Fréttablaðið - 01.12.2012, Page 72
| ATVINNA |
Frá stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis gefur þeim
sem þess óska kost á að senda skriflegar athugasemdir
við frumvarp til stjórnarskipunarlaga um breytingar á
stjórnarskrá Íslands.
Nefndin veitir viðtöku umsögnum og erindum frá
félögum, samtökum og einstaklingum á netfangið
stjornskipun@althingi.is. Umsagnir og erindi þurfa að
berast nefndinni fyrir 13. desember nk.
Eldri umsagnir um skýrslu forsætisnefndar um
tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá
Íslands sem voru til meðferðar á síðasta löggjafarþingi
liggja einnig til grundvallar við vinnu nefndarinnar við
frumvarpið.
Frumvarpið er að finna á vefslóðinni:
www.althingi.is/s510/
Eldri umsagnir er að finna á vefslóðinni:
www.althingi.is/e3/
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis
Skrifstofa Alþingis – nefndasvið
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík
Skjalastjóri Mosfellsbæjar
Laust er til umsóknar starf skjalastjóra á bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar.
Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar er staðsett í Kjarna að Þverholti 2
og þar starfa að jafnaði um 40 manns. Bæjarskrifstofan býður
upp á hvetjandi starfsumhverfi og setur sér það markmið að vera
eftirsóknarverður og aðlaðandi vinnustaður þar sem atvinna og
fjölskylduábyrgð fara vel saman.
Skjalastjóri gegnir lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni með
skjalastjórnun Mosfellsbæjar og ber ábyrgð á því að farið sé að
gildandi lögum og reglum um skjalavistun opinberra aðila og
sveitarfélaga.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Umsjón og eftirlit á skráningu, meðhöndlun og vörslu skjala hjá
Mosfellsbæ
• Umsjón með skjalasöfnum allra sviða bæjarins
• Kerfisstjórn skjalavörslukerfis. Eftirlit, viðhald og þróun á
verkhlutum þess
• Umsjón með Íbúagátt Mosfellsbæjar, þátttaka í þróun hennar og
aðstoð við innri og ytri notendur
• Fræðsla og ráðgjöf um skjalamál og notkun skjalavörslukerfis til
starfsmanna og stofnana
• Viðhald og mótun á verklagsreglum um meðferð og vistun skjala
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun á sviði bókasafns- og upplýsingafræði
• Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
• Reynsla af notkun rafrænna skjalavistunarkerfa er æskileg
• Mjög góð alhliða tölvukunnátta er skilyrði
• Viðkomandi þarf að búa yfir framúrskarandi samskiptahæfni
ásamt því að vera samviskusamur og nákvæmur í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur er til og með 16. desember 2012.
Umsókn ásamt ferilskrá og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í
starfið skal send á netfangið sigriduri@mos.is.
Upplýsingar um starfið veita Óskar Þór Þráinsson skjalastjóri og
Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri í síma 5256700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið.
Það er hlutverk regluvörslu Arion banka að stuðla að góðum viðskipta-
háttum og að starfsemi bankans sé í samræmi við lög og reglur.
Regluvarsla sinnir hlutverki sínu með reglubundnu eftirliti, ásamt því
að veita fræðslu og ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna.
Helstu verkefni
Hæfniskröfur
Nánari upplýsingar veitir Hákon Már Pétursson regluvörður,
sími 444 6209, hakon.petursson@arionbanki.is.
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2012.
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsækjendur sæki um
SÉRFRÆÐINGUR Í
SAMKEPPNISMÁLUM
1. desember 2012 LAUGARDAGUR4