Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Blaðsíða 24
stjórnarfund, þar sem farið var yfir áætluð verkefni á starfsárinu. Síðan hafa félögin sent
út fundarboð á póstlista beggja félaganna varðandi uppákomur sem þau standa fyrir.
Fyrsti haustfundur RyFÍ var haldinn í Verkfræðingahúsinu við Engjateig. Þar fór Jón
Björn Skúlason framkvæmdastjóri Nýorku yfir stöðu vetnismála á Islandi og ræddi
spennandi framtíðarmöguleika.
Annar fundurinn var heimsókn í Vatnsfellsvirkjun við Þórisvatn. Þar kynntu verk-
fræðingarnir Guðmundur Pétursson og Björn Harðarson framkvæmdir á virkjunarstað.
Eftir skoðunarferð um virkjunarsvæðið var komið við í Sultartangastöð og hún skoðuð.
Þriðji fundurinn var haldinn í Verkfræðingahúsi og fjallaði Þórður Víkingur Friðgeirsson
verkfræðingur um undirrót rafrænna viðskiptahátta og samfélag á krossgötum. Lagði
hann út af vangaveltum um af hverju samfélagið er að breytast, af hverju ekki verður til
baka snúið og stiklaði á stóru um tækni og framtíðarmál.
Fjórði fundurinn var heimsókn til P. Samúelsson, umboðs Toyota á íslandi, til að fræðast
um og skoða hinn byltingarkennda bíl Toyota Prius, en hann er fyrsti fjöldaframleiddi
bíllinn með blendingsaflrás (e: hybrid).
Fimmti fundurinn verður trúlega heimsókn til félaga okkar í SAME, Society of American
Military Engineers, í Reykjanesbæ, en sjötti fundur er enn óákveðinn.
I apríl var dagskrá í Smáralind á vegum VFI og TFÍ, þar sem m.a. fagdeildir félaganna
sáu um dagskrá. Aðalfundur var haldinn í byrjun maí.
IEEE á íslandi, rafmagns- og tölvuverkfræðiskor Háskóla íslands og RFVÍ skipulögðu
einnig eftirfarandi fyrirlestraröð nóvember 2001 til mars 2002, um rannsóknir í raf-
magnsverkfræði á íslandi:
Anna Soffía Hauksdóttir, HÍ: Fjöll og dalir í svörunum yfirfærslufalla.
Jón Tómas Guðmundsson, HÍ: Segulspætur.
Egill B. Hreinsson, HI: Markaðsvæðing raforkugeirans.
Ragnar Hlynur Jónsson, Conexant á Islandi: SDSL: samhverfar stafrænar heimtaugar.
Hákon Guðbjartsson, íslenskri erfðagreiningu: MRI.
Kristinn Andersen, Marel: Röntgenmyndvinnsla í matvælaiðnaði.
Magnús H. Gíslason formaður.
Orðanefnd RVFÍ
Hinn 16. maí 2001 voru liðin 60 ár frá stofnun Orðanefndar rafmagnsverkfræðinga.
Rafmagnsverkfræðingar í VFI voru fyrstir verkfræðinga til að stofna sérdeild innan
félagsins, 7. febrúar 1941. A fyrsta aðalfundinum var fyrsta mál á dagskrá að lokinni
kosningu stjórnar að ræða stofnun orðanefndar.
Fyrsti orðalisti úr rafmagnsfræði birtist í Tímariti Verkfræðingafélagsins árið 1920. Á 60
ára starfsferli sínum hefur Orðanefnd RVFÍ gefið út 13 orðabækur, tvær þeirra á
afmælisárinu, 2001. Fundir eru að jafnaði haldnir vikulega meginhluta ársins, allt að þrjá
tíma í senn. Undanfarin 30 ár hefur meðalfjöldi funda á ári verið 31 til 32.
Fyrstu daga janúar á afmælisári kom út áttunda bindi Raftækniorðasafns. Þar eru íðorð
og skýringar á hugtökum sem varða rafvélar, aflspenna, spanöld og aflþétta. Nefndin
hafði áður hlotið styrk Málræktarsjóðs til útgáfunnar. Meginviðfangsefni nefndarinnar
fram eftir ári var því lokaumfjöllun hennar um íðorð í níunda bindi Raftækniorðasafns
sem eru úr 845. kafla Alþjóða raftækniorðasafnsins. Þar er tekin til meðferðar Ijóstækni í
víðum skilningi.
I tilefni 60 ára afmælis orðanefndar ákváðu nefndarmenn að gera sér glaðan dag með því
að taka þátt í árshátíð VFÍ. Þar afhenti formaður VFÍ formanni RVFÍ 350.000 króna styrk,
2 0
Arbók VFl/TFl 2002