Heimilisritið - 01.02.1944, Síða 25
1 BERLÍNARDAGBÓK
..=bt
Ejtir WILLIAM L. SIIIRER
Berlín, 18. júní.
Samningarnir tókust, voru und-
irritaðir í dag í London. í Wil-
helmstrasse eru menn himinlifandi.
Kafbátafloti Þjóðverja má vera
jafn við hinn brezka. Það yfirgeng-
ur minn skilning, hvers vegna
Bretar samþykkja þetta. Þýzku
kafbátarnir höfðu nærri því unnið
;r þeim í styrjöldinni 1914—1918,
og gera það ef til vill alveg næst.
Lenti inni í kránni eins og fleiri
kvöldin. Þessi krá skartar annars
með ítölsku nafni, Ristorante
Italiano, og er rekin af Willy Leh-
man, stórum og stæðilegum Þjóð-
verja, og er ekkert ítalskt við hann.
Kona hans er belgisk, grannvaxin
og feimin. Þarna hefur orðið at-
hvarf brezku og amerísku frétta-
ritarar.na. Þar getum við komið
saman, svo að lítið ber á, og talað
um dagleg viðfangsefni okkar, en
án þess getur enginn erlendur
fréttaritari þrifist til lengdar. Við
höfum Stammtisch — einkaborð,
sem ávallt bíður okkar úti í horni,
og frá því um klukkan tíu á kvöld-
in til þrjú eða fjögur að nóttu er
oftast setinn bekkur við það.
Venjulega situr Norman Ebutt i
forsæti og tottar stöðugt gömlu
pípuna, talar og þrefar ‘ hárri og
skrækri röddu og miðlar okkur
af vísdómi sínum. Hann hefur ver-
ið hér lengi, er hundkunnugur
mönnum í stjórninni, flokknum,
kirkjunni og hernum og er maður
skarpgreindur. Nýlega kvartaði
hann yfir því við mig einslega, að
Times birti ekki allt, sem hann
sendi, kærði sig ekki um að vita
um skuggahliðar þýzka nazismans
og mundi vera komið á vald naz-
istavina í London. Hann er beygð-
ur og talar um að hætta. Næst
honum situr frú Holmes með
trjónunefið, vitur kona efalaust.
En hún gleypir svo orðin, að ég á
erfitt með að skilja hana. Aðrir
vanagestir við borðið eru þessir:
Ed Beatty við U.P. með mánaleita
HEIMILISRITIÐ
23