Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 6
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 ár liðu frá því að fyrst var tilkynnt um mann­ inn og þar til hann var handtekinn. 7 Óvissustigi aflýst 1 Mælingar Veðurstofu Íslands og Jarðvísinda­ stofnunar HÍ benda til þess að jökulhlaupi úr Grímsvötnum sé lokið. Um minniháttar atburð var að ræða og vatnsrennsli ekki meira en að sumar­ lagi. Ekkert bendir til frekari jarðhræringa og því hefur ríkislögreglustjóri ákveðið í samráði við lögreglustjórana á Eskifirði og Hvolsvelli að aflýsa óvissustigi vegna jökulhlaups úr Grímsvötnum. DÓmsmáL Lögreglu barst tilkynn- ing árið 2003 um brot manns sem á fimmtudag var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir barnaníð. Hann var ekki handtekinn fyrr en sjö árum síðar. Þetta kemur fram í dómnum yfir manninum, sem var fund- inn sekur um að hafa níðst með grófum hætti á dreng og stúlku um árabil. Brotin gegn drengn- um stóðu meðal annars frá árinu 2006 til 2010. Í dómnum segir að stúlkan hafi greint vinkonu sinni frá ofbeld- inu árið 2003 og hún í kjölfarið tilkynnt manninn til lögreglu. „Eftir að hún tilkynnti þetta til lögreglu kvað hún brotaþola hafa verið mjög hræddan og ekki haft við sig samskipti í eitt og hálft ár,“ segir enn fremur í dómnum. Önnur vinkona stúlkunnar gaf skýrslu í dómsmálinu og staðfesti að leitað hefði verið til lögreglu á þessum tíma. Lögreglumenn hefðu tekið ítarlegar skýrslur af báðum vinkonunum. Stúlkan sem brotið var á var spurð um þetta fyrir dómi. Hún kom af fjöllum og hafði ekki hug- mynd um að vinkonur hennar hefðu tilkynnt manninn til lög- reglu á sínum tíma. - sh Barnaníðingur sem hlaut sjö ára dóm í vikunni var rannsakaður áður: Tilkynnt um níðinginn 2003 SKRUDDA www.skrudda.is Öll börn þurfa að kynnast Grimmsævintýrum sem fylgt hafa kynslóðunum í 200 ár. E n g i h j a ll a og G r a n d a Opið frá 11 - 20 alla daga Meira fyrir peninginn Dagatöl 222 kr. stk. Súkkulaði NÝ VERSLUN á GRANDA FRÉTTAskýRInG Hver verður formaður Samfylkingarinnar? Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra beið ekki boðanna heldur tilkynnti um framboð sitt til formanns Samfylkingarinnar daginn eftir að hann hafði sigur í forvali flokksins í Norðvestur- kjördæmi. Guðbjartur hlaut góða kosningu í fyrsta sætið, 76 pró- sent, en Ólína Þorvarðardóttir bauð sig fram í fyrsta til annað sæti. Framboð Guðbjarts kemur ekki á óvart. Hann hefur lengi verið í spilunum sem einn af arftökum Jóhönnu, þó að þær raddir hafi lækkað um skeið eftir fíaskó- ið með launahækkun forstjóra Landspítalans. Ferill hans þykir hins vegar að mestu óflekkaður að öðru leyti. Guðbjarts bíður að heyja snarpa kosningabaráttu gegn Árna Páli Árnasyni. Árni Páll nýtur þess að hafa verið í opinberri kosninga- baráttu í á þriðja mánuð og í raun má segja að undir búningur for- mannsframboðs hans hafi hafist Guðbjartur og Árni Páll í formannsslag Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra tilkynnti í gær að hann gæfi kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar. Árni Páll Árnason hefur þegar tilkynnt um framboð sitt. Nýr formaður Samfylkingarinnar verður kjörinn í janúar. Öruggt er að krafa komi fram um að formaður verði kjörinn í alls­ herjaratkvæðagreiðslu skráðra félaga í flokknum. Krafa að minnsta kosti 150 flokksmanna þarf að koma fram þar um 45 dögum fyrir landsfund. Fundurinn verður haldinn 1. til 3. febrúar og kosningin fer því fram í janúar. Ljóst er að aðventan mun einkennast af formannsslag hjá Samfylkingar­ fólki og ekki síst frambjóðendunum tveimur. Allsherjaratkvæðagreiðsla í janúar, eftir brotthvarf hans úr ríkisstjórn. Árni Páll hefur verið gríðarlega duglegur, skrifað greinar í blöð og sótt fundi víða um land. Hann hafði betur en Katrín Júlíus dóttir fjármálaráðherra í prófkjöri í Suðvesturkjördæmi og ljóst er að sigling er á Árna. Hann mun njóta þess að hafa byrjað sitt framboð mun fyrr en Guðbjartur. Guðbjartur er hins vegar ráðherra og mun njóta ýmissa aðgerða ríkisstjórnarinnar; hækkunar barnabóta og lenging- ar fæðingarorlofs, svo eitthvað sé tínt til. Árni Páll hefur yfir sér það yfirbragð að vera meira til hægri í flokknum. Á hverju það byggist er óskilgreint, báðir eiga fram- bjóðendur uppruna sinn í Alþýðu- bandalaginu. Áran yfir Árna er hins vegar meira til hægri og til vinstri hjá Guðbjarti. Það gæti haft áhrif á hluta kjósenda; í hvaða átt þeir vilji að flokkurinn fari. Þegar tveir menn takast á um sama embættið skipt- ir hins vegar meira máli hvern- ig kjósendum líst á hvorn um sig sem formann. Greinendum hættir til að ofmeta strategíska hugsun kjós- enda. Í grunninn mun niðurstað- an velta á því hvort félagar í Sam- fylkingunni treysti Árna Páli eða Guðbjarti betur til að leiða flokk- inn til sigurs í kosningum. Ekkert annað. kolbeinn@frettabladid.is LAnDIð Frysting hafin 2 Loðnufrysting hófst í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði í vikunni og er þetta fyrsta loðnan sem fer til land­ vinnslu á vertíðinni, eins og segir í frétt frá fyrirtækinu. Verið er að vinna úr tæplega 600 tonna loðnuafla sem Ingunn AK kom með til hafnar. Megnið af aflanum fer í frystingu til manneldis, enda er loðnan stór og góð. Um 65 manns vinna við frystinguna á vöktum. 60% meiri afköst 3 Promens á Dalvík tók í notkun stækkaða verk­ smiðju í október. Með tilkomu 840 fermetra viðbyggingar og þriðja hverfisteypuofnsins eykst framleiðslugeta verksmiðjunnar um 60%. Fyrirtækið er því vel í stakk búið að mæta aukinni eftirspurn á komandi árum. Nýi hverfisteypuofninn, sem ræstur var í október, er einnig einstakur á heimsvísu því þetta er í fyrsta sinn sem ofn af þessari stærð er knúinn rafmagni í stað olíu­ eða gasbrennara. 1 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.