Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 127
LAUGARDAGUR 1. desember 2012 | MENNING | 99
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR
2. DESEMBER 2012
Sýningar
12.00 Listvinafélag Hallgrímskirkju
opnar sýningu á verkum Ragnheiðar
Jónsdóttur í forkirkju Hallgrímskirkju.
Sýninguna kallar Ragnheiður Slóð.
13.00 Jólasýning Árbæjarsafns verður
opin í safninu. Hægt er að rölta á milli
húsanna og fylgjast með undirbúningi
jólanna eins og hann var í gamla daga.
Auk þess verður ýmis dagskrá í boði.
Aðgangseyrir er kr. 1.100 fyrir follorðna
en ókeypis fyrir börn, ellilífeyrirþega
og örykja.
Hátíðir
20.00 Árleg aðventuhátíð Breiðholts-
safnaðar verður haldin í Breiðholtskirkju
í Mjódd. Fjölbreytt dagskrá í boði.
Umræður
15.00 Myndlistar- og kvikmyndagerðar-
maðurinn Þór Elís Pálsson og Ólafur
Gíslason listheimspekingur taka þátt
í opnum samræðum um heimspekina
í verkum mynlistarmannsins Jóhanns
Eyfells. Spjallið er í tengslum við
sýninguna Hreyfing augnabliksins og
verður haldið í Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur.
Kvikmyndir
15.00 Myndin Nowhere boy verður
sýnd í Kamesi Borgarbókasafns,
Tryggvagötu 15 á 5.hæð. Sögð er sagan
um uppvaxtarár John Lennons, þegar
hann kynntist Paul McCartney og
stofnaði Bítlana.
Uppákomur
12.34 Fjölbreytt menningardagskrá
er í boði á Jóladagatali Norræna
hússins. Uppákomur hvers dags eru
gestum huldar þar til gluggi dagatalsins
verður opnaður í upphafi atburðarins.
Listamaðurinn Hugleikur Dagsson gerði
dagatalið í ár.
13.30 Aðventudagur verður haldinn í
Gamla bænum Laufási, Minjasafninu á
Akureyri. Aðgangseyrir er kr. 800 fyrir
fullorðna en frítt er fyrir börn 15 ára
og yngri.
Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík verður haldinn að Stangarhyl
4. Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi.
Dagskrá
14.00 Jólaþorpið í Hafnarfirði verður
opið. Nánari upplýsingar má finna á
hafnarfjordur.is
Tónlist
13.00 Útgáfutónleikar Englajóla verða
haldnir í Salnum, Kópavogi.
15.30 Hlíf Sigurjónsdóttir leikur
einleiksverk á fiðlu í Þorgeirskirkju að
Ljósavatni.
16.00 Lay Low spilar og syngur í Merki-
gili á Eyrarbakka. Aðgangur er ókeypis
en frjáls framlög eru vel þegin.
16.00 Stórsveit Reykjavíkur heldur jóla-
tónleika í Eldborgarsal Hörpu. Góðir
gestir og vinir frá fyrri árum koma í
heimsókn og má þar meðal annars
nefna Diddú, Kristjönu Stefánsdóttur
og Gáttaþef (Ómar Ragnarsson).
16.00 Andrea Jónsdóttir þeytir skífum
á Ob-La-Dí Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
17.00 Ný Jólaóratoría eftir Sigurð Sæv-
arsson frumflutt í Hallgrímskirkju.
17.00 Kór Neskirkju, Sinfóníuhljómsveit
áhugamanna og valdir einsöngvarar
flytja Massías eftir Handel í Neskirkju.
Miðaverð er kr. 3.500 við inngang.
Bækur
15.00 Sögustund verður í aðalsafni
Tryggvagötu 15. Eva Þengilsdóttir les
upp úr bók sinni Gerðu eins og ég
- Hvati og dýrin. Bókin hefur hlotið
einróma lof kennara, foreldra og barna.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
Lúðrasveitin Svanur fagnar upp-
hafi aðventunnar með tónleikum
í Langholtskirkju á mánudaginn.
Sérstakur gestur verður söng-
konan Sigríður Thorlacius sem
mun syngja hefðbundin íslensk
jólalög með sveitinni, auk fleiri
laga sem telja má ómissandi í
aðdraganda jóla.
Meðal jólalaga verða Hin
fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þor-
bergs við texta Jóhannesar úr
Kötlum og Jólin alls staðar eftir
Jón Sigurðsson við texta Jóhönnu
Erlingsdóttur. Maríukvæði eftir
Atla Heimi Sveinsson við texta
Halldórs Kiljan Laxness verður
einnig leikið. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20 og fer miðasala fram á
Midi.is.
Syngur jólalög
með lúðrasveit
SYNGUR MEÐ SVANI Sigríður Thor-
lacius syngur jólalög með lúðrasveitinni
Svani. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓLAÞORP HAFNARFJARÐAR Verður opið alla helgina.