Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1948, Blaðsíða 63
PRÓFESSOR KEMP MALONE
45
háskólann í New York, og útgefandi
Dictionary of American Biography í
20 bindum (1929-31). Hinn var Miles
Malone, kennari í sögu við Phillips
Academy, Andover, Massachusetts.
Kemp Malone var þrettán ára, þeg-
ar foreldrar hans fluttust til Georgia.
Þar ólst liann upp og gekk í skóla:
Emory College í Atlanta, Georgia. Út-
skrifaðist hann þaðan (B.A.) 1907. Síð-
ar miklu — 1936 — heiðraði þessi alma
mater (þá EmoryUniversity) þenna
lærða son sinn með því að gera hann
að heiðursdoktor (Litt.D.)
Malone var átján ára, þegar hann
útskrifaðist, en næstu fjögur árin
kenndi hann stærðfræði í miðskólum
(High Schools) í Georgia.
Árið 1911 var Malone skipaður
sendikennari í ensku á Þýskalandi
(Prússlandi). Var hann á vegum Carn-
egte Foundation og kenndi í tvö ár
'ttælt mál enskt (samtal) í tveim Joýsk-
um menntaskólum (Real-Gymnasia),
iyrst í Hinum konunglega Mennta-
skóla í Erfurt, Thuringen og síðara
anð í Hinum konunglega endurbætta
Menntaskóla í Elberfeld í Rínarlönd-
Unum. Þessir menntaskólar kenndu
eitt fornmál (latínu) og eitt nýmál
(frönsku, eða, ef menn vildu heldur,
ensku), og stóðu þannig mitt á rnilli
hlassisku mála skólanna og ný-mála-
skólanna.
Á Þýskalandi vaknaði áhugi Mal-
°nes á forngermönsku mið-aldamálun-
um. Að vísu hafði hann lesið bæði forn-
ensku og Chaucer í skóla, en það var
ekki fyrr en ag jlann fór að langa
hl að kynna sér forngermanskar tung-
Ur °g bókmenntir og samanburðarmál-
fræði hinna indó-germönsku mála. á
^ýzkalandi keypti hann sér hina forn-
ensku málfræði Sievers og las hana.
Þegar Malone kom vestur um haf
1913 réð hann af að fara á háskólann í
Chicago og lesa þar ensku til doktors-
prófs. Aðalkennari hans í enskum
fræðum var John M. Manly, en hann
las íslensku hjá Chester Nathan Gould
og gotnesku, fornsaxnesku og fornhá-
þýsku hjá F. A. Wood. Sanskrit, forn-
persnesku og avesta-mál las hann hjá
C. D. Buck. Hér urðu þá fyrstu kynni
Malones af íslensku: las hann fyrsta
ársfjórðunginn létt laust mál, þá las
hann Egilssögu og um vorið Eddu
Sæmundar.
Eftir ár í Chicago var Malone félaus
orðinn, því stríðið milli Englendinga
og Þjóðverja eyðilagði bómullar-mark-
aðinn í Evrópu og þar með afkomu-
skilyrði manna í Suður-ríkjunum.
Gerðist Malone þá kennari í Culver,
Indiana og kendi þar ensku næsta ár
Þá sótti hann um Ottendorf Memorial
ferðastyrkinn í New York háskóla og
fékk hann. Með þann styrk fór liann
til Danmerkur og var þar næsta ár við
Háskólann í Kaupmannahöfn. Las
þar forn-irsku hjá Holger Pedersen, og
það eigi aðeins í venjulegum tímum,
þrjár stundir á viku, heldur einnig í
jólafríinu og langt fram á sumar — svo
vel líkaði prófessornum við nemand-
ann. Forna islensku las hann hjá Finni
Jónssyni (Ólafssögu helga í Heims-
kring, vísur í Gunniaugs sögu), en nýja
málið hjá Valtý Guðmundssyni. Auk
þess lærði hann dönsku af sjálfum sér
og hefur hún komið honum að góðu
haldi síðan sem lykill að norðurlanda-
málunum.
Haustið 1916 snöri hann vestur á
bóginn og gerðist þá kennari í Þýsku
við Cornell University, þar sem hann
kynntist Halldóri Hermannssyni bóka-
verði.