Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 64
KYNNING − AUGLÝSINGFjölskylduskemmtun LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512-5411
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Við stílum inn á innri frið og fegurð fyrir augað og sálina,“ segir Unnur Sigþórsdóttir,
deildarstjóri fræðsludeildar Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins. Þar
bjóðast skemmtilegar stundir fyrir
alla fjölskylduna á aðventunni.
„Í desember breytist Laugar-
dalurinn í Jóladal og afar róman-
tískt að ganga um hann ljósum
prýddan. Allt er skreytt og hátíð-
legt um að litast; jólaskreytt hús
leynast í gróðrinum og tilkomu-
mikill ljósafoss liggur yfir steinum
í selalauginni.“
Að sögn Unnar eru menn og
dýr í Jóladalnum komin í sitt
besta jólaskap.
„Kýrin Sæbjörg er nýborin og
kvígan hennar Sædís braggast
vel. Þá á kýrin Brák von á sér á
næstu dögum og margs að vænta
þegar kíkt er á dýrin. Í námunda
við garðinn er svo mýmargt
skemmtilegt að gera; skauta í
kringum jólatré í Skautahöllinni,
heimsækja Ásmundarsafn, ganga
um Grasagarðinn, fá sér heitt
kakó og ristaðar möndlur á Café
Flóru og jafnvel enda á sundsprett
í Laugardalslaug.”
Óargadýr fyrir hugrakka
Á aðventunni hefur jóla kötturinn
komið sér vel fyrir í Húsdýra-
garðinum.
„Ef vel er að gáð má sjá spor jóla-
kattarins í garðinum og stundum
glittir í glyrnur hans í glugga.
Óargadýrið bregður sér oft af bæ,
fer í göngutúr um dalinn og kemur
þá víða við og veldur usla,“ upp-
lýsir Unnur um ógnvekjandi og
gráðugt gæludýr Grýlu sem heldur
til í Hafrafelli við refagirðinguna.
„Þeir sem þora eru hvattir til að
heimsækja köttinn og í sama húsi
er að finna safn uppstoppaðra
fugla, lifandi skriðdýr og frosk-
dýr.“
Sannkölluð jólastemning
Þegar Jóladalurinn hefur fest
sig í sessi segir Unnur að til
standi að bæta við hann ár frá
ári. Gestir eigi því von á góðu á
aðventum framtíðar.
„Í Jóladalnum sameinast
allir um að búa til afslapp-
aða og jólalega stemningu
svo hingað sé afstressandi og
notalegt að koma. Hestarnir
eru jólaskreyttir, hring ekjan
fer í jólabúning og jóla lestin
brunar um garðinn þegar
veður og færð leyfa,“ segir
Unnur. Lest og hringekja verða
opin um helgar frá klukkan 13
til 16. Um helgar verður líka
boðið upp á hestateymingu frá
14 til 14.45.
Sögustund með Grýludóttur
Á aðventu mun Sóla, dóttir Grýlu,
mæta með Sögubílnum Æringja
og segja sögur af jólakettinum. „Í
desember fá dýrin líka sinn jóla-
mat; tuggur, síld og allt sem við á
á dagskrártíma. Nákvæmar tíma-
setningar fyrir jólamat dýranna
og komu Sólu má finna á www.
mu.is,“ segir Unnur.
Í desember verður einnig
boðið upp á súpu og brauð fyrir
500 krónur í notalegri stemningu
í Kaffihúsinu.
Rúningur og jólatónlist
Á morgun, fyrsta sunnudag í að-
ventu, fær sauðfé í Húsdýra-
garðinum sína árlegu jólaklipp-
ingu í fjárhúsinu. „Þá rýr Guð-
mundur Hallgrímsson tíu ær og
einn hrút um leið og handverks-
fólk frá Ullarselinu á Hvanneyri
vinnur úr ullinni jafnóðum,“ út-
skýrir Unnur. Byrjað verður að
rýja klukkan eitt og rúningi lýkur
um fjögur.
„Klukkan tvö fer klarinettu-
hópur úr Skólahljómsveit
Austur bæjar í ferð um Jóla-
dalinn. Tónlistin byrjar að óma
í Ásmundarsafni, kemur þaðan í
Húsdýragarðinn og endar í Kaffi
Flóru um fjögurleytið. Því verður
sannkölluð jólagleði í Jóladalnum
um helgina.“
Jólaklipping í fjárhúsinu
Allir krakkar elska tíma í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Nú þegar aðventa gengur í garð breytist Laugardalurinn í Jóladal og allt
verður með hátíðlegum blæ. Á morgun fær sauðfé garðsins jólaklippinguna undir klarínettuleik Skólahljómsveitar Austurbæjar.
JÓLIN KOMA BRÁÐUM
Nú þegar jólamánuðurinn
er formlega genginn í garð
er tilvalið fyrir fjölskylduna að
setjast niður og skipuleggja
næstu vikur. Desembermán-
uður er annasamur mánuður
hjá flestum og hætt við að
tíminn líði hratt. Því er upplagt
að setjast niður með dagatal,
skipuleggja næstu vikur og
merkja inn á dagatalið. Hve-
nær á að baka jólasmákökur
og á að bjóða litlum gestum
að taka þátt?
Það er bráðnauðsynlegt að
hafa eitt til tvö skipulögð
sjónvarpskvöld, eitt stílað inn
á börnin og annað fyrir eldra
fólkið þar sem horft er á mis-
klassískar jólakvikmyndir með
poppkorni, malti og appelsíni.
Ef fjölskyldan ætlar að senda út jólakort er gott að vera tímanlega á ferð-
inni. Velja þarf réttu kortin, mynd sem fylgir með og skrifa þarf á kortin.
Það er líka upplagt að föndra jólakortin og fá börn í lið með sér.
Allir ættu að kíkja á einn jólamarkað í desember en nokkrir slíkir eru í
boði víða um land. Þar er hægt að kaupa jólaskraut, heitt súkku laði og
piparkökur og drekka í sig stemninguna. Desembermánuður er einnig
tilvalinn til að útbúa heimatilbúin matvæli sem ýmist má nota með
jólamatnum eða einfaldlega gefa í jólagjöf. Uppskriftir má meðal annars
finna í Jólablaði Fréttablaðsins eða á fjölmörgum íslenskum matar-
bloggum. Ef snjór hefur fallið verður auðvitað að taka nokkrar sleðaferðir
í næstu brekku. Ef skíðasvæði er í nágrenninu er desembermánuður
tilvalinn til skíða- og snjóbrettaiðkunar. Svo má
auðvitað ekki gleyma að heimsækja
vini og ættingja, þá sérstaklega afa
og ömmu sem komast kannski
sjaldan úr húsi. Að lokum má
ekki gleyma því að slappa
líka af og rölta saman í góða
veðrinu og njóta veður-
blíðunnar og jólaljósanna.
Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu
frumsömdu jólasöguna.
Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag,
myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara.
Samkeppnin er öllum opin.
Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi
anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk
eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls.
Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is.
Skilafrestur er til 5. desember.
Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba.
Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af
gerðinni United.
Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum.
Jólasagan þín