Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Blaðsíða 19
fjögurra ára náms hefur deildin tekið upp þriggja ára nám í verkfræði sem nægir til BS-
prófgráðu og jafnframt fimm ára nám til MS-prófgráðu. Félagið hefur lagað sig að þessum
breytingum með nýjum reglum um heimild til að kalla sig verkfræðing og breytingum á
lögum félagsins í þá átt að þeir sem útskrifast með BS-gráðu eiga strax kost á því að
gerast félagar.
Rannsóknarverkefni kynnt: Síðastliðin tvö ár hefur félagið og verkfræðideildin gengist
fyrir ráðstefnum þar sem rannsóknarverkefni þau sem unnin eru við deildina voru
kynnt.
Styrktarsjóður J.C. Möller: í reglum um J.C. Möller styrktarsjóðinn segir að sjóðsstjórn
skuli skipuð þremur mönnum, einum frá VFÍ, einum frá kennslumálaráðuneyti (mennta-
málaráðuneyti) og þann þriðja tilnefnir stofnandi sjóðsins, meðan hann lifir og óskar að
nota sér réttinn, en eftir það sendiherra íslands, eða sá fulltrúi Islands í Kaupmannahöfn
er fer með málefni íslands þar. Fulltrúi VFÍ er formaður sjóðsstjórnarinnar.
Að öllu jöfnu skulu rafmagnsverkfræðinemar í lokaáföngum við DTU ganga fyrir
varðandi styrkveitingu, segja reglur sjóðsins. I ár var Hannesi Líndal Þjóðbjörnssyni,
nemanda við DTU, veittur styrkur úr sjóðnum að fjárhæð d.kr. 10.000.
Félagsstarf, fundir, ráðstefnur
Mikið starf er unnið af fjölmörgum verkfræðingum í deildum og nefndum félagsins.
Félagslög VFÍ kveða á um störf deilda og fastanefnda félagsins og er starf þeirra sam-
tvinnað félagsstarfinu. Meginreglan er að menn gefi kost á sér til starfa í fastanefndum
tvö ár í senn, en margir sitja þó mun lengur. Má þar nefna nefndir eins og húsnefnd og
menntamálanefnd. Þar sitja sömu menn ár eftir ár til að tryggja að reynsla og þekking
sem áunnist hefur fari ekki forgörðum. Fjöldi nefnda starfar tímabundið og er ætlað að
fylgja eftir ákveðnum verkefnum til lengri eða skemmri tíma.
Að sjálfsögðu er allt nefndarstarf sjálfboðaliðastarf sem og önnur störf í þágu félagsins.
Vonandi er öllum félagsmönnum ljós sú þakkarskuld sem Verkfræðingafélag Islands
stendur í gagnvart þessum verkfræðingum.
Ráðstefnur, samlokufundir, hádegis- og morgunverðarfundir, tæknidagar og Verktækni
golfmótið: Sjá kafla 1.3 um smaneiginlegan rekstur VFÍ og TFÍ.
Deildir og faghópar: Deildir og faghópar félagsins gangast fyrir fundum, skoðunar-
ferðum og ráðstefnum hver á sínu sviði. Fjórar fagdeildir starfa innan VFI; byggingar-,
efna-, rafmagns- og vélaverkfræðideild. Faghópar á upplýsingasviði og rekstrar- og fjár-
málasviði voru settir á fót fyrir tveimur árum til að sinna faglegu starfi á þessu sviði.
17. febrúar 2000 hittust nokkrar konur með verkfræðipróf til að treysta böndin og ákváðu
að styrkja stöðu kvenna innan stéttarinnar og stuðla að því að konur með verkfræðipróf
tækju jafnan þátt í tækniþróun á við karla. Deildirnar, faghóparnir og kvennanefndin
stóðu fyrir yfir 20 viðburðum á sl. ári.
!»•
Jafnræðisáætlun: Að tilhlutan kvennanefndar var í árslok 2000 settur á fót starfshópur
um fjölskyldu- og jafnréttismál VFI. Hópurinn hefur unnið mikið og athyglisvert starf og
skilaði nú fyrir skömmu „Tillögu að jafnræðisáætlun Verkfræðingafélags Islands". I bréfi
starfshópsins kemur fram að „hópurinn hefur valið að ræða um „jafnræði" í stað „jafn-
réttis", en fyrra orðið þykir víðtækara og ná betur yfir þann vilja hópsins að fjallað sé um
ýmsa minnihlutahópa innan stéttarinnar um leið og rætt er um jafnrétti kynjanna."
1 5
Félagsmál Vfí/TFÍ