Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Page 318
tl?
Hliodv/st\
HLJÓÐTÆKNIFRÆÐI
SAMÞÆTTUR HLJÓMBURÐUR
HLJÓMBURÐUR TÓNLEIKASALA
Stefán Guðjohnsen lauk loftskeytamannsprófi 1959og prófi í radíósfmvirkjun 1961.Á árunum 1961 og 1963 stundaði
hann nám í US Coast Guard Engineering Faculty í Wildwood, New Jersey og Groton.Connecticut í Bandaríkjunum i
tengslum við starf sitt sem tæknimaður á Lóranstöðinni á Gufuskálum á Snæfellsnesi. Á árunum 1963 til 1967 stund-
aði hann nám í rafmagns- og rafeindatæknifræði með sérstaka áherslu á hljóðtæknifræði, bæði raf-, byggingar- og
umhverfishljóðtæknifræði.Hann lagði sérstaka áherslu á samþættan hljómburð (Integrated Acoustics) og lauk BS-
gráðu frá OsloTechnical University 1967. Frá 1972 hefur Stefán setið í norrænum sérfræðingahópi á sviði
heyrnarhljóðfræði.(Audiology) NHAT og frá 1977 hefur hann starfað náið með hinu heimsþekkta hljóðmælitækni-
fyrirtæki Briiel & Kjær í Danmörku. Stefán hefur lokið mörgum sérhæfðum námskeiðum á sviði hljóðtæknifræði og
stundað fjölþætta ráðgjöf á þessu sviði síðan 1972.Stefán starfaði sem tæknifræðingur hjá Landssíma íslands 1967 til
1969, og sá þá m.a. um uppsetningu fyrstu 9 sjónvarpssendanna á Norðurlandi, hjá (sal 1969 til 1972 sem forstöðu-
maður rafeinda- og stýritæknisviðs rafmangsdeildar, hjá Tækniskóla Islands frá 1972 til 1988, þar af deildarstjóri raf-
magnsdeildar 1973 til 1988. Frá 1988 hefur Stefán starfað sjálfstætt. Fyrirtæki hans eru Hljóðvist ehf, rafmagns- og
hljóðtækniráðgjöf og STG International.Stefán er Evrópu-markaðsráðgjafi hins heimsþekkta fyrirtækis Innovative
Electronic Designs (IED) sem hefur framleitt tölvustýrð hljóðkerfi fyrir 200 helstu flugstöðvar í veröldinni. Þá hefur
hann verið virkur í uppsetningu allskonar hátæknikerfa svo sem linuhraðla fyrir krabbameinsgeislun, nýrnasteina-
brjóts, gjörgæslukerfa, augnlæknabúnaðar og sett upp hinar aflmiklu (100 og 300 kW) langbylgjuútvarpsstöðvará
Gufuskálum og á Eiðum fyrir Ríkisútvarpið.
Hljóð skiptir miklu máli í umhverfi mannsins. Við kunnum að meta frið og ró. Við kunn-
um einnig að meta hávaða í sumum tilfellum, t.d. í formi tónlistar. Hávaði virkar þó alltaf
þreytandi til lengdar og ef hann fer yfir ákveðin mörk getur hann eyðilagt heyrn. I mikl-
um hávaða og í mjög ómandi rýmum verður málskilningur erfiður. Hávaði frá umferð og
atvinnustarfsemi getur valdið truflun í byggð og hafa verið settar reglur um hver hann
megi vera. Húsnæði sem er byggt þannig að ómtími er mjög langur og þannig að mikið
heyrist milli rýma svarar ekki kröfum nútímans.
Mikilvægt er því að gera viðeigandi ráðstafanir í skipulagi byggðar til að tryggja að
umferðar- og iðnaðarhávaði valdi íbúum ekki truflun og að skapa viðeigandi hljóðvist í
byggingum til að íbúum geti liðið vel heima hjá sér og í vinnu.
í byggingum þar sem vitað er að nota verður hljóðkerfi til að flytja talað mál eða tónlist
er mikilvægt að beita hönnunartækni sem byggir á reglum um samþættan hljómburð.
Með því er átt við að á hönnunarstigi sé byggingarhljóðtæknileg hönnun og hljóðkerfis-
hönnun samþætt þannig að vel sé, útlitslega og hljóðtæknilega. Það hefur margsinnis
sýnt sig að dýrt er að gera þau mistök að gleyma hljóðvistarhönnun í byggingum, en slíkt
var til skamms tíma landlægt á íslandi.
3 1 4
Árbók VFl/TFl 2002