Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Blaðsíða 127
ÁRSÞING
10»
3 lögmætir fundir voru haldnir á ár-
inu.
Aðal-ársfundur deildarinnar var hald-
inn 14. apríl það ár. Á þeim fundi fóru
fram embættismannakosningar fyrir
deildina, yfirskoðun fjárhags hennar fyr-
ir 1929 og rædd og samþykt áætlun um
störf þau, sem deildin hefði með höndum
yfirstandandi ár. Þau mál eru þessi: að
haldin yrði samkoma deildinni til arðs,
og að 4 aðrar samkomur skyldu haldnar
á árinu, íslenzk börn og unglingar látin
mæla þar fram vísur og vers á íslenzku.
Þetta var framkvæmt. 30—40 börn og
unglingar hafa tekið þátt í svona fram-
sögn og farist það yfirleitt vel. Deildin
Harpa biður Þjóðræknisfélagið að taka
viljann fyrir verkið. Hún er fátæk efna-
lega og á óhægt með þau vikin, sem bezt
myndi styðja að varanlegu íslenzku-
námi, svo sem söngkenslu og lestri.
Winnipegosis 23. febr. 1931.
F. Hjálmarsson ritari.
V.
Arsskýrsla deildarinnar Iðunn í Les-
lie. Sask.:
Fundir, 3.
Samkomur: Ein arðberandi samkoma,
ein úti-samkoma, ein útbreiðslusamkoma.
Meðlimatala 34 (sem borgað hafa fyr-
ir 1930.)
H. Gíslason skrifari.
VI.
Hr. Carl Thorlaksson flutti munnlega
skýrslu fyrir hönd deildarinnar Frón í
Winnipeg, sem bar með sér að deildar-
félagar voru 247, 1. febrúar 1931. Tekj-
ur á starfsárinu námu $630.00. Var gerð
grein fyrir starfi deildarinnar í heild
sinni, kenslu, fundarhöldum, fyrirlestr-
úm o. s. frv.
Var tekið við öllum þessum skýrslum,
samkvæmt tillögu frá B. B. Olson og J.
Húnfjörð.
Upptalca lestrarfélaga og annara
skyldra stofnana í félagið var tekin fyrir.
J. J. Bíldfell tók til máls og reifaði
málið. Benti hann á nauðsyn þess, að
gerðar væru ráðstafanir til þess, að gera
slíkum félögum kleift að ganga í félag-
ið, án þess að mikill kostnaður félli á
þau. Hefðu komið fram tilmæli í þessa
átt frá félögum, og væri nauðsynlegt að
sinna þeim. Taldi hann hentugast að
vísa málinu til þingnefndar. Gerði hann
tillögu um að forseti skipaði 3 manna
nefnd í málið. J. Húnfjörð studdi og var
tillagan samþykt. Forseti skipaði þessa
menn: J. J. Bíldfell, Á. P. Jóhannsson
og J. Húnfjörð.
Samvinna við tsiand tekin fyrir. J. J.
Bíldfell flutti skörulegt erindi um það,
hve hugurinn til samvinnu við Island
væri miklu sterkari nú en áður hefði
verið. Heimförin hefði haft mikil áhrif
í þessa átt. En hann kvaðst vænast þess
að þetta mál yrði vandlega íhugað á
þinginu,
J. P. Sólmundsson talaði um áhrif Hud-
sonsflóabrautarinnar á framtíð Islend-
inga í álfunni. Var gerður ágætur róm-
ur að máli hans.
1 nefndina voru skipaðir: Rögnv. Pét-
ursson, W. Jóhannsson, Stefán Einarsson,
Ásg. Bjarnason, Mrs. P. S. Pálsson.
Árni Eggertsson notaði tækifærið, á
meðan lítið hlé varð á fundarstörfum,
til þess að minna menn á Selskinnu.
íþróttamál tekin fyrir:
Á. Bjarnason stakk upp á þriggja
manna nefnd. Mrs. F. Swanson studdi.
Samþ. Forseti skipaði í nefndina: Carl
Thorlaksson, Gretti Jóhannsson, Davíð-
Björnsson.
Heimfararnefndarmál tekið fyrir:
J. J. Bíldfell flutti skýrslu sem forseti
nefndarinnar, og visaði að öðru leyti til
skýrslu, sem út kæmi í Tímariti félags-
ins. Skilagrein forseta var á þessa leið:
Herra forseti!
Vér meðlimir Heimfararnefndarinnar
teljum það rétt, nú að vertíðarlokum, að
gefa stutt yfirlit yfir starf nefndarinn-
ar ,þó vitanlega ekki verði unt að fara
ítarlega út í hvert atriði undirbúnings
þess, sem nefndin hefir haft með hönd-