Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 13

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 13
365 renna, heldr hinnm (almennt talað), sem trúir reynast og lofa heilögum anda að upplýsa sig á veginum og eru á leiðinni að eignast kórónu lífsins (Op. 2, 10). Með þeim bvggist kristin kirkja upp 0g þeir eru líka menn- irnir, sem njóta þeirrar blessunar, sem boðskapr Jesú Krists liefir að veita, bæði á guðsþjónustufundum og annarsstaðar. Þá er og það stórt atriði í sambandi við þetta, með hverju hugarfari maðr er, þegar í kirkju er komið. Kristinn maðr kemr til að lofa guð og vegsama, eiusog þegar hefir verið tekið fram, en hann kemr líka til að þola dóm, ekki dóm prestsins vitanlega eða þess, sem prédikar, heldr dóm guðs, dóm birtan í orði hans, dóm yfir syndinni, synd í liugsunum, orðum, verkum 0g van- rœkslu. En þennan dóm vilja margir ekki þola. Miklu fremr vilja þeir dœma sjálfir, og sumir koma fyrst og fremst til að dœma, þá sjaldan þeir koma, Engir eru eins fljótir til að dœma guðs orð einsog þeir, sem sjald- an eða aldrei sjást við guðsþjónustur. Engir munu heldr óvægari í dómum um rceður presta en þessir sömu menn. IJndantekningar eru auðvitað til frá þessarri reglu, en þetta er það algenga. En þessi dómgirni í huga manns, þessi uppreisnarandi í sálinni gegn guði og heilögum sannleik lians, kexnr alveg í veg fyrir, að guðsþjónustan verði manni til nokkurrar blessunar. Þá er og annað, sem miklu máli skiftir. Bœnagjörð er einn af aðal-þáttum hverrar guðsþjónustu. í henni eiga allir að taka þátt. Allir eiga að vera biðjandi, þeg- ar bœn er flutt. Útaf því vill þó bregða, Sumir eru þar sýnilega alls ekki með. Ekki skyldi mann þá undra, ]>ótt þeir hinir sörnu fœri á mis við þá blessan, sem trúuðu fólki veitist í bœninni. Vildi þessir sömu menn skifta um og fara að verða sjálfir með í bœninni, þá hygg eg, að þeir rnyndi brátt hætta að hafa orð á því, að guðsþjónustan veiti ]>eim enga ánœgju né bless- an. Þeir myndi þá bráðlega verða að kannast við, að þangað væri mikla blessan að sœkja. A sálmasöng mætti og minnast. Um ])að er eg í engum engum efa, að það dregr stórum úr ánœgju

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.