Fréttablaðið - 01.12.2012, Qupperneq 31
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 30
Í nýrri aðalnámskrá eru
jafnrétti, lýðræði, heil-
brigði og velferð, ásamt
læsi og sköpun, skilgreind
sem grunnþættir skóla-
starfs á Íslandi. Grunn-
þættir. Það sem skipt-
ir meginmáli í menntun
barna og ungmenna. Samt
sem áður berast ítrekað
fréttir af starfi sem tengist
framhaldsskólum landsins
þar sem hópar fólks eru
lítil lækkaðir.
Má þar nefna nýleg dæmi um
busavígslur, auglýsingar, mynd-
bönd, nemendablöð, ummæli kenn-
ara og lýsingu á íþróttaleik líkt og
fjallað hefur verið um í fréttum.
Yfirleitt beinist fyrirlitningin að
konum. Íslenskar rannsóknir gefa
einnig til kynna aukin neikvæð við-
horf í garð stúlkna og kvenna.
Gegn grunnþáttum
Slík kvenfyrirlitning gengur gegn
ofangreindum grunnþáttum mennt-
unar. Það er með ólíkindum að það
sé liðið á sama tíma og mikil vakn-
ing hefur orðið um skaðsemi ein-
eltis.
Einnig má nefna að kynferðis-
leg áreitni er skilgreind í lögum
sem „kynferðisleg hegðun sem er
ósanngjörn og/eða móðgandi og í
óþökk þess sem fyrir henni verð-
ur, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess
eða þeirra sem fyrir henni verða
og er haldið áfram þrátt fyrir að
gefið sé skýrt í skyn að hegðunin
sé óvelkomin“. Á heimasíðu Jafn-
réttisstofu kemur fram að kynferð-
isleg áreitni sé ekki eingöngu lík-
amleg áreitni, heldur geti t.d. grófir
„brandarar“ á kostnað einstaklings
eða hóps, eða klámmyndir á veggj-
um, talist vera kynferðisleg áreitni.
Okkur þykir leitt að beina athygl-
inni að þessum hliðum
unglingsáranna þegar
ljóst er að fáir einstak-
lingar bera ábyrgð á þeim
atvikum sem um ræðir.
Það væri ólíkt skemmti-
legra að fjalla um allt það
hæfileikaríka og ábyrga
unga fólk sem er í fram-
haldsskólum landsins, enda
fullt tilefni til. Nýlegar
rannsóknir sýna að ungt
fólk á Íslandi stendur sig
sífellt betur, til dæmis hvað varð-
ar ábyrga neyslu áfengis. Einnig
er vert að benda á að fréttir hafa
borist af kvenfyrirlitningu á fleiri
skólastigum, svo sem innan veggja
háskólanna.
En því verður ekki neitað að
atburðir síðustu mánaða leiða í ljós
að stúlkur verða oft fyrir kynferð-
islegri áreitni innan framhalds-
skólanna. Ekki verður heldur fram
hjá því litið að slíkt á sér oft stað í
tengslum við starfsemi nemenda-
félaganna.
Bregðast þarf hraðar við
Enginn getur fríað sig ábyrgð á því
að tekið verði á þessum vanda – síst
við sem berum ábyrgð á menntun
unglinga. Sums staðar hafa verið
stigin skref í þá átt. Sem dæmi má
nefna verkefnið „Heilsueflandi
framhaldsskóli“ þar sem fjallað
er um baráttu gegn klámvæðingu.
Einnig hafa einstakir framhalds-
skólar stigið jákvæð skref til að
sporna við klámvæðingu. Þó er
ljóst að bregðast þarf mun hraðar
og markvissar við – það er óþol-
andi að stúlkur þurfi að sitja undir
niðurlægjandi orðum, gjörðum og
myndum í fjölmörgum skólum.
Við skorum á þá sem bera ábyrgð
á uppeldi, þjálfun og menntun
barna og unglinga að grípa þegar til
aðgerða til að sporna við kvenfyrir-
litningu, þar með talinn mennta- og
menningarmálaráðherra, háskóla-
kennarar sem sinna menntun fag-
fólks, stjórnendur framhaldsskóla
og kennarar og þjálfarar unglinga.
Hér eru skref sem hægt er að stíga:
• Stjórnendur framhaldsskólanna
marki sér tafarlaust stefnu um
hvernig megi sporna við aukinni
kvenfyrirlitningu og hvers kyns
niðurlægingu í garð einstak-
linga eða hópa og hvernig eigi
að bregðast við þegar slík tilfelli
koma upp.
• Hver framhaldsskóli skili
mennta- og menningarmála-
ráðherra áætlun um hvernig
þeir innleiði námskrárákvæði
er varðar jafnréttismenntun á
skólaárinu 2013-2014.
• Skólastjórnendur kynni árlega
fyrir skólaráði viðkomandi skóla
allar ábendingar um að komið sé
fram við nemendur af vanvirð-
ingu og hvernig hafi verið brugð-
ist við hverju tilfelli.
• Stjórnendur og kennarar fram-
haldsskóla verði sér út um leið-
beiningar og kennsluefni um
hvernig megi stuðla að jafnrétti
í skólum. Hér má m.a. benda á
Kynungabók frá árinu 2010 og
Jafnréttishandbók fyrir starfs-
fólk skóla frá árinu 2000.
• Samsvarandi fræðsla fari fram
fyrir aðra sem starfa með ung-
mennum, svo sem þjálfara,
starfsfólk félagsmiðstöðva og
leiðbeinendur í vinnuskólum.
