Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 9

Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 9
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 Borgar milljónir 1NEW YORK Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, greiðir hótelþernunni Nafissatou Diallo sex milljónir dala, ríflega 750 milljónir króna, fallist hún á sættir í dómsmáli þeirra. Hún kærði hann fyrir til- raun til að nauðga sér á hótel- herbergi í New York á síðasta ári. Þetta fullyrðir fréttastofan AP, og segir að hann ætli að fjármagna greiðsl- una til helminga með bankaláni og með láni frá fyrrverandi eiginkonu sinni. Egyptar mótmæla 2EGYPTALAND Meira en hundrað þúsund manns tóku þátt í mótmælum í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í gær gegn Mohammed Morsi forseta og stjórnarskrárfrum- varpinu, sem stjórnlagaþing landsins samþykkti í skyndingu á fimmtudag. Frumvarpið verður væntanlega borið undir þjóðaratkvæðagreiðslu, líklega á næstu vikum. „Byltingin er komin aftur,“ sagði Hamdeen Sab- bahi, einn af helstu leiðtogum mótmælendahreyfingarinnar. „Við stöndum sameinuð gegn kúgunarstjórninni.“ Foreldralaust þorp 3KENÍA Í þorpinu Nyumbani í Kenía er ekkert fólk á miðjum aldri, aðeins börn og öldungar. For- eldrar allra barnanna í þorpinu létu lífið fyrir nokkrum árum af völdum alnæmis, en í dag er alþjóðlegi alnæmisdagurinn. Í þorpinu búa nú 938 börn og 97 öldungar, sem eru afar og ömmur barnanna, og hafa tekið að sér að sjá um þau. Að sögn UNAIDS, alnæmisáætlunar Sam- einuðu þjóðanna, er talið að um 23,5 milljónir manna séu HIV-smitaðar í löndum Afríku sunnan Sahara-eyði- merkurinnar. IÐNAÐUR Hlutfallslega fleiri bækur eru prent- aðar utan landsteinanna þetta árið en í fyrra. Af 675 titlum sem getið er í Bókatíðindum voru 426 prentaðir á Íslandi, eða ríflega 63%. Kína ber höfuð og herðar yfir önnur lönd hvað varð- ar prentstað íslenskra bóka erlendis en 104 titlar voru prentaðir þar í landi eða 15,4%. Það er Bókasamband Íslands sem gerði könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðind- um Félags íslenskra bókaútgefenda 2012. Kemur fram að fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dregst saman um rúmlega fimm prósentustig milli ára, en árið 2011 voru 68% bókatitla prentuð innan lands. Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 675 í Bókatíðindum í ár en var 690 árið 2011. Skoðað er hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis sé eftir bókaflokkum. Þar kemur fram að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis en það er ekki síst vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameigin- lega fyrir mörg lönd. Af 210 barnabókum, íslensk- um og þýddum, voru 78 prentaðar hérlendis og 132 erlendis. Þegar kemur að skáldverkum, íslenskum og þýddum, snúast hlutföllin við. Af 193 titlum er 171 prentaður á Íslandi, eða 89%. Aðeins 22 titlar eru prentaðir erlendis, eða 11%. Bækur prentaðar í Evrópu eru 134 en þær voru 115 í Asíulöndum, og að langstærstum hluta í Kína. svavar@frettabladid.is 63% íslenskra bóka eru prentuð á Íslandi Ísland 426 titlar 63,1% Finnland 22 titlar 3,2% Slóvenía 49 titlar 7,3% Pólland 36 titlar 5,3% Kína 104 titlar 15,4% Fjöldi titla % Ísland 470 68,1 Kína 115 16,7 Finnland 37 5,4 PóllanD 15 2,2 Danmörk 12 1,7 Árið 2011 Skipting milli álfa 2012 H Ísland43,1%Evrópa19,9% Asía 17,0% PRENTSTAÐUR ÍSLENSKRA BÓKA ÁRIN 2011 OG 2012 Kínverjar prentuðu 104 íslenskar bækur Nokkru fleiri bækur voru prentaðar erlendis þetta árið en í fyrra. Munar þar um fimm prósentustigum. Kínverjar prentuðu 104 bækur en Íslendingar 426 titla. HEIMURINN 1 2 3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.