Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Blaðsíða 259
Mat á ysjun út frá CPT-
borunum
Borað var með CPT-bor við
alla rannsóknarstaði. Vel gekk
að bora við Hróarslæk,
Þykkvabæjarveg og Árbæjar-
veg. Við og undir undirstöðu
masturs 96 var búið að skipta
um efni niður á fast og borun
því ekki marktæk. Við möstur
85 og 83 var borað en efnið er
gróf möl og hentar CPT-borun
illa við þær aðstæður. Þó tókst
að bora aðeins niður í mölina
sem gefur vísbendingar um
bormótstöðu í efninu. Saman-
tekt á niðurstöðum útreikn-
inga (byggt á [9]) er sýnd í
töflu 1 ásamt helstu kenni-
stærðum fyrir lausu jarðefnin.
Á mynd 4 eru niðurstöður
útreikninga á CSR-Nqc gildum
borin saman við mótstöðuferla fyrir sand með mismunandi fínefnainnihald, FC, [9]. Hér
er Nqc kvörðuð mótstaða á odd úr CPT-borunum. Gildin á CRR-mótstöðuferlunum eru
kvörðuð fyrir jarðskjálfta af stærðinni 6,5 sjá [4,9]. í punktum sem lenda til vinstri við sinn
einkennandi móstöðuferil (FC > 35%, FC = 20%, eða FC < 5%) ætti ysjun að hafa átt sér
stað (fylltir punktar) á meðan í punktum sem enda til hægri við sinn einkennandi feril
ætti ysjun ekki að hafa átt sér stað (ófylltir punktar). Eins og sést gengur þetta eftir í
mörgum tilfellum en ekki öllum. Sem dæmi má nefna að fylltu mælipunktarnir við mast-
ur 96 lenda báðir vinstra megin við FC < 5% ferilinn eins og vera ber enda er FC = 4% á
þessum stað, sjá töflu 1.
Mynd4. Samanburðurá reiknaðri mótstöðu (mælipunktum (CSR-Nqc
gildi, sjá töflu 1) við mótstöðuferla fyrir sand með mismunandi flnefna-
innihald, FC (FC> 35%, FC 20% og FC <5%) [9]. Ferlarnir eru kvarðaðir fyrir
jarðskjálfta af stærðinni 6,5.
Tafla 1. Samantekt á kennistærðum og gildum fyrir mat á ysjun
Rannsókna- staður Dýpi (m) Ysjun Grunn- vatn (m) D50 (mm) F(n- efni (%) Nqc (Mpa) VS (m/s) Á1 m/s SASW CRR CPT CRR CSR
Hróarslækur 4,0 Ólíklegt 1 0,4 20 4 125 169 0,18 0,16 0,24
H3 8,0 Ólíklegt 1 0,2 25 2 140 166 0,17 0,11 0,28
Hróarslækur 3,0 Trúlega 2 0,4 20 1-2 140 182 0,21 0,10 0,30
H2 9,0 Trúlega 2 0,2 25 1-2 150 167 0,15 0,12 0,30
Þykkvabv. 1,5 Nei i 2 2 13 90 146 0,11 0,36 0,15
Árbæjarv. 1 1,5 Trúlega 1 0,1 50 2,5 110 167 0,15 0,20 0,50
Árbæjarv. 2 1,5 Nei 1 0,1 50 3 105 159 0,16 0,22 0,48
Mastur 96 Undir undst. 1,4 Já 0 1,5 4 13 70 130 0,08 0,36 0,55
Til hliðar. 1,4 Já 0 1,5 4 13 70 130 0,08 0,36 0,80
Mastur 83, undir undist 1,7 Nei 0 16 2 20 35 62 <0,05 >0,80 0,60
Mastur85 Undir undst 2,0 Já 1 7 4 15 80 136 0,09 0,72 0,35
Til hliðar 2,0 Já 1 7 4 15 80 136 0,09 0,72 0,58
Ritrýndar vísindagreinar
2 5 5