Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Side 34
16
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
Skáphurð — Kaupstaðarferð á Djúpavog — Klettar í baksýn
kemur unglingur á fleygiferð á sleða.
og hrópar: “Frá, frá, frá!”
“Neftóbaksmaður í Horngrýti” er
einkar sniðug mynd. Tóbaksmaðurinn
stendur í vatni upp að höku, uppi yfir
honum hangir tóbaksponta, en of hátt,
þó hann reigi sig aftur á bak. Þarf
mynd þessi eigi neinnar skýringar.
“Pasteurs minning” er hin áhrifamesta
mynd, og hittir markið afbragðsvel.
Dauðinn, í beinagrindarlíki, eins og
við á, situr og horfir dapurlega í eggina
á ljá sínum, sem stórt skarð hefir ver-
ið brotið í. En hver hefir sljófgað sigð
dauðans meir, með nýmælum sínum í
læknisfræðinni, en einmitt Pasteur?
Augljóst er því, að margar teikningar
Ríkarðs eru táknrænar; þær vekja
mann til umhugsunar, því að þar leyn-
ist dýpri sannleikur, en bert verður
við fyrstu sýn.
Með yfirliti þessu hefir þó hvergi
nærri verið þurrausinn sá nægtabrunn-
ur, sem bók Ríkarðs er, aðeins nefnd-
ar þær myndir, sem augað hefir helst
staldrað við, en flestum munum þykja
um auðugan garð að gresja í þessu
myndasafni hans; að blaða í því er eins
og að ganga ur einum sal í annan á
fjölskrúðugu listasafni.
Bókin vakti einnig að vonum athygli
listunnandi manna og hlaut ágæta
dóma. Meðal annars fór dr. Guðmund-
ur Finnbogason um hana svofeldum
orðum í ritdómi í Fálkanum (dags. 10.
júlí 1930);
“1 verkum Ríkarðs myndi erfitt að
draga landamæri listar og iðnaðar, og