Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1931, Page 141
ÁRSÞING
123
Sú tillaga var feld. Liðurinn síðan
borinn upp og samþyktur.
4. liður samþyktur.
5. liður samþyktur.
Nefndarálitið í heild sinni samþykt.
Fundi var þá frestað til kl. 2 e. h.
* * ¥
Fundur var settur kl. 2. e. h. Fund-
argerningur lesin upp og samþyktur.
Var þá gengið til embættismanna-
kosninga.
Stungið var upp á eftirfarandi mönn-
um til forsetastarfs: Ragnar E. Kvaran,
J. J. Bíldfell, Jónas A. Sigurðssoní Guð-
mundur Árnason, Rögnv. Pétursson.
Þrír síðasttaldir báðust undan þvi að
vera í kjöri. Var þá kosið um hina tvo
fyrstu og hlaut J. J. Bildfell kosning-
una.
Fyrir varaforseta var stungið upp á
R. E. Kvaran og var hann kosinn í einu
hljóði.
Fyrir skrifara var stungið upp á
Rögnvaldi Pétursson og var hann kos-
inn í einu hljóði.
Páll S. Pálsson kosinn í einu hljóði
varaskrifari.
ö. S. Thorgeirsson kosinn'í einu hljóði
fjármálaritari.
B. Dalman kosinn í einu hljóði vara-
fjármálaritari, er Stefán Einarsson hafði
beðist undan kosningu.
Árni Eggertsson kosinn í einu hljóði
féhirðir.
Walter Jóhannsson kosinn I einu hljóði
skjalavörður er ýmsir höfðu afsakað
sig.
Carl Thorlaksson og Grettir Jóhanns-
son voru tveir i kjöri sem yfirskoðun-
armenn og hlaut Carl Thorláksson kosn-
inguna.
Að afstaðinni kosningu embættismanna
flutti Á. P. Jóhannsson eftirfarandi.
Athugasemdir fjármálanefndar við
nefndarálitið í Sýningarmálinu.
t sambandi við síðasta lið, sem ólokið
er að afgreiða, þá lítur fjármálanefnd-
in þann veg á, að ekki hafi komið nein
fjárhagsleg styrkbeiðni frá milliþinga-
nefndinni, er kosin var í fyrra, og varla
kunni að vera um neinn verulegan
kostnað að ræða á þessu ári. Starfið
mun að miklu leyti felast í bréfaskrift-
um og öflun upplýsinga um, á hvern
hátt Islendingar muni geta tekið þátt
í hinni fyrirhuguðu sýningu, er haldin
verður í Chicago 1933.
Fyrir þá ástæðu leggur nefndin til að
þessi liður sé látinn niður falla.
Á. P. Jóhannsson
Ingvar Gíslason
B. Theódór Sigurðsson
G. S. Friðriksson
Rögnvaldur Pétursson gerði fyrirspurn
um, hvort nefndinni væri með þessu
synjað um styrk, ef hún þyrfti hans
með. Taldi hann varhugavert að banna
stjórnarnefndinni að leggja til styrk,
ef hans gerðist þörf, sem væri næsta
liklegt að á daginn mundi koma.
Á. P. J. taldi ekki til þess mundi
koma að til fjárs mundi þurfa að grípa.
Alt starf nefndarinnar væri þannig
vaxið. Hins vegar væri freistandi að
eyða fé, ef því væri beinlínis haldið að
nefndinni.
Mrs. R. Davíðsson sagði að nefndin
hefði ekki komið saman þar til nú fyrir
mjög skömmu, sökum fjarveru for-
manns hennar, en þótti sýnt að án fjárs
fengi hún ekki mikið gert í framtíð-
inni.
Dr. M. B. Halldórsson taldi sjálfsagt,
að nefndinni væri látið í té fé eftir þörf-
um. Mrs. P. S. Pálsson kvað nefndina
enn ekki hafa beðið um neinn styrk og
með þvi að nefndin á næsta ári gæti
naumast meira gert en afla sér upplýs-
inga, þá væru likindi til þess að hún
þyrfti ekki á nema litlum peningum að
halda.
Tillaga fjármálanefndar var þá borin
upp og samþykt með 28 atkvæðum
gegn 24. Nefndar álit sýningarnefndar
var því næst borið upp með áorðinni
breytingu og samþykt.
Séra Rögnvaldur Pétursson bað þá
um leyfi að mega leggja fyrir þingið
mál, sem flokka mætti undir “Ný Mál”
en væri þó í rauninni gamalt og hefir
Félagið haft það með höndum áður.
Tilmæli hefði sér borist frá einni utan-
bæjar deildinni, þess efnis að Félagið