Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 94
Mee! mee! Ekki er víst að öllum á Íslandi finnist þetta
fagnaðarhljóð. En víst er að í verkefnalöndum Hjálpar-
starfsins er jarm geita ekki bara fagnaðarhljóð heldur
líka hljóðmerki um betri lífsafkomu, tryggari og
fjölbreyttari fæðu. Geit gefur af sér mjólk, tað til
áburðar, afkvæmi og skinn sem ýmist má nota heima
eða selja fyrir nauðþurftum. Taðið bætir uppskeruna,
fæðan verður fjölbreyttari með prótínum geita-
afurðanna og heilsan batnar. Afkoman verður öruggari
en með uppskerunni einni saman og lífsgæðin meiri.
Gefum geit í jólagjöf, hún kostar 3.200 krónur og má
kaupa á gjofsemgefur.is eða á skrifstofu Hjálpar-
starfsins.
Aukin áhrif kvenna á verkefnasvæðum Hjálparstarfsins
leyna sér ekki. Konurnar eru farnar að standa fyrir
eigin atvinnustarfsemi og ráðstafa sjálfar tekjum af
henni. Það er mikil breyting. Námskeið fyrir konur í að
greina atvinnutækifæri, um mikilvægi sparnaðar og
síðan lán til nýsköpunar hafa leitt til valdeflingar,
sterkari sjálfsmyndar og meiri virðingar samfélagsins í
garð kvenna. Konur fá fræðslu um réttindi sín í
velferðarkerfinu. Unnið er gegn kynbundnu ofbeldi
með leiðtogum, stofnunum og lögreglu. Haldnir eru
fræðslufundir fyrir konur og karla um lögvarin réttindi
þeirra t.d. um skaðlegar hefðir eins og umskurð
kvenna. Hann er bannaður með lögum en tíðkast þó
enn víða. Viðhorfsbreyting hefur orðið með góðu
samstarfi við þorps- og trúarleiðtoga. Fjölgun stúlkna í
skóla er bein afleiðing af því að vatnsþrær,
vatnstankar og brunnar hafa gjörbreytt aðstæðum
stúlkna sem bera þær skyldur að sækja vatn. Tíminn
sem í það fer hefur minnkað svo mikið að þær geta
lokið þessum skyldustörfum áður en skólinn hefst.
Aukin menntun er síðan stórt skref í allri framþróun og
vitund um réttindi. Þannig verða verkefni Hjálpar-
starfsins til þess að konur verða virkir þjóðfélags-
þegnar, sér og samfélaginu til gagns.
Eþíópía
- Konur þjálfaðar í að greina atvinnutækifæri, fá lán og
aðstoð til að byrja og öðlast efnahagslegt sjálfstæði
- Unnið gegn skaðlegum hefðum varðandi konur og
börn og um leið fyrir mannréttindum
- Náið samstarf, námskeið og þjálfun fyrir opinbera
starfsmenn til að þekkja betur afleiðingar fátæktar
og veita betri þjónustu
- Vatnsþró í næsta nágrenni tryggir að fleiri stúlkur
komast í skóla þar sem minni tími fer í að sækja vatn
Malaví
- Þorpsleiðtogar þjálfaðir til að taka á ofbeldismálum
og veita þolendum stuðning
- Nefnd um heimilisofbeldi fræðir þorpsbúa í gegnum
leikrit, m.a. um tilkynningaskyldu
- Skapaður vettvangur fyrir alnæmisjúka til að koma
fram með sögu sína og draga úr fordómum
- Fólk á jaðrinum stutt til að koma skoðunum sínum að í
þorpinu
- Bæði kynin taka jafnan þátt í verkefnum, öðlast sömu
eignartilfinningu og njóta afraksturs
- Þar sem lítill tími fer í að sækja vatn eftir að brunnur
kom komast fleiri stúlkur í skóla
Indland
- Fólkið eflt til að berjast sjálft fyrir vatnsréttindum,
landi til að búa á, útgáfu nauðsynlegra skilríkja
- Námskeið fyrir konur um réttindi í velferðarkerfinu
- Mikil fræðsla og áróður gegn barnabrúðkaupum
Mynd: Frá Malaví. Paul Jeffrey/ACT Alliance.
Jarmandi gjöf
Valdefling kvenna
1O – Margt smátt ...
Gjafabréf
fyrir fjölskyldu í Afríku.
Fyrir andvirði þessa gjafabréfs verður
fátækri fjölskyldu í Úganda eða Malaví
gefin geit. Fjölskyldurnar, þ.á m. mun-
aðarlaus börn sem búa ein, taka þátt
í þróunarverkefni með Hjálparstarfi
kirkjunnar. Fyrst er vatns aflað og það
vo nýts t til að veita á akra, til að gera
fiskiræktartjarnir eða til að halda skepnur.
Geit gefur af sér mjólk, tað til áburðar,
afkvæmi og ski nn sem ýmist má nota
heima eða selja fyrir nauðþurftum. Taðið
bætir uppskeruna, fæðan verður fjöl-
breyttari með ótí pr num geitaafurðanna
og heilsan batnar. Afkoman verður
öruggari en me ð uppskerunni einni
saman og lífsg æðin meiri.
Geit
Starfsmenntun fyrir stúlkur eykur möguleika á
sjálfstæðum atvinnurekstri.
Sérstök áhersla er á að hafa konur með í ráðum og
hlusta á hugmyndir og ráðleggingar þeirra.
Þar sem konur sækja yfirleitt eldivið minnkar álag á þær
við notkun sparhlóða sem þurfa allt að 50% minni eldivið.