• Allir háskólakennarar sem kenna
fagfólki á sviði uppeldis, þjálf-
unar og menntunar fái leiðbein-
ingar og kennsluefni um hvernig
megi stuðla að jafnrétti í skólum.
• Allir háskólakennarar sem kenna
fagfólki á sviði uppeldis, þjálf-
unar og menntunar fjalli í nám-
skeiðum sínum um rétt nemenda
á að líða vel í skólanum, hvernig
megi stuðla að því og hvernig eigi
að bregðast við ef svo er ekki.
• Kennarar í framhaldsskólum
sem vinna með nemendafélög-
um eða bera ábyrgð á starfi
þeirra fái skýrar leiðbeining-
ar um ábyrgðina sem fylgir því
hlutverki.
• Félag framhaldsskólanema láti
sig málið varða og stuðli að því
að fjallað sé af virðingu um alla
nemendur í öllu starfi nemenda-
félaganna.
Það eru til margar aðrar leiðir
en það eina sem gengur ekki, er að
gera ekki neitt.
Þegar bankarnir hrundu
og Kauphöllin einnig
afhjúpaðist sannleikur-
inn um hinar duldu eign-
ir, sem gengið höfðu kaup-
um og sölum á íslensku
markaðstorgi. Þær reynd-
ust lítils virði og jafnvel
einskis virði. Kauphöllin
lokaði fyrir viðskipti og
hinn sári sannleikur um
uppblásnar eignir endaði
í vösum launamanna. Nú
máttu þeir eiga þær, enda
stefndi virðið í að verða neikvætt.
Það var í umsátri kröfuhafa, sem
vissu sem var að heiður íslenskrar
alþýðu er mikils virði. Sjálf lífs-
björgin var í húfi og viðskiptakjör
á erlendum mörkuðum í uppnámi.
Nú yrði að endurreisa traustið. Og
kröfuhafarnir höfðu rétt fyrir sér,
skattgreiðendur voru knúnir til að
setja hundruð milljarða í að endur-
reisa efnahagslífið til að forða enn
meira áfalli. Almenningur, sem
hefur síðan þetta gerðist þurft að
sætta sig við stórauknar persónu-
legar skuldir og notað sparnað til að
komast af, stóð í þeirri trú að harm-
leikurinn um hinar uppblásnu eign-
ir skyldi svo taka enda og við tæki
opið þjóðfélag með áherslu á raun-
virði og sannleika.
Þá gerist það að Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir lýsir því yfir að
eitt helsta vandræðabarn hruns-
ins, Íbúðalánasjóður, þurfi að und-
irgangast breytingar, sem komi í
veg fyrir núverandi ótakmarkaða
ríkisábyrgð á bréfum sjóðsins og
rjúfa þannig beinan og óhindraðan
aðgang að skattfé landsmanna. Nei
takk vinkona, það er búið að
opna aftur Kauphöllina, og
því má ekki tala opinskátt
eða segja sannleikann opin-
berlega. Ríkisjóður skal
bara punga út tugum millj-
arða þegjandi og hljóða-
laust, því ekki má trufla hinn við-
kvæma markað verðbréfa. Það kann
að vera rétt að slíkar truflanir séu
óheppilegar. En þegar svo stórt mál
er á ferðinni að jafnast á við hrun á
stórum banka, þá verður að gera þá
kröfu til forstjóra Kauphallarinnar
að hann skilji að Ísland er ekki hluti
af Kauphöllinni heldur öfugt. Þess
utan getur sá góði maður litið á sig
sem kóng í sínu ríki, sama er mér.
Forstjóri Kauphallarinnar gerir
sig svo breiðan og lýsir yfir í fjöl-
miðlum að hann hafi látið loka fyrir
viðskipti með bréf Íbúðalánasjóðs
vegna ummæla Sigríðar Ingibjarg-
ar, en láðist að gera grein fyrir því á
hvaða forsendum hann opnaði fyrir
þau aftur. Hann þarf þess náttúru-
lega ekki. Ekki nóg með það, for-
stjórinn ætlar að kenna þingmönn-
um það orðfæri sem tilhlýðilegt er í
kringum höllina. Datt honum ekki í
hug að ef loka þurfti fyrir viðskipti
einhverra bréfa hjá sjóðnum að gera
það bara þegjandi og hljóðalaust, og
tilkynna þeim sem hafa áhuga á við-
skiptum með bréfin að koma bara
eftir hádegi?
➜ Nei takk vinkona,
það er búið að opna
aftur Kauphöllina,
og því má ekki tala
opinskátt …
➜ Enginn getur fríað sig
ábyrgð á því að tekið verði á
þessum vanda – síst við sem
berum ábyrgð á menntun
unglinga.
Mannfyrirlitning á ekki að líðast
Opnað eftir hádegi
ÍBÚÐALÁNA-
SJÓÐUR
Ásmundur
Ásmundsson
verkfræðingur
MENNTAMÁL
Steinunn
Gestsdóttir
Ólafur Páll
Jónsson
Kristín
Jónsdóttir
Jóna
Ingólfsdóttir
kennarar við
Menntavísindasvið
Háskóla Íslands
VÖTN & VEIÐI
Stangveiði á Íslandi 2012
Veiðisögur • Veiðisvæði •
Veiðifréttir • Veiðimenn
á
Í
l
d
i 2012
Fæst á flestum bóksölustöðum
JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS
UMDEILDIR
PISTLAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag