Fréttablaðið - 01.12.2012, Qupperneq 128
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 100
Púðar, af öllum stærðum
og gerðum, hafa gjarnan
þótt afbragðs og
einföld lausn til að
flikka upp á heimilið.
Litsterkir og munstr-
aðir púðar geta
gefið gömlum hús-
gögnum nýtt líf og
sett skemmtilegan
svip á heimilið. Mikið úrval
er um þessar mundir af
púðum og púðaverum frá
íslenskum hönnuðum sem
eru jafn ólíkir og þeir eru
margir.
LAGÐUR
eftir Elínu
Aradóttur.
DÓTTIR & SONUR eftir Tinnu Pétursdóttur
og Ingva Þór Guðmundsson.
SCINTILLA
eftir Lindu
Björg
Árnadóttur.
VARMA
MOKKA
púði eftir
Siggu
Heimis.
FLIKKAÐU UPP Á HEIMILIÐ MEÐ PÚÐUM FRÁ ÍSLENSKUM HÖNNUÐUM
NOTKNOT
eftir Ragn-
heiði Ösp.
GO WITH JAN eftir
Guðjón Tryggvason.
MYND/KATRÍN BJÖRK
„Ilmvatnið er kennt við drottningu íslenskra
eldfjalla og unnið úr vatni sem rennur
undan Heklurótum í Ytri-Rangá,“ segir
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir um nýja ilm-
vatnið Heklu frá Gyðju.
Hekla er þriðja ilmvatnið frá Gyðju og
annar dömuilmurinn. Ilmvötn Gyðju eru
þróuð og framleidd í borginni Grasse
í Frakklandi en vinna við Heklu hófst
fyrir ári síðan. Öll ilmvötn úr Gyðju-
línunni eru innblásin af íslenskri
náttúru, EFJ Eyjafjallajökull
og herrailmurinn VJK Vatna-
jökull.
„Það er flókið ferli að búa
til ilmvatn og þar sem við
notuðum íslenska náttúru
flækti það ferlið töluvert.
En við vorum í náinni
samvinnu við ilmvatns-
hönnuð í Frakklandi sem
gjarna er nefndur „nefið“
þar í landi,“ segir Sigrún
ánægð með útkomuna.
Sigrún segir mikla
vinnu liggja að baki
umbúðunum sem meðal annars
sýna Heklugos og hangir lyklakippa
með hraunmola á hverju glasi. Ilm-
urinn er væntanlegur í verslanir á
næstu dögum.
Ilmvatn unnið úr
vatni við Heklurætur
Nýtt ilmvatn frá Gyðju á markað.
ÞRIÐJA ILMVATNIÐ Sigrún Lilja
Guðjónsdóttir og Gyðja koma með
nýtt ilmvatn sem nefnist Hekla.
„Það má segja að dáleiðslan sé djúp
slökun og náttúrulegt hugarástand
sem allir fara í á hverjum degi án
þess að vita af því. Þegar við gerum
eitthvað sem tekur athyglina frá
okkur þá erum við komin í náttúru-
legt dáleiðsluástand,“ útskýrir Yrja
Kristinsdóttir sem hlaut nýverið
diploma í dáleiðslutækni. Hún segir
að með aðstoð dáleiðslutæknis geti
fólk meðal annars rifjað upp bæld-
ar minningar, bætt sjálfstraust sitt,
hætt að reykja eða upplifað djúpa
slökun.
Yrja hefur lengi haft áhuga á and-
legum málefnum og stundar sjálf
hugleiðslu. Hún hafði nokkrum
sinnum heyrt minnst á námskeið
í dáleiðslutækni og fannst tilvalið
að bæta því við menntun sína sem
félagsráðgjafi.
„Með hjálp dáleiðslu er hægt að
gera ýmsar breytingar á sjálfum
sér. Við hjálpum fólki að komast í
samband við undirmeðvitundina og
þegar því er náð hefst vinnan. Setji
fólk sér ákveðið markmið þá er það
oftast meðvitundin sem setur þau.
Það er sagt að meðvitundin sé um
tíu prósent af huganum en undir-
meðvitundin um níutíu prósent.
Það þýðir að aðeins lítill hluti hug-
ans vinnur að þessum markmiðum
og viðhorf okkar og hegðun breyt-
ist ekki nema í skamman tíma. Við
erum þess vegna fljót að detta aftur
í sama farið. Dáleiðslan svo frábær
því þannig fáum við tækifæri til að
hafa áhrif á hegðun og líðan ein-
staklingsins.“
Aðspurð segir Yrja dáleiðslu-
tæknina sem hún lærði ekki eiga
nokkuð skylt við þá dáleiðslu sem
töframaðurinn Sailesh notar. Hún
getur því ekki fengið fólk til að
lúta sínum vilja með dáleiðslu. „Ég
mundi fegin vilja geta fengið fólk
til að gera hitt og þetta, en þessi
dáleiðsla er ekki eins og sú sem Sai-
lesh notar. Ég get heldur ekki dáleitt
fólk sem vill ekki láta dáleiða sig. Ef
einhver er mjög skeptískur þá virk-
ar þetta ekki.“
Yrja er búsett í Kaupmannahöfn
en hefur verið með annan fótinn
á Íslandi. Hún flutti fyrst út sem
skiptinemi árið 2008 en hreifst svo
af borginni að hún ákvað að vera um
kyrrt. „Eins og svo margir ílengd-
ist ég í Danmörku. Ég fæ þó oft
heimþrá og veit að ég mun flytja
heim á endanum. Ég vann áður sem
flugfreyja hjá Iceland Express en
vinn núna við afleysingar á leik-
skóla samhliða því að taka fólk í
dáleiðslumeðferð. Byrjunin lofar
góðu. Þetta er í raun bara eins og
sálfræðiaðstoð nema með djúpri
slökun og fólki líður mjög vel eftir
meðferðina,“ segir hún að lokum.
sara@frettabladid.is
1 Dáleiðslutæknir er bundinn þagnarheiti gagnvart skjólstæð-
ingi sínum.
2 Dáleiðslutæknir skal fara með allar persónulegar upplýsingar,
sem snerta skjólstæðinginn, sem
trúnaðarmál.
3 Dáleiðslutæknir leitast við að gera ekkert það, sem til vanvirðu
má teljast gagnvart sínu félagi eða
skjólstæðingi.
4Dáleiðslutækni ber ekki skylda til að veita hverjum þeim sem til
hans leitar meðferð.
Siðareglur
dáleiðslutækna
Dáleiðir ekki þann
sem vill það ekki
Yrja Kristinsdóttir er dáleiðslutæknir. Dáleiðslutæknin á ekkert skylt við þá sem
töframaðurinn Sailesh notar. Hún getur aðeins dáleitt þá sem eru viljugir.
STARFAR SEM
DÁLEIÐSLU-
TÆKNIR
Yrja Kristinsdóttir
lauk nýverið
diploma-námi í
dáleiðslutækni
og starfar nú
sem slíkur í
Kaupmannahöfn.
MYND/KATRÍN
GUÐLAUGSDÓTTIR
Björninn þakkar öllum sínum 40
keppendum og þjálfurum þeirra
fyrir frábæra frammistöðu en við
unnum flest verðlaunin á þessu
móti eða 6 gull, 6 silfur og 5 brons.
Listskautadeild Bjarnarins rekur öflugt unglingastarf fyrir byrjendur
og lengra komna. Rúmlega 40 Bjarnarstúlkur hafa náð grunnprófi
Skautasambands Íslands sem veitir þátttökurétt á Íslandsmeistara-
mótum og á erlendum stórmótum. Bestu skautarar Bjarnarins hafa
náð verðlaunasætum í erlendum keppnum og árangur þeirra vakið
verðskuldaða athygli.
Áfram Björninn!
Skautafélagið Björninn óskar
nýkrýndum Íslandsmeisturum
sínum á listskautum, Agnesi Dís
Brynjarsdóttur, Íslandsmeistara
stúlkna og Júlíu Grétarsdóttur,
Íslandsmeistara unglinga, hjartan-
lega til hamingju með árangurinn.
Til hamingju
Hreysti – Gleði – Vellíðan – Hreyfing – Styrkur – Samhæfing
Jóladagatalið kemur á óvart
Jóladagatal Norræna hússins fer fram í sjötta sinn. Fjöldi listamanna tekur þátt.
Jóladagatal Norræna hússins hefst í dag og er þetta í
sjötta sinn sem viðburðurinn fer fram. Daglegir við-
burðir verða í Norræna húsinu fram á aðfangadag og
einnig verður boðið upp á óáfengt jólaglögg og pipar-
kökur.
Hugmyndin að baki dagatalinu er sú að bjóða upp á
öðruvísi viðburð á aðventunni sem allir geta notið sér
að kostnaðarlausu. Gestir vita ekki hvað bíður þeirra
á bak við gluggann hvern dag fyrr en gullbjöllunni er
klingt klukkan 12.34 og gluggi dagsins opnaður. Meðal
þeirra listamanna sem taka þátt í dagatalinu í ár eru
Hrafnhildur Arnardóttir betur þekkt sem Shoplifter,
Bjartmar Guðlaugsson, Lúsíukórinn, Blágresi og Einar
Már Guðmundsson, Rökkurró, Gerður Kristný, Moses
Hightower og fjöldi annarra.
Nýr listamaður er fenginn til að gera dagatalið ár
hvert og í ár er það Hugleikur Dagsson sem skapar
mynd fyrir hvern dag fram að aðfangadag. Myndirnar
birtast ein í einu á Facebook-síðu Hugleiks og eru hluti
af stærri mynd sem hægt verður að púsla saman yfir
hátíðirnar.
LISTAMAÐUR ÁRSINS Hugleikur Dagsson gerir dagatal
norræna hússins í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK