Fréttablaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 66
FÓLK|
Rafvörumarkaðurinn opnaði fyrir sex árum í Síðumúla í Reykjavík og hefur alla tíð lagt áherslu á gott
úrval raftækja á frábæru verði. Sérstaða
verslunarinnar hefur alla tíð falist í ódýr-
um og góðum ljósum fyrir heimili og
fyrirtæki. Guðmundur Stephensen, versl-
unarstjóri Rafvörumarkaðarins, segir
verslunina alltaf hafa lagt sérstaklega
mikinn metnað í vandaðar ljósa vörur
sem um leið eru með þeim ódýrustu
á markaðnum. „Rafvörumarkaðurinn
selur mikið úrval raftækja eins og nafnið
gefur til kynna. Við sérhæfum okkur
þó í alls kyns gerðum af ljósum, bæði
fyrir heimili og fyrirtæki. Við seljum
einungis gæðamerki sem að stærstum
hluta eru flutt inn frá Þýskalandi. Það
sem einkennir þetta úrval okkar, fyrir
utan gæðin, er hversu ódýr þau eru en
við teljum okkar verslun bjóða upp á
ódýrustu ljósin á markaðnum þegar tillit
er tekið til gæða.“
Núna fyrir jólin er sérstaklega mikið
úrval af eldhúsljósum og stofuljósum
í boði á frábæru verði að sögn Guð-
mundar. „Við bjóðum einnig mikið
úrval kúpla og kastara inn á heimilin
og einnig innfelld ljós sem bæði henta
heimilum og fyrirtækjum.“
Guðmundur segir sölu ljósa vera árs-
tíðabundna. Fyrir jólin seljist mest af
eldhús- og stofuljósum en útiljósin selj-
ist mest á vorin og haustin. „Svo bjóð-
um við auðvitað upp á gott úrval af jóla-
ljósum og jólaseríum í desember og að
sjálfsögðu á frábæru verði.“ Önnur sér-
staða Rafvörumarkaðarins eru raflagna-
efni frá TEM. Guðmundur segir algengt
að fólk kaupi það til að skipta út gamla
ítalska efninu Ticino sem sé frekar
gamaldags og í mörgum húsum í dag.
„TEM-efnið passar bæði fyrir þessar Tic-
ino-dósir og einnig fyrir venjulegar hefð-
bundnar dósir. Efnið er bæði mjög ódýrt
og um leið virkilega flott. Við hreinlega
mokum þessu efni út.“
Rafvörumarkaðurinn er til húsa í
Síðumúla 34 í Reykjavík en gengið er
inn frá Fellsmúla. Opið er alla daga
vikunnar.
HELGIN
ÓDÝR LJÓS
Rafvörumarkaðurinn
sérhæfir sig í ódýrum og
góðum ljósum að sögn
Guðmundar Stephensen
verslunarstjóra.
MYND/GVA
VINSÆLT
TEM-raflagnaefnið er
mjög vinsælt.
MYND/GVA
LJÓS Á LÆGSTA VERÐI
RAFVÖRUMARKAÐURINN KYNNIR Ódýr og góð ljós eru sérstaða Rafvöru-
markaðarins. Verslunin selur auk þess gott úrval vandaðra raftækja.kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Allur ágóði rennur til verkefna innanlands.
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur jólabasar laugardaginn
1. desember kl. 12-16 í Rauða krosshúsinu Hamraborg 11,
2. hæð. Seld verða ýmis handverk sjálfboðaliða deildarinnar,
sauma- og prjónavörur fyrir allan aldur, handgert jólaskraut
og gjafavara. Aldrei meira úrval!
RISA JÓLABASAR
Rauða krossins í Kópavogi
1. desember
Heitt á könnunni!
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega
jólaskeiðin
frá Ernu
Jólaskeiðin 2012
er hönnuð af
Sóleyju Þórisdóttur.
Skeiðin er smíðuð á
Íslandi úr ósviknu silfri.
Verð: 18.500.- stgr.
KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS
E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Eina sjónvarpsstöðin í heiminum sem helguð er sönnum sakamálum
ID: INVESTIGATION DISCOVERY ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Risaíþróttamarkaður og þjónustu-hátíð hlauparans verða haldin í dag og á morgun í Laugardalshöll
frá klukkan 10 til 18. Lýður B. Skarp-
héðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir,
sérfræðingar í göngugreiningum, munu
ráðleggja fólki við val á skóm eftir fótlagi
og niðurstigi með hjálp tölvuþrýsti-
plötu. „Fólk fer með bílinn sinn í jafn-
vægisstillingu, við erum ekkert öðruvísi
og þurfum að láta athuga hvort ekki sé
allt í lagi með fæturna,“ segir Lýður B.
Skarphéðinsson.
Undanfarin ár hefur meðvitund um
það hversu miklu máli það skiptir
að vera með réttan skóbúnað aukist.
„Þetta væri svo sem ekki vandamál
ef við værum að ganga á mold, sandi
eða mjúku undirlagi. Nútímamaðurinn
gengur hins vegar nánast alltaf á hörðu
og steyptu undirlagi sem krefst þess að
skóbúnaður sé góður. Um 30 prósent af
öllu vinnandi fólki þjáist af bakverkjum
og 75 prósent af af fótameini einhvern
tímann á lífsleiðinni. Réttur skóbúnaður
getur hæglega komið í veg fyrir mikið af
þessum meinum.“
Það eru margir aðilar sem koma að
þjónustuhátíðinni og hægt að gera fyrir-
taks jólagjafainnkaup. „Hér verða tilboð
í gangi á ýmsum merkjavörum með 20
til 80 prósenta afslætti. Þá munum við
hjá Göngugreiningu bjóða 40 prósenta
afslátt af göngu- og hlaupagreiningum
af tilefni dagsins og 20 prósenta afslátt
af aukapari af innleggjum. Þá getur fólk
komið með gömlu hlaupaskóna og við
tökum þá upp í nýja á 1.000 krónur.“
Markaðurinn verður aðeins í gangi
þessa einu helgi og eftir miklu að slægj-
ast. Þarna verður fullt af merkjavöru á
frábæru verði. Bæði skór og fatnaður frá
Asics, Ecco, Hummel, Reebok, Casall,
Brooks, North Rock og Under Armour.
„Ég hvet fólk eindregið að líta við hjá
okkur og fá faglega ráðgjöf við skókaup.
það margborgar sig, og þegar upp er
staðið á það eftir að létta fólki sporin.“
RISAÍÞRÓTTAMARKAÐUR
GÖNGUGREINING KYNNIR Í samvinnu við Atlas göngugreiningu og www.
gongugreining.is verður Stóri íþróttamarkaðurinn haldinn á ný í Laugardals-
höllinni. Tilboð á merkjavörum með allt að 80 prósenta afslætti.
GÓÐ KAUP
Lýður segir að hægt sé
að gera frábær kaup á
risamarkaðnum í dag og
á morgun.
MYND/GVA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir