Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 22

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 22
374 viS þá: Ekki þwfa heilbrigðir læknis við, heldr þeir, sem sjúkir eru; ekki em eg kominn aö kalla réttláta, heldr synduga. 18. Og lærisveinar Jóhannesax- og Farísear föstuðu, og þeir koma og segja viö hann: Hví fasta lærisveinar Jíóhannes- ar og feerisveinar Farísea? 19. Og Jesús sagöi viö þá: Hvort mega brúðkaupssveinarnir fasta meöan brúðgutninn erihjá þeim? Svo lengi, sem þeir hafa brúögumann hjá sér, geta þeir ekki fastaö; 20. en koma munu dagar, er brúðguminn verðr frá þeim tekinn, og- þá munu þeir fasta á þeim degi. 21. Enginn saumar bót af nýjum dúk á gamafe fat; því þá nemr bótin af því, hiS nýja af hinu gamla, og rifan verðr verri. 22. Og enginn 'lætr nýtt vín á gamla belgi; því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir; heldr láta menn nýtt vín á nýja belgi. Ees; Matt. 9, 9—17; Lúk. 5, 27—39. — Minnisjtexti: Ekki em eg kominn aö kalla réttláta, heldr synduga — Mark. 2, 17. Leví Alfeusson (4. v.J er nefndr Matteus í fyrsta guð- spjaHinu ýMatt. 9, 9). Ef til vill hefir hann heiitið báðum nöfn- unum, eða hann hefir tekið upp nafnið Matteus eftir að hann var kallaðr. Matteusar guSspjall er frá 'hans hendi komið —• að minnsta kosti frumrit þess á arömsku tungumiáli. Leví (eða Matteus) kallaðr: 13., 14. v. Jesús kennir mann- fjöldanum út-á víðavangi, í heimahúsum, á fjöHum uppi, af skipsfjöl, í samkunduhúsum, í musterinu — allsstaðar. Jesús ■kallar Matteus — tollþjón, fyrirlitinn, hataðan, útskúfaöan af þjóð sinni, til þess aS verða postula og guðspjallamann. Eng- inn af oss er of auvirðilegr eða of djúpt sokkinn til aS geta orSiS nýtr verkamaSr í víngaröi drottins vors. Matteus hlýðir lcallinu þegar í staö ; yfirgefr allt, og fylgir Jesú. — ÞaS er aldrei neitt unniS meS því aS hika, líta aftr, spyrna á móti broddunum. Jesús samneytir bersyndugum: 15., 17. v. Hann samneytti þeirn til aS frelsa þá. Vér getum leitt marga þeirra til frelsun- ar, ef vér samneytum þeim á sama hátt og hann, og í sama til- gangi og hann. Jesús kom til aö lækna sjúka, kalla synduga. Hann er ekki aSeins kennari, eSa fyrirmynd, heldr og frelsari. Jesús talar um f'óstur. Meðan Jesús var meS lærisveinum sínum, áttu föstur ekki viö. Þá var fagnaöartími fyrir þá. En nú, á hryggSartímum stríSskirkjunnar, þurfum vér oft aS styrkja trúarlíf vort meS föstum og bœnahaldi. —- Fagnaöarer- indiö var ekki bót á gamalt fat, heldr var þaS nýtt fat, betra og fullkomnara en hiS gamla.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.