Heimilisritið - 01.02.1944, Síða 24
fShrítlur
Leopold konungur IXX:
„Kæru ráðherrar. í næsta mán-
uði verð ég búinn að sitja að
völdum sem konungur þessa
lands í 25 ár. — Haldið þið að
nú geti ekki orðið um að ræða
að ég fái svolitla kauþjhækkun ?“
*
Pilturinn: — Eg er kominn til þess ai5
spyrja vður . . . hvort þér hafið nokkuð á
móti því ... að ég giftist dóttur yðar.
Faðirinn: — Hvað eruð þér garnall?
Pilturinn: — Tuttugu og eins.
Faðirinn: — Dóttir mín er tuttugu og
fimm ára. Eg held, að við bíðum i nokkur
ár með giftinguna, þangað til þið verðið
jafngömul.
★
Læknirinn (við fertuga jómfrú): — Ilaf-
ið þér fengið barnaveiki?
Jómfrúin: — Nei, ekki ennþá.
★
Palli: — Hvers vegna skrifa læknarnir
reseptin á latinu?
Pési: — Veiztu ekki, að latínan er dautt
mál?
★
„Kæri frændi. Eg sendi þér hér svolítið
af gæsasteik í afmælisgjöf, af því að ég
veit, hvað þér þ.vkir hún góð. Gjöfin er lít-
il, en hún kemur frá hjartanu á
þinni Pálínu".
*
— Jæja, svo að maðurinn þinn er hætt-
ur að vera úti að slaika á kvöldin?
— Já, ég var fljót að venja hann af því.
Eg lét tvo hægindastóla við ofninn, tvö
hálftæmd vínglös á borðið, fyllti öskubakk-
ann með sígarettustubbum og .............
— Hvers vegna var Jón söðlasmiður ekki
endurkosinn í bæjarstjórnina?
— Af því að hann hraut svo hátt á
fundum að borgarstjórinn vaknaði við það.
*
Astfanginn maður vill helzt vera enn
ástúðlegri en hann getur verið, og þess
vegna verða flestallir ástfangnir menn svo
hlægilegir.
★
Móðirin: — Sittu nú rólegur, drengur
minn, taktu skeiðina í hægri höndina, já,
snýttu þér svo og borðaðu brauð með!
*
Jónsi: — Skammar kerlingin þín þig ekki
þegar þú kemur fullur heim?
Gvendur: — Nei, hún getur það ekki þó
hún fegin vildi. Henni finnst ég þá svo
hlægilegur, að hún kemur ekki upp nokkru
orði fyrir hlátri.
*
— Síðan ]>au giftust heldur hann regn-
hlifinni alltaf-alveg yfir hana, því að nú er
það hann, sem þarf að borga fötin hennar.
★
Konan: — Það er Ijóta háttalagið á þér.
Ingólfur---------!
Maðurinn: — Hvað er nú?
Konan: — I fyrradag komstu ekki heim
fyrr en í gær og í gær komstu ekki heim
fyrr en í dag, og ef ég hefði ekki sótt þig
í dag, þá hefðirðu sjálfsagt ekki komið
heim fyrr en á morgun.
★
— Nú veit ég af hverju guð hefur sent
okkur hann litla bróður. Honum hefur
nátlúrlega leiðst öskrið í honum.
★
Þegar bónda nokkrum i Bandaríkjunum
var sagt frá því, að Andrew Carnegie hefði
átt 25 sent, þegar hann kom til landsins,
en 250.000.000 dollara þegar hann dó, þá
var allt og sumt sem bóndinn sagði:
„Hann hlýtur að hafa átt sparsama
konu“.
22
HEIMILISRITIÐ