Fréttablaðið - 01.12.2012, Side 150
1. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 122
„Það er þannig með þetta leikrit að
það er rosalega blóðugt. Það fjallar
um svik, morð og dauða og þegar
menn eru að takast á við það þá
fara menn í tilfinningarnar,“ segir
Ari Matthíasson, framkvæmda-
stjóri Þjóðleikhússins.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að kastast hafi í kekki
milli leikstjóra Makbeðs, Ástral-
ans Benedicts Andrews, og aðal-
leikarans Björns Thors. Þeir hafi
rifist heiftarlega og hurðum hafi
verið skellt.
Ari vildi ekki staðfesta þetta
við Fréttablaðið en segir eðlilegt
í öllum leikritum að menn takist
á við æfingarnar. „Ég tel það ekki
til tíðinda þó að það renni blóð í
mönnum á æfingum. Bæði aðal-
leikarinn og leikstjórinn hafa lýst
yfir ánægju hvor með annan. Bæði
í gær [fimmtudag] og í fyrradag
[miðvikudag] kemur leikstjórinn
til mín og segist vera óskaplega
ánægður og glaður með sinn aðal-
leikara í sýningunni.“
Aðeins um fjórar vikur eru í
frumsýningu þessarar jólasýning-
ar Þjóðleikhússins og því er mikið
undir hjá bæði leikurunum og leik-
stjóranum. Andrews er afar virtur
í sínu fagi og hefur leikstýrt sýn-
ingum í þekktum leikhúsum bæði
í Ástralíu og Evrópu. Síðasta jóla-
sýning hans í Þjóðleikhúsinu, Lér
konungur, rakaði einmitt til sín
sex Grímuverðlaunum.
Macbeth er þekkt fyrir þá
meintu bölvun sem hvílir á leik-
ritinu og þeim sem setja það upp í
hvert sinn. Sem dæmi um þá miklu
ógæfu sem virðist tengjast því má
nefna að árið 1942 lék John Giel-
gud Makbeð í enskri uppfærslu
þess. Þrír leikarar létust á sýning-
artímanum og leikmyndahönnuð-
urinn framdi sjálfsvíg.
Aðspurður segist Ari ekki kann-
ast við neina bölvun tengda upp-
færslu Þjóðleikhússins en til að
storka ekki örlögunum bætir hann
við tölunum 7, 9, 13. Þvert á móti
lofar hann „rosalegri“ sýningu þar
sem listræn útfærslan og umfang-
ið verður í hæsta gæðaflokki.
freyr@frettabladid.is
„Það skiptir engu máli hvað
við gerum sem svart fólk,
það verður alltaf svona.
Hvert smáatriði í mínu lífi
snýst um kynþátt.“
LEIKARINN JAMIE FOXX ræddi
um hlutverk sitt í kvikmyndinni
Django Unchained. Myndin er
nýjasta kvikmynd leikstjórans
Quentins Tarantino.
NOSTALGÍSKT RAUTT NEF
Lag dags rauða nefsins í ár, Öll í kór
eftir FM Belfast, byrjaði að hljóma í
vikunni eins og Fréttablaðið greindi
frá. Margir gestasöngvarar koma við
sögu í laginu, þar á meðal Diddú sem
eyddi löngum stundum í hljóðverinu
Hljóðrita á áttunda áratugnum en
hafði ekki stigið þar inn fæti síðan
1983. Mun nostalgían
hafa heltekið söngkon-
una við upptökurnar. Af
öðrum gestasöngvurum
má nefna diskó-dúett-
inn Þú og Ég, Helgu
Möller og Jóhann
Helgason, sem
syngja einmitt
hlutann „Þú og
ég“ í laginu. - kg
350 ÞÚSUND Á EINU ÁRI
Sigur Rós lauk tónleikaferð sinni
um heiminn með tónleikum í Kúala
Lúmpúr í Malasíu á sunnudaginn.
Alls spilaði sveitin á 38 tónleikum
í Norður-Ameríku, Japan, Evrópu,
Ástralíu, Taívan, Singapúr og Mal-
asíu. Bæði spilaði Sigur Rós á eigin
tónleikum og á tónlistarhátíðum.
