Fréttablaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 10
15. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Fiskislóð / Grandi
Til leigu gott 115fm skrifstofu eða lagerhúsnæði
á jarðhæð við Fiskislóð.
Góð bílastæði.
Upplýsingar veitir Sævar, s: 6943899
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
NÁTTÚRA Hafrannsóknastofnun
útilokaði í gær að ástæður síldar-
dauðans í Kolgrafafirði gætu verið
afleiðing síldarsýkingarinnar sem
herjað hefur á stofninn um nokk-
urt skeið. Sýkingin er sú sama og
var í stofninum í vetur.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri nytjastofnasviðs Hafró,
segir að hitastigið hafa verið um
frostmark. Það er hitastig sem
síldin á að þola, að sögn Þorsteins.
Runólfur Guðmundsson, skip-
stjóri í Grundarfirði, hefur sett
fram þá kenningu að um undir-
kælingu í firðinum sé að ræða.
Þá kemur kaldur straumur inn í
fjörðinn; það mikil að ískristall-
ar myndast í fiskinum og drepa
hann. Þessa kenningu setti hann
fram í viðtali við RÚV í gær. Hann
telur ólíklegt að síldin hafi drepist
vegna súrefnisskorts og segir að
brúin yfir fjörðinn spili sitt hlut-
verk; á aðfallinu, eins og á fimmtu-
dag, fari síldin ekki yfir straum-
bandið undir brúna.
Spurður um kenningu Runólfs
segir Þorsteinn að Hafrannsókna-
stofnun útiloki hana ekki.
Bjarni Sigurbjörnsson, ábúandi
á bænum Eiði við Kolgrafafjörð,
segir að hvalur og fugl kunni að
meta veisluborð náttúrunnar, sem
sést vel á ljósmyndum hans sem
fylgja fréttinni. - shá
Fugl og hvalur gæða
sér á síld í firðinum
Skipstjóri hefur sett fram þá kenningu að köldum straumi megi kenna um síldar-
dauðann í Kolgrafafirði. Útilokað þykir að ástæðan sé sýking í síldarstofnum.
VEISLA Háhyrningar gröðguðu í sig síldina, fyrir ofan sveimaði mávurinn.
HORFT ÚT KOLGRAFAFJÖRÐ Talið er að 200 til 300 þúsund tonn af síld séu í firðinum. MYNDIR/BJARNI SIGURBJÖRNSSON
Síldin
liggur
þéttast á ferkílómetra svæði.
Nokkur hundruð tonn hafa
drepist, er mat sjónarvotta.
1 km2
RÚSSLAND, AP Fyrrverandi lögreglumaður,
Dmitrí Pavljútsjenkov, hlaut ellefu ára fang-
elsisdóm fyrir aðild sína að morðinu á blaða-
konunni Önnu Politkovsköju.
Sannað þykir að hann hafi útvegað morð-
ingjanum skotvopn ásamt því að hafa tekið
þátt í að fylgjast með ferðum blaðakonunnar.
Politkovskaja var myrt í stigagangi heima
hjá sér 7. október 2006. Hún hafði skrifað
gagnrýnar greinar og bækur um stjórn
Vladimírs Pútíns forseta. - gb
Fyrrverandi lögreglumaður dæmdur fyrir aðild að morðinu á Politkovsköju:
Ellefu ár fyrir aðild að morði
DMITRÍ
PAVLJÚTSJ-
ENKOV
Útvegaði
skotvopnið.
NORDICPHOTOS/AFP
EGYPTALAND, AP Andstæðingar
Mohammeds Morsi forseta áttu í
átökum í gær við íslamista sem
styðja forsetann, daginn áður en
gengið er til atkvæða um nýja
stjórnarskrá. Sumir íslamistanna
sveifluðu sverðum en andstæð-
ingar forsetans köstuðu grjóti.
Kveikt var í að minnsta kosti
tveimur bifreiðum.
Átökin brutust út að loknum
föstudagsbænum í einni af stærri
moskum Kaíró. Þaðan breiddust
átökin út á breiðgötur í nágrenninu.
Morsi segir stjórnarskrána
nauðsynlega til að tryggja lýð-
ræði í landinu, en andstæðingar
hans segja ekki hafa verið vand-
að nóg til verka og ýmis mann-
réttindi séu ekki nógu vel tryggð
í henni.
Andstæðingar stjórnarskrár-
innar hvöttu Morsi til að hætta
við þjóðaratkvæðagreiðsluna, en
hann hefur verið staðráðinn í að
láta reyna á hvort stjórnar skráin
verður ekki samþykkt. Flest
bendir til að meirihluti lands-
manna sé fylgjandi nýrri stjórn-
skipan. - gb
Kosið verður um umdeilda stjórnarskrá í Egyptalandi í dag:
Átök brutust út milli fylkinga
MÓTMÆLI Í KAÍRÓ Einn mótmælenda
leikur sér að fótbolta. NORDICPHOTOS/AFP