi á hin- um tveimur hliðum grindarinnar. Þessir tveir eigin- 1. mynd. Gjafagrind smíðuð hjá Virneti hf. í Borgar- nesi eftir hugmynd Magnúsar bónda i Hraunsmúla í Kolbeinsstaðahreppi. Sigurð Þór Guðmundsson, LBH °g Magnús Sigsteinsson, leikar uppmnalegu Vímets-grind- arinnar, að geta gengið saman og stillanleg hæð jötuopsins, hafa verið nýttir í síðari útfærslum með mismunandi hætti. Gallínn við þessa grind var hins vegar sá að slæðingur úr henni var of mikill til þess að hún hentaði vel á grinda- gólfí, sérstaklega á stálristum. I tilraun á Hesti veturinn 1995-96 var reynd önnur útfærsla sem í grófum dráttum byggðist á því að tvær slíkar grindur vom tengdar saman, göflunum lokað og slæði- grindur settar á langhliðarnar. Rúllan var þá skorin niður í miðju, flött út og slæðigrindumar lagðar ofan á. Þetta dró vemlega úr slæðingi þó að enn væri hann nokkur. Tilraunir bæði á Hesti og 150 - Freyr 4/2004 J

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.