Samanlagt spilaði sveitin
fyrir rúmlega 350 þúsund
manns á árinu. Jónsi
og félagar taka svo
þráðinn upp aftur á
næsta ári og þegar
er búið að tilkynna
um tónleika í
Evrópu, Ameríku
og í Japan langt fram
á næsta sumar. - fb
SIGTRYGGUR TIL
MOSKVU
Sigtryggur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri Útón, heldur fyrirlestur
í Moskvu í dag um útflutning á ís-
lenskri tónlist. Fyrirlesturinn er hluti
af hátíðinni Scandinavian Waves þar
sem hljómsveitir frá öllum Norður-
löndunum spila, þar á meðal hin
íslenska múm. Útlendingar
eru margir hverjir gátt-
aðir á góðum árangri
íslenskrar tónlistar úti í
heimi og ætlar Sig-
tryggur að leiða þá í
allan sann-
leikann um
formúluna
á bak við
þetta allt saman. - fb
Gunnar Hilmarsson fatahönnuður er tekinn við sem
yfirhönnuður fatamerkisins E-label. Honum til halds
og trausts eru hönnuðirnir Harpa Einarsdóttir, Ýr
Þrastardóttir og Una Kristjánsdóttir.
„Ég tók við merkinu í sumar. Jón Ólafsson, vatns-
bóndi og eigandi E-label, er með ákveðna framtíðar-
sýn fyrir merkið sem ég varð mjög skotinn í og
þess vegna langaði mig að taka þátt í þessu verk-
efni. Hans hugmynd er að gera þetta að gróðrarstöð
fyrir unga hönnuði sem vantar ráðgjöf eða aðstoð.
En stærsta verkefnið er auðvitað að byggja upp E-
label og Evalín merkin hér heima og erlendis,“ segir
Gunnar.
Hönnun E-label einkenndist áður af svörtum bóm-
ullarflíkum en nú hefur orðið breyting þar á. Gunnar
og hönnunarteymi hans hafa gert töluverðar breyt-
ingar á línunni, sem er einnig stærri og fjölbreyttari
en fyrr.
„Línan var nokkuð einhæf og fötin voru aðallega
svört og úr bómull. Við höfum gert töluverðar breyt-
ingar á línunni en erum trú grunnhugmyndinni að
baki merkinu, sem er fágað rokk og ról.“
Að sögn Gunnars geta íslenskir hönnuðir verið
svolítið spéhræddir varðandi sína hönnun og því
er lítið um að hönnuðir vinni að verkefnum saman.
Þetta á þó ekki við um E-label-teymið. „Það er gaman
að vinna þetta með öðrum hönnuðum, það myndast
ákveðin stemning og orka við samvinnuna. Ég stýri
verkefninu og ber ábyrgð á því en í raun skiptum við
þessu í fjóra hluta. Hver og einn fær ákveðið magn af
stílum til að hanna og svo er þeim skilað til mín. Ég
fer svo yfir teikningarnar og sé til þess að litavalið,
sniðin og hlutföllin passi saman. Í raun gerir hver
hönnuður „míní-línu“ innan línunnar.“
Fyrsta línan er þegar komin í verslun E-label á
Laugavegi og í Topshop. - sm
Skotinn í framtíðarsýn Jóns
GOTT TEYMI Gunnar Hilmarsson hefur tekið við sem yfir-
hönnuður E-label. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Átök og tilfi nningar við æfi ngar
á jólasýningunni Makbeð
Framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins segir enga bölvun hvíla á uppfærslunni.
BLÓÐIÐ RENNUR Í MÖNNUM Ari Matthíasson segir eðlilegt að blóðið renni í
mönnum á æfingum. Benedict Andrews leikstýrir Makbeð og með aðalhlutverkið
fer Björn Thors.
Hjátrúin segir að ef menn nefna nafn leikritsins, Makbeð, eiga þeir að
yfirgefa herbergið, loka hurðinni, segja dónalegt orð eða hrækja á gólfið,
banka svo á hurðina og óska eftir því að koma aftur inn í herbergið.
Leikritið sem ekki má nefna
Ég tel það
ekki til tíðinda þó
að það renni blóð
í mönnum á æf-
ingum.“
Ari Matthíasson, framkvæmda-
stjóri Þjóðleikhússins.