Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Page 28
Saga TFÍ: Útgáfunefnd vegna ritunar sögu tæknifræðinnar og sögu Tæknifræðingafélags
íslands héldu fjölmarga fundi á árinu.
Guðmundur Magnússon Sagnfræðingur, höfundur bókarinnar, lauk við handrit hennar í
nóvember á sl. ári og er nú unnið að ritun svokallaðra innskotsgreina um sérstök málefni
eða verkefni. Myndasöfnun hefur gengið vel og er á lokastigi. Ritun bókarinnar er unnin
í samvinnu við Iðnsögu Islendinga og verður hún hluti af þeirri bókaröð. Ritstjóri er
Asgeir Ásgeirsson. Vinna við útgáfu bókarinnar er á lokastigi.
Fundir og ráðstefnur
Ráðstefnur, samlokufundir, hádegis- og morgunverðarfundir, Tæknidagar og
Verktækni-Open, sjá kafla um sameiginlegan rekstur VFÍ/TFÍ.
Rýni 2001 - Florida: Sem fyrr var skipulögð á vegum TFÍ námsferð fyrir félaga í TFÍ og
VFÍ á erlenda grund. Að þessu sinni var stefnan tekin á Flórída í lok október 2001. Ferðin
var auglýst í byrjun maí og seldust sætin 55 sem í boði
voru upp á tveimur dögum. Meðal fyrirtækja sem heim-
sótt voru var hátæknifyrirtækið Lockheed Martin þar
sem veitt var innsýn í innstu innviði vopnaframleiðslu
fyrirtækisins. Háskólinn í Flórída var heimsóttur þar
sem hlýtt var á fyrirlestra á ýmsum sviðum.
Vatnsverksmiðja, vatnsveita og stálgrindarverksmiðja
voru einnig heimsótt. Fyrir suma var hápunktur ferð-
arinnar ferð á NBA-körfuboItaleik milli Orlando og
Seattle Supersonics þar sem fylgst var með æsispenn-
andi tvíframlengdum leik. Undirbúningur Rýnis 2002
sem væntanlega verður farin í september eða október
2003 er hafin og verður ferðin væntanlega auglýst í
byrjun maí 2003.
Námsferð til Flórída.
Rym 2001
Innlent samstarf
Sjá jafnframt kafla um sameiginlegan rekstur VFI/TFÍ.
Mikið starf er unnið af fjölmörgum tæknifræðingum í deildum og nefndum félagsins.
Meginreglan er að menn gefi kost á sér til starfa í fastanefndum tvö ár í senn, en margir
sitja þó mun lengur. Fjöldi nefnda starfar tímabundið og er ætlað að fylgja eftir
ákveðnum verkefnum til lengri eða skemmri tíma.
Að sjálfsögðu er allt nefndarstarf sjálfboðaliðastarf sem og önnur störf í þágu félagsins.
Vonandi er öllum félagsmönnum ljós sú þakkarskuld sem Tæknifræðingafélag íslands
stendur í gagnvart þessum tæknifræðingum.
Deildir og faghópar: KTFI, STFI og landshlutadeildirnar fyrir norðan og austan gangast
fyrir fundum, námskeiðum, skoðunarferðum og ráðstefnum hver á sínu sviði.
Á þessum vetri voru settir á fót fimm faghópar á sviði byggingar-, rafmagns-, og véla-
upplýsinga- og rekstrar- og fjármálasviði. Fyrstu verkefni þeirra tengjast Tæknidögum í
Smáralind.
Samstarf við ýmis félög: TFI er aðili að Staðlaráði og byggingarstaðlaráði og einnig
Lagnafélagi Islands. Félagið á fulltrúa í stjórn Norræna byggingardagsins.
2 4
Arbók VFl/TFl 2002