Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Blaðsíða 114
96
TfMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
sérstakt verkefni til skemtunar og fróðleiks,
auk starfa er fyrir fundi liggja venjulega til
meðferðar, þannig má í litlum hópi íslensks
fólks oft skapa kvöldskemtun er orðið geti til
stundargleði og ýmsir meðlimir taka þátt í ti!
skiftis.
Meðlimir deildarinnar teljast nú að vera 41.
Inntektir á árinu voru ______________$194.61
Útborganir á árinu __________________ 168.52
I sjóði um áramót ____________________ 26.09
E. Magnússon, forseti
S. ólafson, ritari
Skýrsla deildarinnar “Aldan”, Blaine, lesin
af ritara og viðtekin.
Skýrsla “Öldunnar” yfir árið 1947
Árið 1947 hefir þjóðræknisdeildin “Aldan” í
Elaine, Wash., haft fjóra aðal fundi og tvo
sljórnarnefndar fundi.
Almenna skemtisamkomu hélt deildin 17
júní s. 1. Var hún vel sótt og góður rómur að
henni gerður.
Stærsta málið sem deildin er frumkvöðull að
og beitir sér fyrir, er elliheimilismálið, hefir
nefnd þess máls sýnt lofsverðan áhuga þrátt
fyrir margfalda erfiðleika og hefir nú í samráð-
um við nefnd þá sem lestrarfélagið “Vestri” í
Seattle hefir kjörið því máli til framkvæmdar,
gengist fyrir því að það er nú löggilt félags-
stofnun í samræmi við lög Washington ríkis,
undir nafninu “The Icelandic Old Folks Home,
Inc.”
I sjóði eru nú um $30,000.00 (þrjátíu þúsund
dalir), og horfur eru á að hægt verði að byrja
á elliheimilis byggingu á komandi vori.
Meðlima tala er nú 56, af þeim eru 38 full-
gildir meðlimir, eða þeir sem hafa borgað $1.00
og eiga tilkall til eintaks af þjóðræknis ritinu
Einar Simonarson, vara-forseti
Dagbjört Vopnfjörð, ritari
Skýrsla deildarinnar “Vestri”, Seattle, lesin
af ritara og viðtekin.
Skýrsla deihlarinnar “Vestri” yfir árið 1947
Þjóðræknisfélags deildin “Vestri” í Seattle,
Washington, U.S.A., færir tuttugasta og níunda
ársþingi Þjóðræknisfélags lslendinga í Vestu'-
heimi hugheilar kveðjur með ósk um blessun-
arríka framtíð, megi störf félagsins ávalt vera
þjóðflokki vorum til heilla og farsældar.
Félagið “Vestri”, sem var stofnað fyrir hart
nær hálfri öld síðan, á mjög svo stórmerkilega
sögu að baki sér, heldur enn vel í horfinu.
Það hefir haft 10 starfsfundi á árinu, og hafa
þeir verið mjög vel sóttir, að meðaltali 42 á
fundi. Félagið telur nú um 100 meðlimi.
Mánaðarblaðið “Geysir”, undir stjórn Jóns
Magnússonar, hefir verið lesið á hverjum
fundi af ritstjóranum sjálfum, og bæði skemt
og frætt unga sem aldna.
Jón Magnúss, sent er fæddur og uppalinn t
héraði Egils Skallagrímssonar, og er að lík-
indum einn af afkomendum hans, er prýðilega
vel ritfær og skáldmæltur. Hann hefir verið
ritstjóri “Geysirs” um margra ára skeið og ritað
að mestu leiti í blaðið sjálfur, ekki svo að
skilja að hann vanti að vera einráður um
blaðið, heldur er það pennaleti margra uni
að kenna að þeir hjálpa honum ekki að skrifa
í blaðið.
Blaðið “Geysir” hefir verið mikið aðdráttar-
afl fyrir “Vestri”, einkanlega síðan Jón Magn-
úrsson tók að sér umsjón þess.
Eg efast ekki um þegar við hinir eldri erum
horfnir af sjónarsviðinu, að fræðimenn af
okkar kynstofni munu finna margt fróðlegt og
læsilegt í “Geysir”.
Skemtiskrá undir stjórn séra H. Sigmars
hefir farið fram á hverjum fundi og skemt vel.
Geta má þess að “Vestri” hafði umsjón með
íslendingadags samkomunni síðast liðið sumar.
sem var mjög fjölsótt og hin ánægjulegasta í
alla staði.
Ennfremur má geta þess að félagið hafði
tvær skemtisamkomur, áramóta og 17. júní
samkomur, með góðri aðsókn og fjárhagsleg-
um hagnaði.
Einnig hefir “Vestri” beitt sér fyrir einu hinu
mikilvægasta og þýðingarmesta máli, sem er nú
á dagskrá víða á meðal Islendinga hér vestan
hafs, elliheimilismálinu. Félagið hefir nú
starfandi nefnd sem hefir safnað álitlegri fjár-
upphæð í Blaine elliheimilissjóðinn og mun
halda áfram 1 sömu átt þar til gamalmenna-
heimilið er kornið á stofn. Þar sem hinir ald-
urhnignu af þjóðflokki vorum geta hvílt sig
eftir hita og þunga dagsins — ef þeir óska þess.
í umboði félagsins “Vestri” með einlægum
bróðurhug. J. J. Middal, ritari